Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Hólmfríður syrgir litlu systur sína: „Jónína var alveg eins og engill og hlakkaði svo til jólanna“

Hólmfríður syrgir litlu systur sína: „Jónína var alveg eins og engill og hlakkaði svo til jólanna“
Hér er fjöl­skyldan saman komin. For­eldr­arnir Ásta og Benedikt á sitt­hvorum vængnum í efri röð og á milli þeirra eru eldri systk­ini Jónínu, Pálmi og Hólm­fríður. Í neðri röð­inni eru yngri systur Jóninu, þær Helga (lengst til vinstri) og Inga í miðj­unni. Jónína heitin er svo lengst til hægri.

„Það er mikil sorg í fjöl­skyld­unni. Við erum búin að fylgja henni í gegnum sjúk­dóm og þetta er mikil sorg því hana hlakk­aði svo til jól­anna þar sem hún ætl­aði að vera hjá dóttur sinni og barna­börnum til að knúsa þau. Hún var rosa­lega mik­ill karakter og mikið jóla­barn. Þetta er því svaka­legt og erf­iður tími núna,“ segir Hólm­fríður Bene­dikts­dóttir, eldri systir Jónínu Bene­dikts­dóttur sem varð bráð­kvödd á heim­ili sínu í Hvera­gerði.

Jón­ína, íþrótta­fræð­ing­ur og frum­kvöð­ull, var 63 ára að aldri er hún lést. Hún læt­ur eft­ir sig þrjú upp­kom­in börn, Jó­hönnu Klöru, Tóm­as Helga og Matth­ías sem eru öll börn Stef­áns Ein­ars Matth­ías­son­ar. Barna­börn­in eru fjög­ur, Stefán Kári, Krist­ín Embla, Ásdís Þóra og Matth­ías Þór.

Jónína var mik­ill frum­kvöð­ull

Jón­ína nam íþrótta­fræði í Kan­ada og þegar heim var komið stofn­aði hún eina fyrstu lík­ams­rækt­ar­stöð­ina á Íslandi. Hún var áhuga­söm að kynna lands­mönn­um mik­il­vægi lík­ams­rækt­ar og stóð meðal ann­ars fyr­ir morg­un­leik­fimi á Rás 1. Síðustu ár hef­ur hún staðið fyr­ir lífs­bæt­andi detox-með­ferðum í Póllandi og á Hót­el Örk í Hvera­gerði. Hólm­fríður fór fjórum sinnum í detox-með­ferða hjá systur sinni og segir þær hafa verið frá­bærar. „Hún var algjör for­sprakki sem hafði svo margar flotta hug­myndir. Detox-ið var alveg svaka­lega flott,“ segir Hólm­fríður.

Hólm­fríður syrgir litlu systur sína. Blessuð sé minn­ing Jónínu.

Jón­ína fædd­ist 26. mars 1957 á Húsavík. Hún var miðju­barn í fimm systk­ina­hópi og Hólm­fríður pass­aði hana reglu­lega. „Ég var sjö ára þegar hún fædd­ist, hún var alveg eins og eng­ill. Hún var svo fal­legur krakki og hún var allt öðru­vísi en við systk­inin hin. Hún varð strax mikil íþrótta­kona og þegar hún var í hand­bota­lið­inu þá var það mjög gott,“ segir Hólm­fríður og bætir við:

„Ég var mikið að passa Jónínu og það gekk á ýmsu. Jónína var ofsa­lega hvat­vís enda er mikil hvat­vísi í fjöl­skyld­unni. Jónína gat verið ofboðs­lega hlý og vildi alltaf hjálpa. Að sama skapi gat hún líka sagt umbúða­laust það sem henni fannst. Jónína var húmoristi þannig maður velt­ist stundum um af hlátri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ