Gullleitarmaðurinn Eldur Ólafsson auglýsir eftir liðsauka í leitarverkefni á Grænlandi. Hann er framkvæmdastjóri Alopex Gold sem stefnir á það á næsta ári að grafa upp gull úr grænlenskum námum.
Leitarverkefni Elds er talið ljósið í myrkrinu á erfiðum tímum í efnahagslífi Grænlands. Fyrirtæki hans auglýsir nú eftir starfskröftum til að taka þátt í þessu spennandi námuverkefni.
Alopex Gold námufyrirtækið var skráð á markað í kauphöll Lundúna. Rannsóknir hjá fyrirtækinu gang vel og vonir standa til að gull verði grafið upp úr Nalunaq-námunum á næsta ári samkvæmt fyrirtækinu. Ef þú vilt taka þátt í gullleitarævintýrinu þá er auglýst eftir liðsauka hér.
Sjálfur er Eldur aðeins 34 ára gamall en hann bæði stýrir fyrirtækinu og á í því góðan eignarhlut. Hann er jarðfræðingur að mennt.































Athugasemdir