Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gangandi vegfarendur í Grafarvogi í lífshættu „Þarf einhver að deyja svo eitthvað verði gert?“

Gangandi vegfarendur í Grafarvogi í lífshættu „Þarf einhver að deyja svo eitthvað verði gert?“

Atli Guð­jóns­son, íbúi í Graf­ar­vogi, varð fyrir miklu áfalli í morgun þar sem hann var á gangi með þriggja ára dóttur sína sem var á leið í leik­skól­ann.

Atli býr í Rima­hverfi Graf­ar­vogs og segir hann umferð­ar­ör­yggi vera gríð­ar­lega ábóta­vant í hverf­inu og raunar öllum Graf­ar­vogi.

„Ég var með dóttur mína á háhest og var kom­inn eitt skref út á göt­una þegar maður kemur akandi og gefur í, í flýti. Þetta er 30 gata en hann var klár­lega að keyra hraðar,“ segir Atli. Þetta er í þriðja skipti á þessu ári sem hann og dóttir hans kom­ast í hann krapp­ann á göngu á nákvæm­lega þessum stað. Atli býr í Berja­rima og leik­skóli dóttur hans er í Fífurima og þarf hann að þvera göt­una Langa­rima til að kom­ast með hana í skól­ann.

„Það vantar bara gang­brautir í Graf­ar­vog, ég bý 100 metra frá leik­skól­anum og það er engin gang­braut nálægt mér. Ef ég ætla að fara yfir gang­braut þarf ég að ganga alla leið í versl­un­ar­kjarn­ann í hverf­inu þar sem er gang­braut yfir Langa­rima.“

Atli seg­ist oft lenda í því að þurfa að bíða heil­lengi eftir að nokkur stoppi fyrir þeim við göt­una til að kom­ast yfir. „Fólk stoppar alveg oft en maður þarf stundum að bíða alveg eftir 10 bílum áður en ein­hver stoppar fyrir manni,“ segir Atli. Á meðan hann spjall­aði við blaða­mann horfði hann yfir veg­inn, Langa­rima nánar til tekið, og sagði að þarna væru bílar sem væru að keyra allt of hratt. „Þarna er strætó sem er á spæn­inu hérna fram hjá, þeir eru eig­in­lega verstir.“

Atli setti sig í sam­band við Sig­ur­borgu Ósk Har­alds­dóttur, borg­ar­full­trúa Pírata og for­mann umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur eftir atvikið í morgun en hefur engin svör fengið frá borg­ar­full­trú­anum. Atli kveðst hafa rætt við aðra íbúa hverf­is­ins sem taka undir með honum um að ástandið sé óásætt­an­legt.

Atli segir að skortur á gang­brautum sé ekki eina ógnin við öryggi gang­andi veg­far­enda í Graf­ar­vogi, lítið sé um ljósast­ara og þau fáu göngu­ljós sem eru í hverf­inu vara í allt of skamma stund. „Ég fer stundum með krakk­ana mína út að leika í Gufunesi og við þurfum að hlaupa yfir gang­braut­ina þegar græni karl­inn kemur hjá okkur til að ná ljós­inu.“

Hann sendi blaða­manni skýr­ing­ar­mynd um göngu­ferð­ina sem hann tekur með dóttur sinni alla morgna og kveðst vera far­inn íhuga að keyra með hana þennan stutta spöl til að stuðla að frekara öryggi.

Á mynd­inni má sjá leið­ina sem Atli gengur með dóttur sína í leik­skól­ann, þar er hámarks­hraði 30 km/klst en hann segir fólk aka mun hraðar.

„Þetta er bara afskipta­leysi, það er marg­búið að gera ein­hverja umferð­ar­út­tektir og ekk­ert er gert. Er svona dýr fram­kvæmd að henda upp einu skilti og mála sex rendur í göt­una? Mér var sagt að það hafi verið boðið út árið 2019 og þá átti að fjölga gang­brautum og hraða­hindr­unum í hverf­inu, ég skil ekki af hverju það er ekk­ert gert í þessu.“

„Þarf ein­hver að deyja svo eitt­hvað verði gert?“ spyr Atli.

Atli tjáði sig um málið á Facebook.

„Þú sem komst á fleygi ferð á Ford fókus (svip­aður smá­bíll) bif­reið­inni núna rétt áðan inn Langa­rima úr suður átt. Barnið sem þú rétt slappst við að keyra yfir áður en þú brun­aðir í burtu er 3 ára gam­alt. Þú keyrðir of hratt miðað við hálk­una, ekk­ert til­lit til umhverf­is­ins. Þarna er ekki bara ég og dóttir mín að ganga heldur fullt af öðrum börnum og full­orðnum að reyna að kom­ast í leik­skól­ann. Vin­sam­leg­ast taktu þig til í and­lit­inu og hag­aðu þér ekki eins og fáviti í umferð­inni. Þú varst hárs­breidd frá því að valda stór­slysi… og já við erum með end­ur­skins­merki,“ skrifar Atli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð