Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Katrín vill taka á móti fleirum á flótta – En samt ekki egypsku fjölskylduna

Katrín vill taka á móti fleirum á flótta – En samt ekki egypsku fjölskylduna
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra birtir á Facebook-síðu sinni nokk­urs konar varn­ar­ræðu hvað varðar mál egyp­sku fjöl­skyld­unnar. Hún segir VG vilja taka á móti fleiri flótta­fólki, en samt ekki taka á móti egyp­sku fjöl­skyld­una. Hún birtir svo súlu­rit. Óhætt er að segja að allt sé á suðu­punkti innan flokks og ekki víst að töl­fræði lægi þær öldur.

Katrín skrifar meðal ann­ars: „Við í Vinstri­hreyf­ing­unni – grænu fram­boði leggjum áherslu á að taka á móti fleira fólki á flótta og er það mark­mið sett fram í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar. Um þessi mál er sjaldan fjallað nema þegar ein­stök mál eru rædd. En mik­il­vægt er að skoða hver þró­unin hefur verið á und­an­förnum árum þegar rætt er um stefnu stjórn­valda í þessum efnum.“

Hér fyrir neðan má lesa færslu hennar í heild sinni og sjá súluritið

Fjöldi fólks á flótta á heims­vísu hefur meira en tvö­fald­ast á tíu árum og því hefur fylgt mikið umrót hvar­vetna þegar kemur að mál­efnum þeirra. Frammi fyrir jafn risa­vöxnum áskor­unum og lofts­lags­vánni og fjölgun fólks á flótta (sem ekki eru ótengd mál­efni) er auð­velt að fyll­ast van­mátt­ar­til­finn­ingu en það hjálpar okkur ekki neitt. Það eina sem hægt er að gera er að halda áfram, skref fyrir skref að stefna í rétta átt.

Ursula Von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði frá því í gær að ráð­ist yrði í breyt­ingar á hæl­is­kerfi sam­bands­ins, m.a. með því að afnema Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina og inn­leiða í stað hennar nýtt sam­evr­ópskt mót­töku­kerfi fyrir flótta­fólk. Ursula kall­aði eftir því að Evrópa ynni saman að því að bregð­ast við flótta­manna­vand­anum. Það er mik­il­vægt að taka eigi þetta kerfi til end­ur­skoð­unar og von­andi næst sam­staða um breyt­ingar sem munu bæta stöðu fólks á flótta og þar mun Ísland leggja sitt af mörkum.

Við í Vinstri­hreyf­ing­unni – grænu fram­boði leggjum áherslu á að taka á móti fleira fólki á flótta og er það mark­mið sett fram í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar. Um þessi mál er sjaldan fjallað nema þegar ein­stök mál eru rædd. En mik­il­vægt er að skoða hver þró­unin hefur verið á und­an­förnum árum þegar rætt er um stefnu stjórn­valda í þessum efnum.

Af málum sem er lokið á þessu ári hjá þeim sem sótt hafa um vernd, við­bót­ar­vernd eða mann­úð­ar­leyfi hafa rúm 60% umsókna verið sam­þykkt. Það eru 368 ein­stak­lingar, fjöl­skyldur og börn sem hafa hlotið vernd hér á þessu ári. Ef ein­göngu er horft til þeirra mála sem hafa fengið efn­is­með­ferð þá hafa 79% umsókna verið sam­þykkt. Umsóknum hefur fjölgað mjög á und­an­förnum árum en 2019 var fékkst nið­ur­staða í 1123 málum. Í fyrra fengu 376 ein­stak­lingar vernd, við­bót­ar­vernd eða mann­úð­ar­leyfi sem var 33% afgreiddra umsókna sam­an­borið við 10% árið 2017.

Þar með er þó ekki öll sagan sögð en þessi töl­fræði á ein­ungis við um mál sem lokið er hjá Útlend­inga­stofnun. Mál sem fara á borð kæru­nefndar útlend­inga­mála eru því ekki hér með­talin, en með þeim hækkar fjöldi þeirra sem hlotið hafa vernd tölu­vert. Til að mynda hlaut 531 ein­stak­lingur alþjóð­lega vernd hér á landi í fyrra þegar horft er bæði á mál hjá Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd­inni.

Þessi mál snú­ast auð­vitað um fólk og því verðum við að gæta þess að láta umræð­una ekki snú­ast um tölur á blaði. Þessar tölur geta þó sagt okkur hvort við séu á réttri leið, hvort að þau skref sem við höfum tekið séu að skila árangri fyrir fólk. Hvort við séum að taka á móti fleira fólki á flótta eins og við ein­settum okkur þegar stjórn­ar­sátt­mál­inn var settur saman á árinu 2017.

Tölu­verðar breyt­ingar hafa orðið á bæði reglu­verk­inu og fram­kvæmd þess hér á Íslandi síð­ast­liðin ár, meðal ann­ars með nýjum þverpóli­tískum útlend­inga­lögum sem sam­þykkt voru 2016. Þó að fram­kvæmdin hafi batnað er eigi að síður nauð­syn­legt að hún sæti sífelldri end­ur­skoðun. Umræða síð­ustu daga sýnir að ríkur vilji er í sam­fé­lag­inu til að gera betur í þessum málum og það er verk­efnið fram undan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð