Íbúum í Norðlingaholti líst illa á fjölmennt strákagengi sem nú fer um hverfið vopnað hömrum og veldur skemmdarverkum víða.
Það er Hilma nokkur sem varar við genginu í hverfishópi íbúanna á Facebook. Hún segir hafa tekið nokkra drengina tali sem grobbuðu sig þá af því að vera eftirlýstir í hverfinu. „Ég ræddi aðeins við hóp af ungum strákum sem voru með læti hér við Bjallavað rétt í þessu. Þeir voru td að fikta i seríum, gera dyraat og lemja húsið að utan með hamri. Þeir grobbuðu sig af því að þeir væru “eftirlýstir í norðlingaholti”. Aðal áhyggjuefnið mitt var að hamarinn var notaður á ansi margt og verið að kasta honum í hús, tré, grindverk og name it. Hópurinn var ansi stór ca 20 strákar,“ segir Hilma.
Íbúar Norðlingaholts blanda sér í umræðuna. Einhverjir furða sig á því hvers vegna drengirnir séu ekki í skólanum á meðan aðrir benda á ólögmæta hópamyndum vegna Covid-sóttvarnarreglna.
Tinna Björk er einn þeirra íbúa sem þátt tekur í umræðunni. Henni finnst hér á ferðinni engin venjuleg strákapör. „Að gera dyraat og kippa seríum úr sambandi er eitt… En að vera með hamar og lemja í hús er annað og alvarlegra mál. Getur ollið tjóni!,“ segir Tinna.
Sigmar Þór nokkur segist einnig hafa orðið var við strákagengið í Norðlingaholti. „Varð var við þá, dingluðu x2 hjá mér (er heima með veikt barn) og svo virðist vera sem skemmdarverk hafi verið unnið á einni rólu á milli Bjallavað 9 og 11,“ segir Sigmar.































Athugasemdir