Samtökin Pepp Ísland, grasrót fólks í fátækt, hafa boðað til mótmæla á morgun við þingsetningu Alþingis. Samtökin segja það ólíðandi að landsmenn þurfi að leita til hjálpastofnanna til verða sér út um mat. Samtökin ítreka að sóttvarnareglum verði þó fylgt til hins ýtrasta.
Í lýsingu á viðburðinum á Facebook er markmiði mótmælanna lýst svo:
„Boðað er til samstöðu á Austurvelli við þingsetningu Alþingis fimmtudaginn 1. október, samstöðu sem er þá nokkurskonar þögul mótmæli á vegum fólks í fátækt til að minna á að enn bíðum við eftir kjarabót Katrínar forsætisráðherra okkur til handa. Hversu lengi á fólk í fátækt, fatlaðir og langveikir að búa við óviðunandi kjör og þurfa að leita til hjálparstofnana sér til aðstoðar, sem þó dugir skammt?“
Samtökin segja skömm af þessu. „Fólk úr þessum hópi situr uppi með skömmina yfir fátækt og erfiðum aðstæðum sínum, aðstæðum sem að það bjó ekki sjálft til og kemst ekki sjálft úr. Það er þó engin skömm að því að lifa í fátækt. Skömmin er öll stjórnvalda – því skilum við skömminni þangað sem hún á heima. Til þeirra sem valdið hafa og taka sínar pólitísku ákvarðanir án þess að gæta að hvern þær skaða. Því segjum við – Komum úr felum – mættu með okkur á Austurvöll á fimmtudaginn – sýnum Alþingi og ríkisstjórninni að við erum hérna – að við erum afl sem er ekki hægt að horfa framhjá lengur!“































Athugasemdir