Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óskar um sáran sonarmissi: „Gat ekki beðið um að slökkt yrði á tækjunum“

Óskar um sáran sonarmissi: „Gat ekki beðið um að slökkt yrði á tækjunum“

Óskar Sól­mund­ar­son bíl­stjóri missti son sinn, Kristinn Veigar, aðeins fjög­urra ára gamlan. Ekið var á litla dreng­inn við heim­ili hans í Keflavík. Þau for­eldr­arnir þurftu að taka þá hræði­legu ákvörðun að slökkva á tæk­unum sem héldu syn­inum á lífi.

Óskar ræðir son­ar­miss­inn í við­tali við Frétta­blaðið í dag. Þar á hann erfitt með að lýsa til­finn­ing­unum hvernig það er að missa son. Hann segir það ómögu­legt. „Þetta er eitt­hvað sem er ekki til í huga manns og eng­inn á að þurfa að hugsa,“ segir Óskar.

Það var 30. nóv­em­ber 2007 sem ekið var á Kristinn fyrir utan heim­ili hans í Keflavík. Litli dreng­ur­inn hafði þá hlaupið á milli kyrr­stæðra bíla og út á göt­una þar sem hann varð fyrir bíl. Sjúkra­bíll­inn var fljótur á vett­vang og tím­inn sem leið þar til Óskar fékk að sjá son sinn með­vit­und­ar­lausan var eins og heil eilífð. „Mér finnst sem sú bið hafi verið margar klukku­stundir en lík­lega var þetta hálf­tími eða klukku­tími þar til við fengum að sjá barnið. Óvissan var algjör. Við vorum svo færð inn á gjör­gæslu þar sem við fengum að sjá hann. Þar lá hann í sjúkra­rúmi í önd­un­ar­vél. Við sáum að hann and­aði og hjartað sló, það sá ekk­ert á and­liti hans sem er ótrú­legt eftir þetta allt saman,“ rifjar Óskar upp.

„Hugsunin um að barnið manns sé kannski að fara að deyja kemur aldrei upp“

Þegar hér er komið við sögur eru for­eldr­arnir nokkuð bjart­sýnir á fram­haldið. Óskar segir að hugs­unin um að barnið sitt væri að fara að deyja aldrei komið upp. „Ég hugsa að það komi aldrei upp í huga for­eldris í þessum aðstæðum. Við vorum bara að berj­ast með honum og hringja í for­eldra okkar og ætt­ingja og láta vita hvað gerst hafði. Okkur var sagt að það eina sem við gætum gert væri að bíða enda hefðu miklar bólgur mynd­ast við heila,“ segir Óskar og heldur áfram:

Kristinn Veigar var aðeins fjög­urra ára þegar hann lést. Blessuð sé minn­ing hans.

„Þegar nóttin kom var útbúin aðstaða fyrir okkur Önnu að gista sitt hvorum megin við hann. Maður svaf auð­vitað ekk­ert heldur dott­aði bara aðeins. Svo um hálf fjögur um nótt­ina fara öll tækin sem hann var tengdur við að pípa og stofan fyllist af hjúkr­un­ar­liði. Þau ná honum aftur niður og allt er með kyrrum kjörum. Manni var gríð­ar­lega létt en átt­aði sig illa á stöð­unni og eftir á að hyggja held ég að hann hafi dáið þarna. Vélarnar voru látnar halda í honum lífi. Ég held að þetta sé oft gert, fyrir for­eld­rana, svo þau fái að berj­ast með barn­inu sínu og gef­ist smá tími.“

„Þá var hann að segja við okkur að barnið okkar væri dáið“

Snemma dag­inn eftir var farið með Kristinn, ungan son Óskars, í mynda­töku. Að henni lok­inni fengu for­eldr­arnir hin hræði­legu tíð­indi. „Þegar svo komið er með hann aftur er hald­inn fundur með okkur for­eldr­unum. Okkur er þá til­kynnt að hann sé heila­dá­inn. Við ein­fald­lega horfðum á lækn­inn og spurðum: „Hvað þýðir það?“ Hann þagði og gaf okkur smá­stund til að átta okkur betur. Það var svo Anna sem fyrst fatt­aði hvað þessi orð þýddu og brotn­aði saman. Þá var hann að segja við okkur að barnið okkar væri dáið,“ segir Óskar.

Óskar á erfitt með að rifja upp sáran son­ar­miss­inn.

Þegar þetta varð ljóst þurftu for­eldr­arnir að taka þá erf­iðu ákvörðun að slökkt yrði á tækj­unum sem héldu litla drengnum á lífi. Óskar gat sjálfur ekki farið til lækn­is­ins til að til­kynna það. „Ég gat ekki beðið um að slökkt yrði á tækj­unum sem í mínum huga héldu syni mínum á lífi. Við urðum bara börn aftur. Systur mínar tvær komu að austan, fluttu inn á okkur og sáu til þess að við fengjum að borða og svæfum næstu vik­urnar. Þessi tími er allur í móðu,“ segir Óskar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð