Þórir S. Gröndal, fyrrverandi fisksali og ræðismaður í Ameríku, segir það einstök forréttindi að eldast og deyja á Íslandi. Hvergi sé þeim látnu sýnd eins mikil virðing og hér á landi.
Þetta segir Þórir í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Það sé einmitt þar sem virtir borgarar landsins fái frétt um andlát sitt. „Jafnvel þótt ég hafi ekki orðið gamall og dáið á Íslandi held ég að hvergi sé betra að verða gamall og deyja. Ég hefi séð í fréttum að samtök aldraðra kvarta sífellt yfir lélegum kjörum síns fólks og ætla ég ekki að blanda mér í þau mál. Og þá tek ég ekki mark á þruglinu í þingmönnunum um aldursfordóma. Ég þekki náttúrlega ekki til þessara mála í allt of mörgum löndum, en held samt að erfitt sé að finna önnur þjóðfélög en hið íslenska sem gera hin gullnu ár þegna sinna eins þægileg og eðlileg og hægt er og kveðja þá síðan með virðingu eftir lífshlaupið,“ segir Þórir og bætir við:
„Þekktir borgarar fá frétt í Mogganum um andlátið, en flestir þurfa að láta sér nægja dánartilkynningu í blaðinu frá ættingjum. Svo kemur jarðarförin og þá birtast minningargreinarnar. Mogginn innheimtir ekki peninga fyrir þær en takmarkar þó lengd þeirra. Oft á tíðum, þegar margir hafa fallið frá, fylla þær margar blaðsíður. Þegar jarðarförinni er lokið setja aðstandendur þakkartilkynningu í blaðið og þar með lýkur ferlinu. Bara sorgin og söknuðurinn eftir. Nú á dögum er fólk ekki að skera við nögl og spara orðin. Það var öðruvísi fyrr á árum þegar fátæktin var landlæg. Þá birtust margar kostulegar tilkynningar og fræg var sagan af Gunnu á Hóli sem sló tvær flugur í einu höggi með dánartilkynningunni um hann Jón sinn: Jón Jónsson harmónikkuleikari dó í gær. Jarðarför á föstudag klukkan eitt frá Fríkirkjunni og þar verður líka harmónikka til sölu.“
„Erfitt er að finna önnur þjóðfélög en hið íslenska sem gera hin gullnu ár þegna sinna eins þægileg og eðlileg og hægt er og kveðja þá síðan með virðingu eftir lífshlaupið.“
Þórir hefur verið lengi búsettur í Bandaríkjunum og þar finnst honum dánarmenningin alls ekki eins flott og á Íslandi. „Það verður að borga fyrir hvert orð og langar greinar geta kostað hundruð dollara. Margir birta aðeins tilkynningu um látið og þá eru notuð eins fá orð og hægt er. Jafnvel Gunna á Hóli hefði verið hrifin af sumum. Í greinunum í Mogga er oftast fjallað um forfeður og afkomendur hinna framliðnu. Nýlega var skrifað ítarlega um níræða konu sem lagt hafði upp laupana. Hún var mjög vel gefin og hafði lokið embættisprófum í bæði byggingarlist og lögfræði. Hún stundaði líka píanóleik og um árabil hélt hún opinbera tónleika. Svo lærði hún flug og eignaðist sína eigin flugvél. Hún var prófessor í byggingarlist við háskóla í Atlanta og stundaði lögfræðistörf í frístundum. Var hún í stjórn sinfóníunnar og óperunnar og hafði þar að auki gefið út þrjár skáldsögur. Einnig var hún mikill bridsspilari og keppti á mörgum mótum. Hún ferðaðist mikið og heimótti allar heimsálfurnar nema Suðurskautslandið. Hún var tvígift og hafði eignast fjögur börn. Eftir þennan lestur sótti að mér svimi,“ segir Þórir sem er líka svo ánægður með hversu vel útfarrastjórum tekst að láta hina látnu líta vel út í kistum sínum.
„Það er mjög algengt hér að hinn framliðni sé kvaddur af vinum og vandamönnum. Þá er auglýstur tími sem fólk getur komið á jarðarfarastofnun og þar stendur uppi opin líkkistan með hinn látna til sýnis. Útfararstjórarnir eru búnir að snyrta og snurfusa líkið og klæða það í sparifötin. Ég man hvað mér brá að sjá framliðna samstarfskonu í hennar kistu. Í lifanda lífi var hún mjög grönn, næstum kinnfiskasogin, og dálítið hrukkótt. Nú var andlitið slétt og kinnar búlduleitar og rjóðar. Konan hafði ekki litið svona vel út í áratugi,“ segir Þórir.































Athugasemdir