Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lækkun stýrivaxta: Eðlilegt að bankarnir lækki vexti strax

Lækkun stýrivaxta: Eðlilegt að bankarnir lækki vexti strax

Seðla­bank­inn lækk­aði í gær  stýri­vexti um 0,25% pró­sentu­stig, niður í 0,75%. Hvað þýðir þetta almennt fyrir heim­ilin í land­inu og þau lán sem á þeim hvíla?

„Ef allt væri eðli­legt myndu bank­arnir lækka sína vexti strax í kjöl­farið. En það er nú allur gangur á því hvernig því er háttað. Síðast þegar stýri­vextir voru lækk­aði þurfti Seðla­bank­inn að hasta á bank­ana til að ná fram þessum lækk­unum, þær voru langt á eftir og þurfti að toga þá niður með handa­afli,“ segir Breki Karlsson for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

Bæði Íslands­banki og Lands­banki hækk­uðu vexti á hús­næð­is­lánum nýverið.

Íslands­banki hækk­aði fasta vexti hús­næð­is­lána 26. októ­ber. Kemur til greina að draga þær hækk­anir til baka?

„Þetta er bara allt í skoðun og engin ákvörðun verið tekið enn,“ sagði Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri Íslands­banka í sam­tali við man.is.

Jón Bjarki Bentsson, aðal­hag­fræð­ingur Íslands­banka segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að vaxta­lækkun Seðla­bank­ans hafi komið nær öllum grein­ing­ar­að­ilum á mark­aði á óvart. Hann gagn­rýnir þennan óskýr­leika og segir hann ekki á bæt­andi á þessum tímum.

Lands­bank­inn hækk­aði á þriðju­dag tvo útlána­vaxta­flokka, þ.e. fasta vexti á nýjum óverð­tryggðum lánum til 3 og 5 ára. „Hækkunin hefur ekki áhrif á útlán sem þegar hafa verið veitt. Lands­bank­inn fjár­magnar útlán með föstum vöxtum meðal ann­ars með útgáfu sér­tryggðra skulda­bréfa. Skulda­bréf­unum má líkja við lán til bank­ans sem bank­inn lánar síðan áfram. Skulda­bréfin bera fasta vexti og eru boðin út á skulda­bréfa­mark­aði og ávöxt­un­ar­krafan, þ.e. vext­irnir sem bank­inn þarf að greiða, getur sveifl­ast. Ef ákvörðun Seðla­bank­ans um að lækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig veldur því að ávöxt­un­ar­krafa sér­tryggðra skulda­bréfa lækkar á nýjan leik, eða breyt­ingar verða á öðrum fjár­mögn­un­ar­kjörum bank­ans, mun Lands­bank­inn taka mið af því,“ segir Rúnar Pálmason, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans. Hann segir jafn­framt að Lands­bank­inn hafi ekki tekið ákvörðun um breyt­ingu á vöxtum sem byggir á nýj­ustu vaxta­á­kvörðun Seðla­bank­ans.

Arion banki hefur ekki hækkað vexti nýverið og engin ákvörðun hefur verið tekin um vaxta­breyt­ingar eftir tíð­indi gær­dags­ins.

Vakta­þróun er gríð­ar­lega stórt hags­muna­mál fyrir neyt­endur og því mik­il­vægt að fylgj­ast vel með þró­un­inni.

„Neyt­enda­sam­tökin sendu í byrjun sept­em­ber stærstu bönkum lands­ins kröfu um að breyta vaxta skil­málum sínum því þeir ein­fald­lega stand­ast ekki lög að okkar mati og lög­fræði­grein­ar­gerðar sem sam­tökin lét vinna. Bæði lækk­unar og hækk­unar ferli eru ógagnsæ. Þessar ákvarð­anir eru teknar í reyk­fylltum bak­her­bergjum bank­ana og engin getur sann­reynt þær. Þetta skapar leynd­ar­hyggju og sam­ræm­ist ekki lögum um vexti. Bank­arnir hafa svarað beiðni okkar, en svörin eru okkur ekki að skapi,“ segir Breki og minnir jafn­framt á að árið 2018 féll dómur í Hæsta­rétti þar sem fram­kvæmd og skil­málar með breyti­legum vöxtum hjá Íslands­banka voru dæmdir ólög­legir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ