Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kolbeinn afhjúpar kakókuklarana: „Með hraðan hjartslátt, svitnaði og var með skjálfta“

Kolbeinn afhjúpar kakókuklarana: „Með hraðan hjartslátt, svitnaði og var með skjálfta“

Pistill sem Kolbeinn Sæv­ars­son birti á dög­unum á Facebook fer eins og eldur í sinu á sam­fé­lags­miðlun. Þar lýsir hann reynslu sinni af svoköll­uðum kakóserómón­íum, þar sem fólk drekkur hreint kakó, sem er nokkuð frá­brugðið því sem flestir þekkja.

Kolbeinn seg­ist hafa farið yfir um við að drekka slíkt kakó. Hann hafi fengið sjálfs­vígs­hugs­anir meðal ann­ars. Kakó­drykkja sé því ekki eins sak­laus og margir halda. Hann hefur gefið Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að end­ur­birta pistil­inn sinn.

Pistill Kolbeins í heild sinni

Það er eitt sem mér liggur á hjarta og langar til að tjá mig um. Þar­síð­ustu helgi fór ég á svo­kallað helgar retr­eat. Aðilinn sem gerir þetta út setur þetta upp sem and­lega og skemmti­lega ferð með nokkrum lauf­léttum verk­efnum þar sem verður dansað og verið út í nátt­úr­inni. Sem hljómar alveg vel og er rétt að nokkru leiti. Í þess­ari ferð er líka verið að gefa fólki hrátt kakó stundum 2 á dag í svoköll­uðum kakó ser­ímón­íum og á kakóið að vera ein­hver orku­fæða frá guð­unum sem á að opna hjarta­stöðv­arnar og fram­kvæma ein­hver áhrif sem líkja til að vera ást­fang­inn eða svo er sagt.

Og svo þegar fólk er búið að drekka þennan óþverra þá á að fara að ræða um til­finngar og dansa saman. Hljómar allt voða krútt­legt. Ég hins­vegar upp­lifði þessa helgi ekki svona æðis­lega.nÍ fyrsta lagi langar mig aðeins að taka hrátt kakó aðeins fyrir. Þetta efni hefur verið að ryðja sér til rúms hérna á Íslandi á und­an­förnum árum.

Og er mikið notað af svona „and­legu“ liði sem notar þetta efni sem ein­hvers­konar hækju í sínum and­legu iðk­unum. Þetta efni er gefið út fyrir að vera alveg skað­laust og meira­segja bráð­holt fyrir lík­ama og sál og kepp­ist fólk um að lof­sama þetta efni. En því miður eru engar lang­tíma rann­sóknir komnar á þetta efni sem styðja við það.

Þetta fólk ein­hverra hluta vegna gleymir alltaf að nefn­ast á að þetta efni fram­kallar ein­hvers­konar vímu og getur verið mjög ávana­bind­andi. Það er virkt efni í þessu sem heitir Theobromine sem er í sama flokki og koffín og hefur bein áhrif á mið­taug­ar­kerfið. Og er mikið magn af því í kakói. Og þar sem ég er hættur að nota koffín var ég enn næm­ari fyrir þessum áhrifum. Og er fyrir með svaka­lega næmt og við­kvæmt tauga­kerfi líka.

Svo er þetta líka mjög skað­legt fyrir lifr­ina þar sem hún á mjög erfitt með að vinna úr þessu vegna flók­inna efna­sam­banda. En mjög auð­velt að selja manni þá hug­mynd að þetta sé það alveg málið og gott fyrir mann þetta er jú kallað kakó sem minnir mann á jólin og ein­hver kósý­heit. Allavega. Ég lét segj­ast og trúði þessu liði og var nokkrum sinnum búinn að fara á svona ein­taka við­burði.

Þar sem var drukkið kakó og síðan sungið mön­trur og dansað og allt gott og blessað með það. Svo fór ég að taka eftir því að alltaf þegar ég ætl­aði í hátt­inn um kvöldið eftir svona ser­ímón­íur var ég mjög tjún­aður og átti ég alltaf erfitt með að sofna og svaf mjög laust og nokkur skipti varð mér pínu óglatt og fékk drullu. ég spáði samt ekk­ert meira í því þá.

En já snúum okkur aftur að ferð­inni. Margt gott við þessa ferð og vel heppnað. En já stjórn­andi ferð­ar­innar var með ein­hverja smá kynn­ingu um kakó í byrjun ferð­ar­innar og sagði það mjög hættu­laust og litlar sem engar auka­verk­anir í mesta lagi smá haus­verkur.
Áður en við lögðum af stað seinnipart föstu­dags var drukkið kakó. Á laug­ar­deg­inum var drukkið kakó um morg­un­inn og um kvöldið.

Aftur á sunnu­dags­morgun og svo líka á mánu­dags­morgun. Og alltaf sett í ein­hvern and­legan bún­ing. Og svo var stíf dag­skrá alla dag­anna og margt mjög skemmti­legt.
En aðfara­nótt sunnu­dags upp­lifði ég miklar auka­verkar af þessu kakói og líka aðfara­nótt mánu­dags. Á laug­ar­dags­kvöldið var kakó ser­ímónía og svo var held ég 5 tíma session þar sem við sátum og vorum að vinna ein­hver „verk­efni“ og sátum í grúbbum að ræða erf­iða og per­sónu­lega hluti sem tók mjög á and­legu hlið­ina mína og svo eftir það var dansað og einn ein­stak­lingur í hópnum var með efni sem heitir Rapé og átti við að vera rosa and­legt og nice og var að bjóða fólki og ég sló til og próf­aði.

Hann hins­vegar ljáð­ist að segja mér að það er mikið ník­ótín magn í þessu efni (sem hann blés upp í nefið á mér). Það skrif­ast líka á mig að spyrja ekk­ert út í efnið og treysta bara blint. Og þar sem ég er löngu hættur að nota ník­ótín fór ég í svaka­legt ník­ótín sjokk og var líka með kakó í kerf­inu þá var ég með óráði í smá tíma. Ég ber samt engan kala til þessa ein­stak­lings enda gekk honum örugg­lega bara gott eitt til.

Ég svaf lítið sem ekk­ert um nótt­ina, upp­tjún­aður með hraðan hjart­slátt, svitn­aði og var með skjálfta og haus­verk. Mikið hugs­anarugl í hausnum og litlar stjórnir á hvötum. (held ég hafi rúnkað mér 5 sinnum eða eitt­hvað) og í fram­hald­inu dottið í sjálfs­vígs­hugs­anir. Ég er ekki að segja að þetta hug­ar­á­stand sem ég var í hafi verið bein afleið­ing af kakó og rapé neyslu og er þetta ekki óþekkt hjá mér en það var óvenju erfitt að hafa stjórn á hvötum og hugs­unum þessa nótt.

Og svo kom sunnu­dags­morgun og ég nán­ast ósof­inn og beint í kakóser­ímóníu. og svo í fram­hald­inu kom svo „verk­efni“ sem ég sé eft­irá að var á mjög gráu svæði. Við sem­sagt sátum öll í hring og svo kall­aði hann okkur eitt og eitt inn í miðjan hring­inn og vildi að við töl­uðum um eitt­hvað mjög per­sónu­legt sem lægi þungt á okkur fyrir framan alla.

Sem og við gerðum og svo setti hann sig í ein­hver dóm­ara­stól á hvert og eitt okkar og túlk­aði þetta allt eftir sinni henti­semi og guð veit hvort hann hafi rétt fyrir sér eða sé yfir höfuð hæfur til að leið­beina fólki í svona erf­iðum málum. Svo líka það að það var eng­inn til að grípa liðið. Það tekur á til­finn­ing­arnar að opna á svona hluti (alla­vega hjá mér) og eng­inn til að leið­beina manni í úrvinnslu­ferl­inu.

Ein­hverjir í hópnum sjálf­sagt vilj­ugir en spurn­ing með hæfni og getu. Restina af deg­inum var ég í miklum til­finnga­sveiflum náði samt að hafa smá gaman þegar við fórum í ein­hvern foss og fengum útrás þar. um kvöldið var ég svo aftur tjún­aður og var með miklar svefn­trufl­anir og treysti mér ekki í að tala við neinn um líðan mína þar sem ég á erfitt
með að treysta fólki og þekkti engan þarna það vel.

Ég kom fram síð­astur af öllum á mánu­dags­morg­un­inn illa upp­lagður og beint í kakó. og svo var lagt af stað heim. ég var ekki kom­inn heim fyrr enn um mið­nætti þar sem heim­ferð­inn gekk brösu­lega fyrir sig. En svo loksinns þegar ég komst heim var ég algjör­lega búinn á því. Ég var með dag­skrár­liði sem ég átti að mæta í á þriðju­deg­inum og mið­viku­deg­inum
og sá fram á það að ég hefði enga orku til að sinna mínum skyldum og hringdi mig því inn veik­ann. Var bara í frá­hvörfum/þynnku held ég.

Svo kom líka kvíði yfir mig ég hafði nefni­lega verið að opna á alls­konar per­sónu­lega hluti í ein­hverri kakó­vímu fyrir framan fólk sem ég hafði aldrei séð og veit ekk­ert hvort ég muni sjá það aftur og fannst það óþægi­legt. Þetta hreyfði líka við ýmsum til­finnigum og eng­inn til að hjálpa mér að vinna úr þeim. Svo á þriðju­deg­inum hefur stjórn­and­inn sam­band við mig og tjáir mér að það sé annað verk­efni sem ég verði að gera ekki seinna enn í dag og ég spyr hann hvað myndi ger­ast ef ég myndi ekki gera það þá tjáir hann mér að hann myndi fjar­lægja mig úr hópnum og ég fengi ekki að veri í hópnum áfram.

Ég er nokkuð viss um að þessi ein­stak­lingur sé hald­inn ein­hverri sjúk­legri stjórn­semi.
Þetta „verk­efni“ fól í sér að gera vídéo um upp­lifun sína á ferð­inni sem hann svo not­aði á instagram­inu sínu til að pró­móta þessi retr­eat. Ég vildi vera í hópnum áfram þar sem ég á erfitt með að tengj­ast fólki og geri því flott vídeó handa honum sem hann svo var með í story hjá sér á instagram. Verð að segja að mér fannst það ekk­ert voða nice.. introvert­inn ég.. og það er bara ekk­ert að því að vera introvert btw. Svo hitt­umst við flest úr hópnum á mið­viku­dags­kvöldið í kakóser­ímóníu og dönsum og eitt­hvað húllum hæ og svona verið að slaufa þessu upp að ég held.

Ágætis kvöld og allt það en svo átti ég erfitt með svefn um nótt­ina. Hópurinn er svo í sam­kiptum áfram inná svona grúbbu á messen­ger og voru ein­hverjir úr hópnum að hitt­ast og fá sér kakó og svo hélt stjórn­and­inn áfram að henda ein­hverjum svoköll­uðum verk­efnum þarna inn. Ég tek síðan síðan ákvörðun um að yfir­gefa þessa grúbbu þar sem inn­sæið sagði mér að það væri eitt­hvað bogið við þetta.

Ég var far­inn að merkja neyslu­mynnstur í kringum þetta kakó og stjórn­and­inn (sem er að selja kakó btw) hélt áfam að lof­sama kakóið og þrýsta á liðið að skila inn ein­hverjum verk­efnum. Stjórn­and­inn hefur síðan sam­band við mig og segir „ég sé að þú fórst úr grúbb­unni án þess að gefa útskýr­ingar, villtu hafa það þannig“ eins og ég hafi verið að brjóta ein­hvern sátt­mála.

Gaur retr­eatið klárað­ist fyrir viku.. back the fuck off. Ég á ekk­ert að þurfa að útskýra mig.
Svo hef ég sam­band við hann og bað hann um að fjar­lægja víd­eóið sem ég sendi honum af net­inu því mér fannst óþægi­legt að vita til þess að fólk sem ég þekkti ekki gat verið að horfa á það. Sem hann gerir sem ég kunni að meta.

Svo hef ég sam­band við hann aftur og tjái honum um auka­verk­an­irnar sem ég upp­lifði af þess­ari kakó­neyslu og tjái mig líka um að mér finn­ist að ef ein­hver i hópnum sé með efni (rapé í þessu til­felli) sem ekki var búið að taka fram að yrði á staðnum væri það á ábyrgð
stjórn­enda að upp­lýsa alla í hópnum hvað efnið sé, hvað sé í því og hver áhrifin eru og að mér finnst að það mætti útskýra betur hvað kakó er nákvæm­lega og hver áhrifin eru.

Taka fram að það hefur mjög örvandi áhrif og getur verið ávana­bind­andi og getur haft auka­verk­anir svosem svefn­leysi, hjart­slátt­ar­trufl­anir, svita, skjálfta, ógleði og skap­sveiflur.
Stjórn­and­inn tók ekki vel í þessa gagn­rýni og brást við með hroka, gerði lítið úr þessum stað­hæf­ingum hjá mér og reyndi að snúa þessu yfir á mig að ég væri að særa hann með þessum árásum og væri til­ætl­un­ar­samur og ég veit ekki hvað og hvað. Það er einmitt þess­vegna sem ég er að skrifa þennan pistil þessi við­brögð stuð­uðu mig.

Ekki mis­skilja mig ég er ekki að setja neytt út á það að fólk sé að fá sér kakó og svo­leiðis bara í góðu lagi og margir hafa gott og gaman af. ég vill bara eyða þess­ari blekk­ingu að
kakó sé eitt­hver ofur­fæða og sé allra meina bót og hafi lítil sem eng­inn skað­leg áhrif. Það er búið skreyta þetta með ein­hverju and­legu glimmeri og mála þetta upp sem eitt­hvað
yfir­náttú­legt stöff, jújú það eru ein­hver stein­efni og svona í þessu líka sem eru góð fyrir mann en hey það að líka eitt­hvað af drasli í tequila sem er gott fyrir mann en flestir vita þó að það hefur líka hug­breyt­andi áhrif og getur verið ávana­bind­andi.

Þegar sann­leik­ur­inn er sá að svona kakóser­ímón­íur eru bara það nákvæm­lega sama og að sitja við arin­eld með bjór og glamra á gítar og syngja saman og fara svo á trúnó.
Ranka svo við sér dag­inn eftir og hugsa „afhverju í and­skot­anum var ég að segja þessu liði frá þessu“. Nema að það er búið að setja þessa neyslu­venju í ein­hvern and­legan og fal­legan bún­ing. Fólk er bara að koma saman, inn­byrða hug­breyt­andi efni svo það geti aðeins slakað á höml­unum og lyft sér upp saman. Afþví að ein­hverja hluta vegna finnst flestu fólki efrf­ið­ara að gera það algjör­lega als­gáð.

Og ég er ekki að setja út á neyslu­venjur heldur enda erum við flest með ein­hverjar (ég ekki und­an­skil­inn þar). ég vill bara að hlutir séu sagðir eins og þeir eru. Kakó er hug­breyt­andi efni sem er mjög ávana­bind­andi ekk­ert flókn­ara en það. Og þeir sem eru að bjóða fólki upp á þetta mega alveg vera dug­leg­ari við að tjá fólki það. Að fá sér kakó­bolla er bara það sama og að fá sér skot, línu eða jónu eða hvað það er sem fólk fílar.

Þegar ég átt­aði mig á þessu tók ég ákvörðun um að snar­hætta að inn­byrða þetta sull, því ekki bara það að víman er ömur­leg þá er þetta líka við­bjóðs­legt á bragðið. Ég gæti alveg eins verið heima hjá mér að sjúga kókaín og sann­fært mig um það að það þjón­aði ein­hverjum and­legum til­gangi. Sem ég geri samt ekki.. lengur.

Allt sem ég skrifa í þess­ari máls­grein er alfarið mín skoðun og eru engar vís­inda­legar rann­sóknir sem styðja þetta.. að ég held alla­vega. En ef fólk nennir að leita aðeins á net­inu þá er alveg slatti af efni um hrátt kakó og skað­semi þess.

Svo finnst mér líka svo­lítið fyndið. Það eru alveg nokkrir svona hópar á Íslandi sem eru alveg all in í þessu kakói og eru oft að halda ser­emón­íur og bjóða fólki einka­þjálfun
í ein­hverju kakó­hug­leiðslu­and­legu­ferða­lagi og er örugg­lega að hala inn eitt­hvað af pen­ingum. svo komst ég að því að flest þeirra eru að nota ágóðan í að fara í ferðir
til guatemala sem á að vera rosa­lega heil­agur staður og mest af kakó­inu kemur þaðan.
Til að vera meira fucked up á kakói en setja það í and­legt ferða­lag bún­ing. mér finnst svosem ekk­ert að því að fólk sé að lifa líf­inu og hafa gaman og finni leiðir til að fjár­magna það á eigin vegum.

Bara soldið kald­hæðið þar sem þetta lið gefur sig út fyrir að vera rosa spi­ritual og vilja hjálpa öðru liði en bara ef að liðið á pen­inga og er síðan bara nota ágóðan undir rass­gatið á sjálfu sér og lætur svosem ekk­ert gott af sér leiða til sam­fé­lags­inns. Mörg þeirra eru til dæmis ekk­ert að vinna og bara með svartar tekjur af svona kakó braski. Ég alla­vega er ennþá alveg jafn geð­veikur þótt að ég hafi farið á þónokkra svona við­burði. En auð­vitað geri ég mér grein fyrir að maður þarf að ástunda hluti svo þeir virki en þetta er bara ekki minn tebolli.. eða kakó­bolli í þessu til­felli. En ég er bara að tala fyrir mig það getur vel verið að þetta sé að hjálpa fullt af fólki.

Allavega voru hipp­arnir ekk­ert nema ástin og frið­ur­inn útúr­bla­staðir á LSD. Ekki það að ég sé að setja þetta í eitt­hvað sam­hengi. En samt. Og ég er ekki að setja út á hipp­ana né kakóliðið. Ef ein­hverjum líður betur við þessar neyslu­venjur er það bara gott og blessað í mínum augum. Við erum öll bara að leit­ast eftir því að líða vel er það ekki.. og það eru alltaf ein­hverjir sem telja sig vita leið­inna að vellíðan og reyna að selja öðrum þá hug­mynd. Þannig hefur það alltaf verið. Flestir geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi.

En þegar uppi er staðið hafa flestir ekki hug­mynd um hvað í and­skot­anum er í gangi í þess­ari als­herjar geð­veiki. Sem við köllum dag­legt líf. Ég er alveg þar, hef ekki ennþá fundið hóp, hug­mynda­fræði eða efni sem hentar mér. Tja nema þá concerta og flu­ox­etin þau lyf björg­uðu lífi mínu. Og líka vinna (sam­tals­með­ferð) með mennt­uðum aðilum sem hafa þekk­ingu til að leið­beina fólki í vernd­uðu umhverfi. Og að reyna halda uppi góðum venjum og hugsa vel um mig og aðra. En hef samt alveg prófað als­konar og er opinn fyrir nýj­ungum.

Leitinni heldur áfram þar sem þján­ingin lifir áfram í okkur flestum. Ætli ég verði ekki bara lone wolf áfram þar sem mér er byrjað að kunna ágæt­lega við sjálfan mig og hef minni þörf til að til­heyra ein­hverjum hóp öðrum enn hópnum inní hausnum á mér.. alltaf stemmari þar.

Þangað til eitt­hvað annað kemur í ljós eða inná borð til mín. En ekki mis­kilja mig ég er ekki að segja að allt sem ég hef prófað virki ekki það hefur allt gefið mér ein­hvers­konar þroska og kennt mér eitt og annað á ein­hvern hátt um sjálfan mig, aðra og lífið og hef ég fengið margt að láni héðan og þaðan úr þessum and­lega frum­skógi.

Það er ein­hver sann­leikur í þessu öllu en ekk­ert af þessu er heil­agur sann­leikur.
Algör­lega mín skoðun. Hvað ferð­ina varðar þá tel ég það mjög óábyrgt og áhyggju­efni að smala saman vel rúm­lega 20 manns (sem eru í mis­jöfnu ástandi and­lega og til­finn­inga­lega og mörg hver með und­ir­liggj­andi geð­sjúk­dóma og sögu um fíkni­vanda (ég t.d.)).

Og dæla í það örvandi efnum og þrýsta á það að tala um erf­iða hluti. Og að sem virð­ist bara einn ein­stak­lingur sem sér um að halda utan um hóp­inn og alla þá sál­fræði­legu aðstoð sem hann telur hóp­inn þurfa og guð einn veit hvort að þessum aðila sé treystandi fyrir því verk­efni. Ég er nokkuð viss um að svo sé ekki. Og neitar síðan að taka ábyrgð á hópnum og afleið­ingum af því sem hann lætur hóp­inn gera. Þetta er eld­fimur kok­teill að mínu mati.
og flestir í hópnum það brotnir að þeir lepja allt upp eftir honum. Vilja nátt­úru­lega fá lausn sinna mála eins og þeim var lofað.

Mér fannst líka áhyggju­efni að þegar ég var að nefna það við hann að mér finnd­ist það vera á ábyrgð stjórn­enda að ef ein­hver í hópnum væri með efni sem ekki var tekið fram í ferða­lýs­ing­unni að yrði á staðnum að upp­lýsa alla um efnið og áhrif þess. Hann hélt nú ekki.

Sagði að við værum full­orðið fólk og gætum tekið ábyrgð á okkur sjálf. Þá spurði ég hann að hann myndi líta eins á það ef ein­hver kæmi með jónu t.d. Hann svar­aði í hroka að sagði að þetta væri ekki AA ferð (AA eru sam­tök af fólki sem er að halda sér edrú) og voru ein­hverjir í hópnum í þeim sam­tökum.

Hann sagði enn­fremur að það væru dæmi um að fólk hefði notað sveppi á svona retr­eatum eins og það væri eitt­hvað kúl (ekki hjá honum samt) en mér finnst þetta mjög óábyrgt tal hjá manni með hóp af fólki sem mörg hver eiga sögu um fíkni­vanda. Plús það að vera dæla í það örvandi efnum sem eru ávan­bind­andi. Ég læt fylgja skjá­skot af sam­tali mínu við hann. Fólk getur dæmt sjálft. Þetta er mín skoðun. Ég var búinn að láta hann vita að ég myndi tala gegn þessu og það væri ekk­ert per­sónu­legt. Mér finnst vanta fleiri hliðar á þetta mál. Það kæmi mér svosem ekk­ert á óvart að hann væri að nota þessi retr­eat til að búa til kúnna­hóp.

Að mér vit­andi er þetta eina vinnan hans. Að selja kakó og halda retr­eat það er að segja.
Ég alla­vega er ekk­ert betur sett­ari eftir þetta. jújú það var margt gott við þessa ferð. Margar góðar minn­ingar en það sem útaf bar (að mínu mati) vegur bara svo miklu þyngra.
Svo hins­vegar getur vel verið að þetta sé að hjálpa mörgum og margir hafa góða reynslu af þessu, kannski er ég bara í ein­hverjum grumpy old man ham og kannski bara sá eini sem hef þessa skoðun og upp­lifði þetta svona en samt sem áður á mín skoðun rétt á sér líkt og
sú skoðun að kakó sé fæða frá guð­unum og eitt­hvað mambó jambó. Og sú skoðun að þessi aðferð­ar­fræði í sjálfs­vinnu áhættu­laus.

Mér fannst ég knú­inn til að koma þessu frá mér því kannski er ein­hver þarna úti í svip­uðum sporum og ég og þarf að heyra þetta svo hann þurfi ekki að brenna sig eins og ég. Og vill ég líka hvetja fólk í að kynna sér allt ýtar­lega og mynda sína eigin skoðun á við­fangs­efn­inu en ekki bara trúa blint á eitt­hvað sem fólk er að selja manni. Úlfurinn getur alveg klætt sig í ömmu­föt og sann­fært fólk um að hann sé krútt­leg amma og étið það síðan þegar hann er búinn að vinna sér inn traust þeirra. Þessi mynd­lík­ing var feng­inn að láni úr ævin­týri sem ein­hverjir þekkja kannski. Ég geri mér líka grein fyrir að þessi færsla á mögu­lega eftir að vera umdeild en við getum ekki öll vera sam­mála um allt er það?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð