Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þetta er fólkið sem vill láta sparka börnunum úr landi – Nýir bandamenn Katrínar

Þetta er fólkið sem vill láta sparka börnunum úr landi – Nýir bandamenn Katrínar

Hjónin Ibrahim og Dooa hafa dvalið á Íslandi í rúm tvö ár ásamt börnum sínum fjórum. Árið 2018 sóttu þau um hæli hér­lendis á þeim for­sendum að þau sæti ofsóknum vegna þátt­töku Ibrahim  í póli­tísku starfi í heima­landi þeirra.  Umsókn fjöl­skyld­unnar um hæli hér á landi var hafnað. Stór hluti þjóð­ar­innar hefur gagn­rýnt fyr­ir­hug­aða brott­vikn­ingu harð­lega. Í þeim hópi er meðal ann­ars starfs­fólk grunn­skól­ans þar sem eitt barn­anna er í námi. Þá sagði lög­maður fjöl­skyld­unnar, Magnús Davíð Norðdahl, eftir að í ljós kom að rík­is­stjórnin ákvað að henda fjöl­skyld­unni úr landi:

„Ég er yfir­bug­aður af sorg og reiði í garð kerf­is­ins og stjórn­mála­manna.“

Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og þjóð­fé­lags­rýnir hefur gagn­rýnt Katrínu Jak­obs­dóttur og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur. Hall­grímur skrif­aði á Facebook:

„Það er ekki hægt að horfa á barn sem segir á íslensku: „Ég vil vera á Íslandi!“ og svara því nei, burt með þig.“

Er þetta nokkuð lýsandi fyrir þau sem vilja veita börn­unum dval­ar­leyfi á Íslandi. Þau hafi verið hér í tvö ár og lært málið og aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi. En það er annar hópur sem vill sparka börn­unum úr landi og sá hópur er nokkuð hávær og fyr­ir­ferð­ar­mik­ill á sam­fé­lags­miðlum. Hvaða fólk er það? Nánar er fjallað um þá ein­stak­linga hér fyrir neðan.

Staðan núna

Egypska Kahdr-fjölk­skyldan er í felum. Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur ekki hug­mynd um hvar hún er stað­sett í ver­öld­inni. Vinur fjöl­skyld­unnar segj­ast ekki hafa náð sam­bandi við fjöl­skyld­una frá því á þriðju­dag þegar skynd­lega var slökkt var á far­síma þeirra. Lögmaður fjöl­skyld­unnar hefur sömu sögu að segja.

Snemma á mið­viku­dags­morgun átti að sækja Kehdr-fjöl­skyld­una á Ásbrú. Flug­vélin sem fjöl­skyldan átti að fara með til Amster­dam fór í loftið án þeirra. Ekki var því unnt að vísa Khedr-fjöl­skyld­unni úr landi líkt og til stóð. Fjöl­skyldan var ekki á staðnum þar sem stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, SR-sveitin, hugð­ist sækja hana og fylgja úr landi. Ekki er vitað um dval­ar­stað fjöl­skyld­unnar.

Cry me a river

Erna Ýr Öldu­dóttir er einna helst þekkt fyrir rót­tækar hægri­skoð­anir. Hún virð­ist hafa litla samúð með fjöl­skyld­unni og skrifar á Facebook:

„Við­bjóðs­legt til­finn­inga­fyll­erí út af fjöl­skyldu sem er á leið­inni heim til sín, eftir tveggja ára uppi­hald á kostnað skatt­greið­enda. Cry me a river þó að ein fjöl­skylda flytj­ist á milli landa! En fólk er amk. ekki að gagn­rýna alræð­istil­burði stjórn­valda og covid-lygarnar á meðan það getur rif­ist um þessar ekki-fréttir.“

Kristjón Bene­dikts­son hefur í nokkur skipti ratað í fjöl­miðla fyrir að munn­höggvast við stjórn­mála­konur. Hann skrifar færslu um málið sem hlýtur að telj­ast óvenju­grimm:

„Fagna ber með þessum börnum í dag. Nú fá þau að komazt til síns fal­lega heima­lands Egypta­lands og hitta ömmur og afa og aðra ætt­ingja. Nú er skamm­degi framundan á Íslandi, nú njóta þau sólar og blíðu í landi sinna ætt­ingja. Stór­fjöl­skyldan heldur saman í Egypta­landi. Ætt­ingjar hugsa um sína…”

Safnari vill þau burt

Sumir skrifa minna. Jónas James Norris er ef til vill ekki þjóð­þekktur en er dæmi um Íslend­ing sem hefur enga samúð með fjöl­skyld­unni. Hann er einna þekkt­astur fyrir að hafa verið ítrekað gómaður með byssur, sverð og dóp á heim­ili sínu. Hann skrifar í athuga­semd við frétt um málið:

„Góða ferð og komið aldrei aftur.“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­pró­fessor liggur ekki skoð­unum sínum. Hann gefur sterk­lega í skyn að fjöl­skyldu­fað­ir­inn sé öfga­maður. Hannes skrifar á Facebook:

„Við eigum að gegna öllum okkar skyldum sam­kvæmt alþjóða­samn­ingum, en okkur ber ekki að taka á móti þremur hópum, brota­mönnum, bóta­þegum og trú­ar­of­stæk­is­mönnum eins og föð­urnum í egyp­sku fjöl­skyld­unni, sem er í Múslim­ska bræðra­lag­inu og hreyk­inn af því. Það er aug­ljós fyr­ir­sláttur, að honum sé ógnað í Egypta­landi”

Kallar föðurinn hryðjuverkamann

Guð­finnur Stefán Hall­dórs­son, Guffi bíla­sali, er í ham vegna máls­ins og er síða hans á Facebook þakin umræðu um fjöl­skyld­una. Hann skrifar:

„Aftur og aftur hljómar – ,,Egypta­land er ekki öruggt land“ Þetta er rangt. Egypta­land er öruggt land fyrir aðra en með­limi múslim­ska bræðra­lags­ins. Þeir skil­greina þá sem hryðju­verka­menn. Samkvæmt þeirri skil­grein­ingu er Egyptinn sem hér hefur dvalið hryðju­verka­maður. Nú ætla ég ekki að fella dóm um það en þetta síend­ur­tekna tal um óör­yggi og aðstæður í Egypta­landi er hrein­lega rangt. Er það okkar hlut­verk að veita með­limum í skil­greindum hryðju­verka­sam­tökum vernd og land­vist?“

Páll ósáttur

Svo má nefna Pál Vil­hjálms­son, kenn­ara við Fjöl­brauta­skól­ann í Garðabæ, en yfir­leitt er hann með skoð­anir sem eru á skjön við marga. Hann skrif­aði á bloggi sitt á dög­unum:

„Egyptinn sem kom hingað með fjöl­skyldu sína lýsir stoltur yfir því að hann til­heyri Bræðra­lagi múslima. Samtökin eru við­ur­kennd öfga­sam­tök, áhöld eru um hvort þau séu hryðju­verka­sam­tök.“

Býr á Spáni og vill þau burt

Á Stjórn­mála­spjall­inu á Facebook fara menn mik­inn vegna máls­ins. Sumir eru veru­lega reiðir yfir því að fjöl­skyldan finn­ist ekki. Maður að nafni Ásgeir Ásgeirs­son, búsettur á Spáni, skrifar til að mynda:

„Byrja að leita heima hjá, Frú Biskup og með­reið­ar­sveinum hennar t.d. í Laug­ar­nes­kirkju stinga þeim inn á Litla­hraun eða á Hólms­heið­ina þegar þau eru fundin. Þessi gjörn­ingur er algjört grín og yfir­völdum til skammar. „Skammist ykkar“ hefði Soffía frænka í Kar­demómu­bænum sagt við Jesper, Kasper og Jónatan. Í þessu til­viki er það: Rík­is­lög­reglu­stjóri, Útlend­inga­eft­ir­litið og Dóms­mála­ráð­herra. Jæja ég ætla að líta á strönd­ina og labba í fjöru­borð­inu, já og að eitt­hvað gott að borða síð­degis.“

Margrét söm við sig

Talandi um Stjórn­mála­spjallið þá ætti það ekki að koma neinum á óvart að stjórn­andi þess, Margrét Frið­riks­dóttir, vilji fjöl­skyld­una burt. Hún deilir frétt um að Sema Erla Serdar, stofn­andi Solaris hjálp­ar­sam­tökum fyrir hæl­is­leit­endur, hafi afhent ráð­herra und­ir­skriftir þeirra sem standa með fjöl­skyld­unni. Hún skrifar svo:

„Sema Erla stjórnar ekki þessu landi með múgæs­ing og upp­nefn­ingum eins og henni er lagið.”

Jón Magnússon fer mikinn

Jón Magn­ús­son, Hæsta­rétt­ar­lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður hefur hvað eftir annað tjáð sig um fyr­ir­hug­aða brott­vísun. Jón hefur bæði skrifað pistla og tjáð sig á Facebook. Jón segir:

„Skyldi Agnes biskup haf við­búnað núna í Laug­ar­nes­kirkju til verndar Múslim­ska bræðra­lag­inu eins og um árið?“

Þá segir Jón enn fremur:

„Stað­reyndin er sú, að það er ekk­ert sem afsakar það að egyp­sku fjöl­skyld­unni verði ekki vísað úr landi þegar í stað. Verði það ekki gert yrði það hins­vegar til ámælis fyrir rík­is­stjórn­ina og mundi leiða til þess, að fleiri úr múslim­ska bræðra­lag­inu reyndu að kom­ast til lands­ins. Væri það til góðs fyrir land og þjóð?“

Þá segir Jón á öðrum stað:

„Mál egyp­sku fjöl­skyld­unnar var end­an­lega afgreitt í byrjun nóv­em­ber 2019. Síðan eru liðnir tíu og hálfur mán­uður, sem er alfarið á þeirra ábyrgð. Eiga ólög­legir inn­flytj­endur að vinna rétt með því að óhlýðn­ast  fyr­ir­mælum yfir­valda?“

Fjöl­margir kunna að meta skrif Hæsta­rétt­ar­lög­manns­ins en þau sem hafa líkað við mál­flutn­ing einu sinni eða oftar eru:

Gylfa Ægisson tón­list­ar­maður, Gunn­laugur Ingv­ars­son fyrr­ver­andi for­maður Þjóð­fylk­ing­ar­innar, Kristinn Hugason, Gústaf Níelsson, Hallur Hallsson, Júlíus Hafstein fyrr­ver­andi sendi­herra og Sjálf­stæð­is­maður, Páll Bragi Krist­jóns­son fyrr­ver­andi bóka­út­gef­andi og Guð­mundur St. Ragn­ars­son lög­maður.

Gústaf lætur í sér heyra

Gústaf Adolf Níelsson sagn­fræð­ingur hefur ítrekað tjáð sig um brott­vís­un­ina. Hann segir m.a:

„Nú er okkar maður stein­hissa. Það er engu líka en að Geir og Grani stjórni orðið lög­regl­unni. Blessað fólkið bara gufar upp dag­inn sem það á að yfir­gefa landið og hafði þó verið í mótefna­mæl­ingu við Covid 19 deg­inum áður. Datt engum í hug að eft­ir­lit þyrfti með fólk­inu fram að brott­vísun?

Stjórn­völd, sem geta ekki fram­fylgt eigin ákvörð­unum eru í vondum málum. Skyldi dóms­mála­ráð­herr­ann vera búin að hringja í rík­is­lög­reglu­stjór­ann?“

Sjálfstæðismaður tjáir sig

Bjarni Kjart­ans­son, lengi við­loð­andi Sjálf­stæð­is­flokk­inn og fyrr­ver­andi yfir­maður í Sund­höll­inni í Reykja­vík og Laug­ar­dals­laug tjáir sig undir þræði Gústafs og segir:

„Rík­is­lög­reglu­stóri ætti að segja af sér sam­stundis.“

Gylfi með kunnuglegan söng

Gylfi Ægisson hefur þetta að segja undir þræði Gústafs:

„Agnes bað svo heitt fyrir múslima fjöl­skyld­unni að hún gufaði upp!

Á fjóra fætur Agnes fór

Allah bað að redda sèr

Bænin var svo sterk og stór

að stór­fjöl­skyldan horfin er“

Gylfi Ægisson deilir svo á eigin síðu frétt um að Agnes biskup vilji að fjöl­skyldan fái dval­ar­leyfi. Gylfi segir:

„Guð bæn­heyrir ekki Agnesi! Hún gerði lítið úr syni hans Jesú Krist Konungi Kon­ung­anna!

Agnes veit allt um það en hún er múslima­sleikja og henni er alveg sama um um ofsóknir á kristnum fólki!“

Gústaf styður Pál Vilhjálmsson

Þá lýsir Gústaf Níelsson einnig yfir stuðn­ingi við skrif Páls Vil­hjálms­sonar. Gústaf segir á öðrum stað:

„Það kemur annar bráðum, ef hann er ekki kom­inn inn í landið nú þegar með barna­byng­inn í eft­ir­dragi og kúg­aða kerl­ingu.“

Reynir Eyj­ólfs­son, doktor í lyfja­fræði segir:

„Burt með þetta afætu­lið sem fyrst.“

Jónas Smári Hrólfs­son leigu­bíl­stjóri hefur eft­ir­far­andi til mál­anna að leggja

„Auðvitað á að vísa honum úr landi alltof mikil með­virkni hérna og bara verið að fylgja reglum en það skilur vinstri hliðin ekki.“

Þau sem kunna að meta mál­flutn­ing Gústafs eru meðal ann­ars:

Margrét Frið­riks­dóttir, Páll Bragi Krist­jóns­son fyrr­ver­andi for­stjóri Eddu útgáfu, Hallur Hallsson fyrr­ver­andi frétta­maður, Heimir Lárus Fjeld­sted og Ragnar Guð­munds­son sem rak Hótel Adam við heldur rýran orð­s­týr. Þá má þar einnig finna Pál Stein­gríms­son skip­stjóra Samherja, Svanberg Guð­munds­son sölu­manns Húsa­smiðj­unnar, Magnús Björn Magn­ús­son starfs­mann Icelandair en hann hefur deilt skrifum Jóns Magn­ús­sonar.

Baldur tekur þátt

Þá er þar einnig að finna Baldur Her­mann­son sem áminntur var af skóla­stjórn Flens­borg­ar­skóla fyrir ummæli sem hann lét falla á blogg­síðu sinni árið 2011. Baldur tjáir sig á Facebook um Semu Erlu Serdar og um málið:

„Þvílík herj­ans vit­leysa sem vellur upp úr þess­ari konu alla daga, eins og börn hafi nú eitt­hvað vont af því að ferð­ast milli staða eða snúa til heim­kynna sinna … hvað með öll íslensku börnin …“

Fyrr­ver­andi blaða­maður Viljans og útvarps­kona á Útvarpi Sögu, Erna Ýr Öldu­dóttir er einnig í stuðn­ings­hópi Gústafs Níels­sonar sem og Sig­ur­freyr Jónasson.

Hjörtur Aðal­steins­son sem titlar sig hús­vörð í Lang­holts­skóla segir:

„Og okkar frá­bæri dóms­mála­ráð­herra Áslaug stendur í fæt­urnar og lætur ekki beygja sig.“

Kristinn Hugason, fyrr­ver­andi starfs­maður land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins og for­stöðu­maður sögu­set­urs íslenska hests­ins:

„Frábært að dóms­mála­ráð­herra taki loks af skarið, nóg er opin­gáttin í útlend­inga­mál­unum eigi að síður.“

Kristinn er greini­lega hæstá­nægður með eigin skrif, því hann líkar við þau sjálfur. Aðrir í þeim hópi eru Páll Stein­gríms­son, Jón Ragnar Rík­harðs­son, Jón Magn­ús­son lög­maður. Bjarni Th. Bjarna­son fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Dal­vík­ur­byggðar og for­maður Skíða­sam­bands Íslands lýsir sig einnig ánægðan með þetta inn­legg for­stöðu­manns­ins.

Faðir dómsmálaráðherra ánægður

Sig­ur­björn Magn­ús­son lög­maður og og faðir Áslaugar Örnu dóms­mála­ráð­herra kann einnig að meta skrif Kristins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð