Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Nóg komið af því að skipstjórar láti stjórnast endalaust af útgerðunum“

„Nóg komið af því að skipstjórar láti stjórnast endalaust af útgerðunum“

Árni Bjarna­son, for­maður Félags skip­stjórn­ar­manna, segir löngu kom­inn tíma á það að íslenskir skip­stjórar hætti að láta útgerð­irnar enda­laust stjórna sér. Það er ástæðan fyrir því að félagið tók þátt í að kæra Svein Geir Arnasson, skip­stjóra Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS, fyrir frægan Covid-túr fyrsti­tog­ar­arns sem Mannlíf greindi fyrst frá.

Sjó­prófum vegna túrs­ins alræmda er lokið. End­ur­riti sjó­próf­anna verður nú komið til Lög­reglu­stjór­ans á Vest­fjörðum, Sam­göngu­stofu og Rann­sókn­ar­nefndar sjó­slysa. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs gekk málsvörn skip­stjór­ans og útgerð­ar­innar mikið út á það að þar sem ekki hefði verið um neitt stað­fest Covid-smit um borð í tog­ar­anum að ræða hafi ekki verið nein ástæða til að snúa skip­inu við. Það gerðu þeir þrátt fyrir að umdæm­is­læknir sótt­varna á Vest­fjörðum hafði ítrekað beðið um að skipið kæmi í land til Covid-skim­ana.

For­svars­menn Verka­lýðs­fé­lags Vest­fjarða furða sig á þeirri gjá sem virð­ist vera á milli brúar og vél­ar­rúms Júlíusar ann­ars vegar og skip­verj­anna á dekki hins vegar. Það kemur fram í til­kynn­ingu sem félagið gaf frá sér.

„Efn­is­lega um veiði­ferð­ina má segja að ljóst sé að Covid hafi verið blá­kaldur raun­veru­leiki okkar manna á dekki frá fyrstu dögum veiði­ferð­ar­innar sem reyndi veru­lega á þá bæði and­lega og lík­am­lega. Af spurn­ingum lög­manna sjó­prófs­þola og vitn­is­burði vél­stjóra virð­ist vera um annan veru­leika að ræða bæði í vél og í brú. Þar álitu menn að um ein­hverja pest væri að ræða. Sam­skipta­leiðir um borð eru aug­ljós­lega ekki skil­virkar, en virð­ast upp­lýs­ingar um Covid ekki hafa ratað hvorki í vél né í brú,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þetta rímar við þá stað­reynd hversu lítið var ritað í sjó­dag­bók tog­ar­ans um Covid þrátt fyrir að skip­verjarnir deildu skip­inu með veirunni skæðu í þrjár vikur með þeim afleið­ingum að þeir smit­uð­ust næstum allir. Samt þrá­að­ist útgerðin við að afhenda sjó­dag­bók­ina í und­an­fara sjó­próf­anna. Þegar svo kom að próf­unum fyrir rétti neit­uðu Sveinn skip­stjóri og Einar Valur Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóri útgerð­ar­innar, að bera vitni þar sem þeir eru sak­born­ingar í lög­reglu­rann­sókn. Sveinn mætti til próf­anna engu að síður og sat í salnum á meðan und­ir­menn hans vitn­uðu um túr­inn. Það gerði Valdimar Stein­þórs­son útgerð­ar­stjóri einnig.

Í til­kynn­ingu Verka­lýðs­fé­lags Vest­fjarða kemur fram að það sé ljóst að Sveinn skip­stjóri ætli sér að taka skell­inn þrátt fyrir að vitn­is­burðir í sjó­prófi bendi til þess að hann hafi ekki tekið sínar ákvarð­anir án aðkomu ann­arra.

Sautján skip­stjórar hjá útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Sam­herja sendu frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem þeir segja umræðu um COVID-19 smit um borð í tog­ar­anum Júl­íus Geir­munds­syni hafa skaðað ímynd sjó­manna­stétt­ar­inn­ar. Þar gagrýndu þeir harð­lega að stétt­ar­fé­lag skip­stjóra hafi kært sinn eigin félags­mann, Svein skip­stjóra, til lög­reglu.

Nokkur stétt­ar­fé­lög stóðu saman að lög­reglu­kæru á hendur Hrað­frysti­hús­inu Gunn­vör, útgerð Júl­í­usar Geir­munds­son­ar, og kröfð­ust einnig sjó­prófs í mál­inu. Félögin eru Verka­lýðs­fé­lags Vest­fjarða, Sjó­manna­fé­lag Íslands, Sjó­manna­sam­band Íslands, VM – félag vél­stjóra og málm­tækni­manna og Félags skip­stjórn­ar­manna sem Árni stýrir. Hann segir aug­ljóst að útgerðin hafi komið að ákvarð­ana­tökum Covid-túrs­ins og skýrir aðkomu félags­ins að lög­reglu­kærunni með eft­ir­far­andi hætti:

„Við viljum láta reyna á öldruð sjó­manna­lög og það er ljóst að útgerðin er ekki stikk­frí í þessu máli. Ég tal­aði við skip­stjór­ann á fyrstu stigum máls­ins og spurði hann að því hvort hann hafi ekki fengið ein­hverjar leið­bein­ingar og leið­sögn frá útgerð­inni. Hann sagð­ist hafa verið í stöð­ugu sam­bandi við útgerð­ina allan túr­inn en svo vildi hann ekki segja meira. Það er nóg komið af því að skip­stjórar láti stjórn­ast enda­laust af útgerð­unum. Það er ástæða númer 1, 2, 3 og 4 fyrir því hvers vegna við förum í þessa kæru því þetta hefur hvílt mjög þung á manni,“ segir Árni.

Þetta eru Sam­herja­stjór­arnir sem gagn­rýna stétt­ar­fé­lagið sitt: 

Pálmi Gauti Hjör­leifs­son, skip­stjóri

Kristján Sal­manns­son, skip­stjóri

Oliver Karlsson, stýri­maður

Guð­mundur Freyr Guð­munds­son, skip­stjóri

Markús Jóhann­es­son, skip­stjóri

Árni R Jóhann­es­son, stýri­maður

Ásgeir Pálsson, skip­stjóri

Oddur Jóhann Brynj­ólfs­son, skip­stjóri

Gauti Valur Hauksson, stýri­maður

Sig­tryggur Gíslason, skip­stjóri

Angantýr Arnar Árnason, skip­stjóri

Guð­mundur Þ Jónsson, skip­stjóri

Birkir Hreins­son, skip­stjóri

Hákon Þröstur Guð­munds­son, skip­stjóri

Hjörtur Valsson, skip­stjóri

Guð­mundur Ingvar Guð­munds­son, skip­stjóri

Björn Már Björns­son, stýri­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag