Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Pálmi yfirlæknir á Landakoti segir það ekki ósigur þó fólk hafi dáið: „Þetta voru náttúruhamfarir“

Pálmi yfirlæknir á Landakoti segir það ekki ósigur þó fólk hafi dáið: „Þetta voru náttúruhamfarir“

Pálmi V. Jónsson, yfir­læknir öldr­un­ar­lækn­inga á Landa­koti, segir afar þung­bærum kafla í sögu Landa­kots­spít­ala að ljúka nú þegar nærri fimm­tíu sjúk­lingar eru að koma til­baka eftir lífs­hættu­lega Covid-veiru­sýk­ingu. Hópsmitið á sjúkra­hús­inu kost­aði hins vegar fimmta hvern sjúk­ling lífið en sam­tals lét­ust tólf Íslend­ingar vegna sýk­ing­ar­innar á Landa­koti.

Líkt og aðrir stjórn­endur og yfir­læknar Land­spít­al­ans bendir Pálmi á að Landakot sé von­laus húsa­kostur fyrir öldr­un­ar­þjón­ust­una sem sé ein af megin ástæðum fyrir hópsmit­inu. Orsökin séu þó sam­verk­andi þættir og þá spilar sú lífs­nauð­syn­lega þjón­usta sem aldr­aðir sjúk­lingar þurfa á að halda sína rullu. Pálmi fjallar um málið í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu.

„Þung­bærum kafla í sögu Landa­kots­spít­ala er nú að ljúka, þar sem tæp­lega fimm­tíu sjúk­lingar sýkt­ust af lífs­hættu­legri veiru­sýk­ingu og fimmti hver galt með lífi sínu. Einnig sýkt­ust lið­lega fimm­tíu starfs­menn og veikt­ust nokkrir þeirra mjög alvar­lega. Það er engin betri sam­lík­ing til en að um nátt­úru­ham­farir hafi verið að ræða, á pari við snjó­flóð, jarð­skjálfta eða sinu­eld. Það mild­aði sárs­auk­ann að skynja ein­staka starfs­gleði og sam­taka­mátt starfs­manna Land­spít­al­ans í þess­ari snörpu bar­áttu,“ segir Pálmi og heldur áfram:

„Fyrsta skoðun bendir á fjöl­mörg sam­verk­andi atriði sem orsök; frá skæðri veiru til sam­fé­lags­smits á háu stigi til hús­næðis sem aðeins magn­aði upp eig­in­leika veirunnar. Þá er starf­semin bundin við nána umönnun fjölveiks eldra fólks, sem var í aft­ur­bata og end­ur­hæf­ingu. Það þýðir að fólk er hvatt til að klæða sig, hreyfa sig og borða saman í mat­sal. Erlendis er það vel þekkt undir slíkum kring­um­stæðum að eitt smit þýðir að fólk á hálfu og heilu deild­unum smit­ast. Og svo varð hér. Það afléttir ekki kvöð­inni á því að bregð­ast við og leita leiða til að lág­marka áhættu fólks á sjúkra­húsum á tímum lífs­hættu­legra far­sótta.“

Land­spitali hefur sjálfur rann­sakað hvað fór úrskeiðis og birt skýrslu þess efnis. Fjöl­miðla­menn hafa verið gagn­rýndir fyrir að vera of aðgangs­harðir æðstu mönnum Land­spít­al­ans vegna máls­ins en þeir aðstand­endur sem misstu sína nákomnu í hópsmit­inu sem Mannlíf hefur rætt við eru á þeirri skoð­unar að auð­mýkt hafi skort í svör stjórn­end­anna fram til þessa.

Pálmi segir aðstæður og þjón­ustu­stig ásamt háöldruðum sjúk­linga­hópi með ýmsa und­ir­liggj­andi sjúk­dóma vera megin orsaka­vald­inn fyrir því hvernig fór á Landa­koti. „Þetta fólk er að jafn­aði mjög veikt. Það er oftar en ekki háaldrað, með fjöl­marga sjúk­dóma sam­tímis, á mörgum lyfjum og með færnitap sem getur verið vit­rænt eða skert hreyfi­færni. Hækkandi aldur er ígildi sjúk­dóms sem veiklar flest líf­færi og mót­stöðu­kraft. Þarna háir fólk oft úrslita­bar­áttu upp á líf og dauða og ef ekki það, þá um sjálfs­bjarg­ar­getu og hvort hún verði end­ur­heimt til sjálf­stæðrar búsetu eða ekki. Ef ekki, þá getur fólk þurft að yfir­gefa eigin heim­ili og þiggja dvöl í hjúkr­un­ar­rými. Þjón­ustan við fólkið er verð­mæt. Það er ekki ósigur þó að fólk deyi eða þurfi að flytj­ast á hjúkr­un­ar­heim­ili ef allt hefur verið gert sem mögu­legt er og mætir óskum mann­eskj­unnar,“ segir Pálmi og bætir við:

„Mark­miðið er að hámarka lífs­gæði á hverjum tíma og líkna ef að kveðju­stund er komið. Þetta er sjúkra­hús­starf­semi sem er allt ann­ars eðlis en sú starf­semi sem veitt er þeim sem eru í lang­tíma­dvöl á hjúkr­un­ar­heim­ilum. Það er bráða­verk­efni að gera allar þær breyt­ingar á umhverfi starf­sem­innar á Landa­koti sem mögu­legt og trúi ég því að það verði gert. En þó að slíkar umbætur verði gerðar duga þær þó aðeins til skamms tíma.“

Pálmi segir það óboðs­legt að aldr­aðir sé aldrei boð­inn besti val­kost­ur­inn fyrir öldr­un­ar­þjón­ustu heldur þurfi alltaf að sætta sig við annan ef ekki þriðja besta kost­inn í stöð­unni. Hann vill sjá nýja bygg­ingu við Hring­braut sem verði til­einkuð öldr­un­ar­þjón­ust­unni. „Slíkt hús gæti staðið sér en tengt með­ferðar- og rann­sókn­ar­kjarna með und­ir­göngum, þannig að ekki þyrfti lengur að senda fólk fram og til baka bæj­ar­hluta á milli í rann­sóknir, auk­in­heldur mjög veikt og las­burða fólk. Í því fælust ekki aðeins aukin gæði fyrir fólkið heldur einnig fjár­hags­leg hag­kvæmni og sam­legð­ar­á­hrif vegna nálægðar. Allt sem þarf er vilji til góðra verka og slíkur vilji var ber­sýni­legur í kynn­ing­unni á skýrsl­unni um hópsmitið á Landa­koti. Slíkum við­bún­aði mætti líkja við snjó­flóða­varnir í kjöl­far snjó­flóðs og væri þá okkar elsta og veikasta fólki á hverjum tíma góður og eðli­legur sómi sýndur,“ segir Pálmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð