Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sólveig gerir stólpagrín að Hildi: „Fáránleg tillaga sem sýnir að hún skilur ekki nútímasamfélag“

Sólveig gerir stólpagrín að Hildi: „Fáránleg tillaga sem sýnir að hún skilur ekki nútímasamfélag“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, gerir stólpa­grín á Facebook-síðu sinni að grein sem Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, birtir í Morg­un­blað­inu. Hildur kallar þar eftir því að Reykja­vík­ur­borg hætti að ráða fleiri starfs­menn.

Sólveig bendir á að Hildur virð­ist ekki hafa hugsað það til enda, og spyr hvernig hjól atvinnu­lífs­ins eigi að snú­ast þegar leik­skólar séu ekki starf­hæfir vegna skorts á starfs­fólki. Sólveig segir Hildi hafa raunar afhjúpað eigin van­þekk­ingu á hvernig nútíma­sam­fé­lag virki.

Pistil Sólveigar má lesa í heild sinni hér fyrir neðan

Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Hildur Björns­dóttir, skrifar grein í Morg­un­blaðið í dag, „Ráðn­ing­ar­bann í Reykja­vík“. Í grein­inni fer Hildur yfir það hversu mörg starfi hjá borg­inni. Allt of mörg, finnst henni. Hún segir frá því hversu mikil fjölgun hafi verið á því sem hún kallar „laun­þega“ borg­ar­innar á síð­ustu árum. Allt of mikil, að hennar mati. Einnig rekur Hildur hversu mörg muni bæt­ast við hóp „laun­þega“ borg­ar­innar á næstu tveimur árum. Aftur, allt of mörg.  Fjölg­unin minnir Hildi á ein­hverjar stjórn­kerf­is­breyt­ingar meiri­hlut­ans eða skýrslu um starfs­lýs­ingar í stjórn­sýslu borg­ar­innar. Skýrslu-hug­renn­inga­tengslin vakna hjá borg­ar­full­trú­anum vegna þess að svo margar blað­síður voru í skýrsl­unni. Heilar 600 blað­síður. Sem talar víst „sínu máli“. Vegna þess að áfram­hald­andi ráðn­ingar hjá borg­inni eru „ósjálf­bærar“ leggur hún til að borgin fari í ráðn­ing­ar­bann. Það er áhuga­verð nálgun.

Segjum sem svo að Hildur réði ríkjum og gæti fram­kvæmt hug­mynd sína um ráðn­ing­ar­bann í Reykja­vík. Í þeirri ver­öld myndi kreppan verða lengri og dýpri þar sem að borgin myndi þá ekki gera sitt til að bjóða fólki störf í fjölda­at­vinnu­leys­inu. Fleiri yrðu þá föst án vinnu, en almennt er talið að fátt sé verra fyrir sam­fé­lagið en lang­vinnt fjölda­at­vinnu­leysi. Færri hefðu ráð á að „neyta“; kaupa varn­ing í búðum borg­ar­innar; þrátt fyrir að borgin borgi lægst setta vinnu­afl­inu sínu smán­ar­laun eru þau þó hærri en atvinnu­leys­is­bætur. Draga myndi úr inn­lendri eft­ir­spurn en slík eft­ir­spurn er það sem heldur hag­kerf­inu gang­andi um þessar mundir.

Hug­leiðum svo við hvað stór hluti „laun­þega“ borg­ar­innar starfar. Jú, við það sem kalla má und­ir­stöðu­störf, t.d. umönnun aldr­að­ara og ann­ars fólks sem þarf aðstoð við dag­legt líf. Hér má t.d. nefna heima­þjón­ustu, akst­urs­þjón­ustu og dagdvöl. Einnig er tölu­verður fjöldi sem starfar við umönnun og menntun lít­illa barna en eins og í það minnsta mörg okkar vita gera leik­skólar borg­ar­innar for­eldrum kleift að stunda vinnu, öruggum í þeirri vissu að börn þeirra eru í vistuð á sam­fé­lags­lega reknum stofn­unum þar sem fólk leggur sig allt fram til að veita þeim umhyggju og öryggi. Borgin rekur 63 leik­skóla og í þeim dvelja ríf­lega 6000 börn á degi hverjum. Fjöldi „laun­þega“ starfar líka í grunn­skólum borg­ar­innar en flest okkar eru sam­mála um að þeir séu kerf­is­lega mik­il­vægir og mik­il­vægt sé að rekstr­ar­skil­yrði þeirra séu sem best. Borgin rekur 36 grunn­skóla þar sem að um það bil 14.000 börn sækja nám. Borgin rekur líka 5 frí­stunda­heim­ili þangað sem börn geta dvalið að skóla­degi loknum, meðan að for­sjárað­ilar svo­kall­aðir eru enn að snúa hjólum atvinnu­líf­ins.

Borgin sér líka um ýmsa sorp­hirðu, rekur almenn­ings­sam­göngur, heldur utan um hjóla­stíga-kerfið og tryggir ýmsa útvistar og íþrótta-iðkunnar-mögu­leika borg­ar­anna.

Ég læt hér staðar numið í upp­taln­ing­unni, margt er þó ónefnt (bætum hér ýmsum söfnum við, sem mér í það minnsta finnst yfir­leitt fínt að séu til staðar í þess­ari borg sem og öðrum). Ég vil stoppa vegna þess að hætt er ann­ars við að ég endi sem höf­undur 600 blað­síðna skýrslu um starf­semi Reykja­vík­ur­borgar og ég hef ekki tíma fyrir slíka skrif. Svo vil ég heldur ekki ólaunað gera það sem fólki sem sér­hæft hefur sig í skýrslu-skrifum fær borgað fyrir að gera.

Það sem ég hef upp talið er hægt að flokka sem félags­lega end­ur­fram­leiðslu. Slík end­ur­fram­leiðsla er mik­il­væg í mann­legu sam­fé­lagi. Í þeirri mynd sem við þekkjum hana úr okkar nærum­hverfi er hún hinn ómissandi grunnur að þeirri sam­fé­lags­skipan sem við búum við. Störf sem að áður voru unnin inn á heim­ilum eru nú unnin á sér­stökum stofn­unum sem hið opin­bera svo­kall­aða rekur. Viðhald mann­legrar til­veru er fjarska margt á ábyrgð laun­aðs vinnu­afls. Svo­kall­aðra „laun­þega“. Hvers vegna? Jú, vegna þess að mjög fólk er í vinnu við að gera allt mögu­legt annað en að sinna fjöl­skyldu, heim­ili, öldruðum ætt­ingjum. Sum vinna við að fram­leiða mat­væli, sum við að fram­leiða nýsköpun, sum við að græða pen­inga, sum við skýrslu­gerðir, sum við mannauðs­stjórnun, sum við að stjórna-pen­inga-gróða-vél­unum og svo eru nokkur við borg­ar­full­trúa­störf. Aftur er hér margt ótalið, ef mann­eskja hemur sig ekki í upp­taln­ingum er hættan ávallt fyrir hendi að enda með 600 blað­síðna skýrslu.

Til að hjól atvinnu­lífs­ins megi snú­ast og ofnar verð­mæta­sköp­unar kynd­ast og arður eig­enda atvinnu­tækj­anna verða til er algjört lyk­il­at­riði að félags­leg end­ur­fram­leiðsla sé tryggð. Ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á hversu mik­il­vægt þetta atriði er. Svo ég segi sama brandar­ann einu sinni enn: 600 blað­síður myndu ekki duga mér til þess þó að ég gjarnan væri til í að skrifa þær allar og fleiri um félags­lega end­ur­fram­leiðslu í kap­ít­al­ísku sam­fé­lagi.

Ef að draumur Hildar yrði að raun­veru­leika og ráðn­ing­ar­bann yrði sett á í Reykja­vík­ur­borg myndi það ger­ast að ekki væri hægt að sinna ölum þeim börnum sem þarf að sinna á leik­skólum. Borgin sæti t.d. upp í með nýjar leik­skóla­bygg­inga sem voru byggðar til að taka við við sí-stækk­andi barna­hóp borg­ar­búa, sem ekki væri hægt að manna og þar með ekki hægt að reka. Biðlistar myndu lengj­ast og guð á himnum, hvað reiði og frústra­sjón­aróp for­eldra barna án leiks­skóla­pláss yrðu mikil og ein­beitt. Ekki væri hægt að sinna þörfum hins sístækk­andi hóps gam­als fólks; borg­ar­búa-kon­urnar yrðu þá að taka að sér að sjá um umönnun aldr­aðra ætt­ingja í meira mæli en þær gera þegar og ég hef vissar efa­semdir um að þær hafi mikla löngun í slíkt. Ekki væri hægt að reka skóla með þeim hætti sem við viljum að þeir séu reknir, með nægi­legum fjölda af starfs­fólki til að börnin okkar lifi við nokkuð öryggi í sínu dag­lega lífi. Og svo fram­vegis og svo fram­vegis og svo fram­vegis.

Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur í raun skrifað dystópíska örsögu. Sögu af sam­fé­lagi þar sem mann­legar þarfir mæta afgangi vegna þess að exel-skjal er orðið Guð og öll þurfa að lúta vilja skjals­ins. „Ó Skjal, við til­biðjum þig en get­urðu samt tekið til­lit til þess að við erum mann­fólk með þarfir og við búum í flóknu nútíma­sam­fé­lagi og það er ekki gott ef að grunn­þáttum sam­fé­lags­ins er refsað vegna þess, fyr­ir­gefðu okkur Skjal fyrir þetta skjala-guð­last, að töl­urnar í þínum helgu dálkum valda þér reiði og upp­námi?“ og Skjalið svarar með því að einka­væða sam­stundis í bræði sinni alla inn­viði til þeirra sem hafa sýnt algjöra lotn­ingu og til­beiðslu á lög­málum hinna helgu texta Skjals­ins.

Á þessum tíma­punkti væri bók­staf­lega ekk­ert verra fyrir okkur borg­ar­búa en að hug­mynd Hildar Björns­dóttur yrði að veru­leika. Hún hefur í raun með þess­ari fárán­legu til­lögu sýnt afdrátt­ar­laus fram á það að hún skilur ekki nútíma­sam­fé­lag, skilur ekki hlut­verk borg­ar­innar og skilur ekki þarfir borg­ar­búa. Skilur ekki einu sinni hvernig verð­mæta­sköpun kap­ít­al­ism­ans er gerð mögu­leg með vinnu þeirra sem umann­ast mann­legt sam­fé­lag. Þetta skiln­ing­leysi hennar á ein­stak­lega basic atriðum gerir það að verkum að ég skil bara alls ekki af hverju í ósköp­unum hún er að sækj­ast eftir völdum í borg­inni. Ætli hún haldi í alvöru að fólk hafi áhuga á að búa í þeirri Thatcher-ísku ömurð sem hún hefur áhuga á að skapa

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð