Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fanney fór í andlegt þrot og skapar nú vettvang til að hjálpa öðrum

Fanney fór í andlegt þrot og skapar nú vettvang til að hjálpa öðrum

Vin­kon­urnar Fanney Marín Magn­ús­dóttir og Þórunn Kristín Snorra­dóttir halda úti heima­síð­unni Mín leið upp. Síðan er sam­fé­lags­verk­efni sem þær settu af stað í von um að miðla reynslu sinni og ann­arra til að hjálpa fólki. „Við söfnum reynslu­sögum og verk­færum fyrir þau verk­efni sem lífið hefur upp á að bjóða,“ segir Fanney Marín annar stofn­andi síð­unnar.

Á síð­unni má finna reynslu­sögur kvenna og karla sem ýmist koma undir nafni eða nafn­laust. Sögurnar segja frá erf­iðri reynslu eða góðum lausnum á vanda­málum og hindr­unum sem verða á vegi fólks á lífs­leið­inni.

Fékk innblástur í endurhæfingu 

Fanney Marín er eig­andi heima­síð­unnar en hug­mynd­ina fékk hún í gegnum námið sitt, tóm­stunda- og félags­mála­fræði en hún stefnir á útskrift um næstu jól. Þar hefur hún kynnst sam­skiptum við ólíkt fólk á ólíkum stöðum í líf­inu og sá tæki­færi í að tengja fólk úr ólíkum áttum með til­komu heima­síð­unnar.

Fanney fór í end­ur­hæf­ingu árið 2014 eftir að hafa lent í „and­legu þroti“ sem hún segir örugg­lega vera flokkað undir kulnun í dag. „Ég fór í end­ur­hæf­ingu þar sem og fékk ýmis­konar fræðslu og verk­færi. Ein fræðslan var í formi nám­skeiðs sem bar yfir­skrift­ina „draumar og drekar“ sem var undir leið­sögn Katrínar Óskar Garð­ars­dóttur. Á nám­skeið­inu var bent var fjallað um „drek­ana“ eða það sem sumir kalla púka sem hindra okkur í að láta drauma okkar ræt­ast,“ segir Fanney.

Katrín veitti Fanneyju mik­inn inn­blástur og hafa þær starfað svo­lítið saman síðan Fanney sat nám­skeiðið hjá henni fyrir sex árum.

Vettvangur til að gefa af sér og þiggja hjálp

„Ég fór að föndra ein­hver verk­efni til að skoða sem loka­verk­efni í tóm­stunda- og félags­mála­fræði og fékk þá þessa hug­mynd. Mín leið upp er sam­fé­lags­verk­efni sem ég hugs­aði sem vett­vang til að láta gott af mér leiða og fá aðra með, bæði til að gefa og þiggja,“ segir Fanney.

„Við viljum að fólk fari inn á þennan vett­vang hvort sem það er til að deila reynslu, peppa aðra eða vera með nám­skeið svo getur fólk sem vantar pepp leitað ráða og verk­færa sér til stuðn­ings.“

Fanney fékk vin­konu sína með sér í lið eftir að hafa verið með hug­mynd­ina í mag­anum í svo­lít­inn tíma. „Ég deildi hug­mynd­inni með Tótu en við erum vin­konur í gegnum aðra vin­konu og henni fannst þetta svo brillj­ant hug­mynd og hvatti mig áfram.“

Fanney spjall­aði við vini sína á Instagram um þetta og þar fór Þórunn Kristín, sem Fanney kallar Tótu, að sýna verk­efn­inu áhuga. Það var alveg frá­bært að fá hana mér í þetta, hún hefur rekið fyr­ir­tæki áður og er mik­ill frum­kvöð­ull í sér, lausn­a­miðuð og ótrú­lega hvetj­andi.“

Vilja gera verkfærakistu með fullt af lausnum 

Fanney segir mark­miðið fyrst og fremst vera að efla sterkt tengsla­net á vef­síð­unni, þá geta þeir sem deila sögu sinni átt von á að not­endur síð­unnar hafi sam­band, hvort sem það er í leit að ráði eða til að sýna við­kom­andi stuðn­ing. Öll starf­semin er í formi sjálf­boða­vinnu og fram­tíð­ar­sýnin er að bjóða upp á nám­skeið, not­endum að kostn­að­ar­lausum.

„Eftir ára­mót ætlum við að leita að styrkt­ar­að­ilum og fyr­ir­tækjum sem vilja aug­lýsa hjá okkur og yrðu fjár­mun­irnir not­aðir til að greiða fag­að­ilum til að kenna nám­skeið og vera með ráð­legg­ingar,“ segir Fanney.

„Við erum núna að útbúa verk­færakistu og erum með mark­þjálfa sem er að hjálpa okkur með það. Í verk­færakist­unni verður fjöldi verk­færa til að gefa fólki hug­myndir til að vinna úr verk­efn­unum sem blasir við fólki, sækja sér eld­móð og hvatn­ingu.“

Hugmynd að verk­færakist­unni fædd­ist þegar Fanney var í end­ur­hæf­ingu. „Ég var kom­inn á þann botn að ég gat ekki fundið neitt sem mér þætti skemmti­legt. Þá var mér gef­inn hug­mynda­listi yfir 50 hluti sem mér gætu mögu­lega þótt skemmti­legir,“ segir Fanney. Hún bætir við að það verk­færakistan verður með fullt af hug­myndum. Það virki að sjálf­sögðu ekki það sama á alla því vill hún hafa sem mest í kist­unni.

Góður tími til hvatningar 

Hún seg­ist hafa fengið góðar und­ir­tektir en síðan fór í loftið fyrir um hálfum mán­uði síðan. „Ég vissi alveg að ég var með eitt­hvað ofsa­lega fal­legt í hönd­unum og ég hef fengið alveg rosa­lega góð við­brögð við verk­efn­inu. Þetta er kannski bara svo­lítið góður tími fyrir þetta eins og sam­fé­lagið er í dag. Þetta verður fal­legur vefur en hann er bara rétt að byrja að mót­ast. Við erum rétt setja inn reynslu­sög­urnar en það það er margt annað í vændum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð