Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tekk-Company tekur Black Friday með trompi: 20 prósent afsláttur af öllu!

Tekk-Company tekur Black Friday með trompi: 20 prósent afsláttur af öllu!
Telma Birg­is­dóttir, eig­andi versl­un­ar­innar Tekk-Company, segir við­skipta­vini taka vel í til­boðin á Black Friday.

„Þetta fer mjög vel af stað. Það er ríf­andi stemn­ing og nóg að gera bæði í vef­versl­un­inni og búð­inni okkar. Fólk hefur tekið vel við sér og er greini­lega í mjög góðum gír ef marka má við­tök­urnar,“ segir Telma Birg­is­dóttir, eig­andi versl­un­ar­innar Tekk-Company, um Black Friday, sem hófst í vik­unni.

Black Friday, eða Svartur föstu­dagur, er einn stærsti versl­un­ar­dagur Banda­ríkj­anna. Und­an­farin ár hafa versl­anir á Íslandi verið með og boðið ýmis til­boð og vegna fjölda­tak­mark­ana hefur nú verið ákveðið að að dreifa deg­inum á fjóra daga. Tekk-Company tekur þátt og býður veg­legan afslátt af öllum vörum.

„Við seljum allt fyrir heim­ilið, sófa, stóla, borð, ramma, teppi, bað­vörur, spegla, stell, glös, hnífa­pör og jólailmi, bara nefndu það. Allt sem hug­ur­inn girn­ist til að gera heim­ilið kósí og flott og í til­efni af Black Friday ákváðum við að vera með hvorki meira né minna en 20 pró­sent afslátt af öllu,“ segir Telma létt í bragði.

„Fólk hefur tekið vel við sér og er greini­lega í mjög góðum gír ef marka má við­tök­urnar.“

Eftirsóttar vörur

Hún segir að í versl­un­inni sé fjöl­breytt vöru­úr­val á breiðu verð­bili þannig að það sé eitt­hvað til fyrir alla. „Sem dæmi erum við með mjög vand­aðar vörur á góðu verði frá belgíska fyr­ir­tæk­inu Ethnicraft. Ethnicraft er belgískt fyr­ir­tæki sem hefur í 25 ár hannað fal­leg, tíma­laus hús­gögn úr harð­viði; eik, hnotu og tekki, og við höfum selt vörur frá þeim síðan 1999, sem er auð­vitað vís­bend­ing um hvað þessar vörur hafa verið eft­ir­sóttar á Íslandi lengi. Fyr­ir­tækið kynnir sífellt vand­aðar nýj­ungar, sem útskýrir m.a. vin­sæld­irnar.“

ekk-Company tekur þátt og býður veg­legan afslátt af öllum vörum.

Klassíkur stíll og nýtískulegur í bland

Telma nefnir líka til sög­unnar hol­lensku vöru­merkin ByBo og Eleonora. „Þetta eru bæði mjög vönduð merki. Helsti mun­ur­inn er kannski sá að á meðan Eleonora er stílað inn á þá sem eru í leit að klass­ískri vöru til­einkar ByBo sér fljótt tísku­strauma. Síð­ar­nefnda fyr­ir­tækið er með flotta, heild­ræna lausn fyrir heim­ilið, alveg frá mottum upp í stóla, sem hafa fallið í kramið hjá Íslend­ingum. Ekki síst unga fólk­inu, það er alveg sjúkt í vör­urnar. Og það frá­bæra við ByBo er að þú getur keypt allt í stíl frá þeim á mjög góðu verði.“

Gæði og gott verð

Svo eruð þið líka með vörur frá Habitat, ekki satt? „Jú, mikið rétt. Við vorum einmitt að fá nýja send­ingu frá þeim, ofsa­lega flotta hús­gagna­línu, sem er komin í sölu,“ svarar hún. „Þar á meðal sjón­varpss­kenk og venju­legan skenk með renni­hurðum, sem eru mjög töff og henta t.d. vel í rými þar sem ekki er pláss til að opna út hurðir. Habitat á sér langa sögu á Íslandi, búið að vera hér síðan 1984. Margir muna eftir fyrstu búð­inni á Lauga­veg­inum og versl­un­inni í Kringl­unni og eiga þaðan góðar minn­ingar og hafa haldið tryggð við merkið enda sam­einar það gæði og gott verð. Það var auð­vitað það sem Habitat lagði upp með í upp­hafi.“

Vinsælir sófar

Að sögn Telmu eru síðan sófarnir frá lit­háíska vöru­merk­inu Vilmers sú vara sem nýtur nú einna mestra vin­sælda hjá Tekk-Company. „Þeir eru mjög vand­aðir og á góðu verði og til í alls konar litum og útfærslum, t.d. áklæða­sófar, leð­ur­sófar og svo fram­vegis. Og fólki finnst alveg frá­bært að það skuli jafn­framt vera hægt að sér­panta sófa og hvað það tekur skamman tíma að fá þá afhenta, bara ein­hverjar sex til áttar vikur.“

Aðstoð og fagleg ráðgjöf

Er hægt að fá ráð­gjöf og aðstoð við val á vöru hjá ykkur? „Að sjálf­sögðu. Við erum öll af vilja gerð til að leið­beina og hjálpa fólki eins og með þarf og þar fyrir utan bjóðum við upp á fría heim­send­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ekki bara núna í þessu ástandi, heldur alltaf og þá keyrum við vör­una alveg upp að dyrum,“ segir Telma glað­lega og bendir áhuga­sömum á kynna sér betur til­boðin og vöru­úr­valið á tekk.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur