Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslenskur dópsali opnar sig – Græðir 60 þúsund á dag en kvartar: „Það sem beið okkar voru vörusvik“

Íslenskur dópsali opnar sig – Græðir 60 þúsund á dag en kvartar: „Það sem beið okkar voru vörusvik“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Íslenskur dóp­sali segir ekk­ert annað í stöð­unni hjá sér en að selja ólög­leg vímu­efni til að kosta eigin neyslu. Við­kom­andi opnar sig í langri færslu á Reddit og hvetur þar til lög­leið­ingar fíkni­efna því núver­andi kerfi leiði bara til ofbeldis og þján­ingar.

Reddit er eitt stærsta vef­svæði ver­aldar þar sem fjöldi frægra ein­stak­linga heldur sig. Dæmi um fræga sem hafa not­ast mikið við síð­una er Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna. Á Reddit skap­ast iðu­lega umræður um hin ýmsu mál­efni og það er ekki ýkja algengt að Íslend­ingar rati inn í hóp­við­töl á svæð­inu.

Dópsal­inn íslenski fær mikil við­brögð við færslu sinni. Frá­sögnin er nafn­laus en virð­ist í takt við raun­veru­leik­ann. „Það er með öllu ólíð­andi að viss hópur sam­fé­lags­ins skuli þurfa að líta allt allt öðrum mark­aðslög­málum en hinn hefð­bundi Íslend­ingur. Ég sem dópisti. Fíkill. Gagns­leys­ingi og aum­ingi. Er í þeirri stöðu að eina leiðin fyrir mig til að funkera og geta staðið undir mínum lífs­stíl er að selja efnin sem ég neyti. Því venju­leg vinna er ein­fald­lega ekki nægi­lega arð­bær til að standa undir kostn­að­inum sem fylgir ólög­legri vímu­efna­neyslu,“ segir dópsal­inn.

Hinn nafn­lausi dóp­sali bendir á að á meðan lyf selj­ast á svörtum mark­aði fyrir stórfé búi fíkni­efna­neyt­endur í óraun­veru­legu hag­kerfi. Sjálfur seg­ist hann græða um það bil 60 þús­und krónur á dag í dópsólu. „Ég er ekki að fara mæla vímu­efna­neyslu bót. Hún er ekki holl. Ég veit það. En að bæta gráan ofan á svart með óhugn­ar­lega háu verð­lagi getur ekki gert neinum gott. Fíkni­efna neyt­endur búa í hag­kerfi sem er gjör­sam­lega ótengt hinu raun­veru­lega hag­kerfi. Ég td. sel fyrir ca. 100þús krónur á dag. Af því hef ég ca 60þús krónur í hagnað. Höfum á hreinu að ég nota kókaín og róandi lyf fyrst og fremst. Það er mitt go to stuff. Verð­lagn­ing þess­ara efna er slík að hún gjör­sam­lega umturnar lífi mínu,“ segir dóp­neyt­and­inn og -sal­inn.

„Að vera nautna­seggur á ein­hverju sviði á ekki að halda manni helj­ar­g­reipum til að rétt­læta ein­hvern sið­ferð­is­legan boð­skap“

Dópsal­inn full­yrðir að dóphag­kerfi Íslands séu ekk­ert annað en kerfi­bundin mis­munun. „Nú rétt í kvöld voru ég og vinir mínir sviknir. Við ætl­uðum að kaupa lyf sem við töldum vera góða vöru. En það sem beið okkar voru vöru­svik og við sitjum eftir með sárt ennið pen­ing­arnir farnir og einu varn­irnar sem við getum beitt eru hót­anir og ofbeldi. Já. Þannig er statt hjá okkur sem svo óheppin voru að fæð­ast með ein­stak­lega mik­inn áhuga á hug­breyt­andi efnum. Þetta er að mínu mati skýrasta dæmi sem nokkurn tím­ann sést hefur um kerf­is­bundna mis­beyt­ingu gegn jað­ar­hóp og eng­inn segir neitt. Fólki þykir þetta sjálf­sagt mál. Svona er þetta bara. Þetta eru jú bara dópistar og geta sjálfum sér um kennt,“ segir dópsal­inn og bætir við:

„Þessi mark­aður er með öllu lög­laus. Þar gilda engar reglur nema reglur frum­skóg­ar­ins. Það er engin yfir­sýn yfir fram­leiðslu, gæðum eða inni­haldi. Fólk tekur eitt­hvað inn treystandi á hinn gullna díler sem bless­un­ar­lega eru oftar en ekki hinir bestu menn. En inni í öllum hópum leyn­ast skemmd epli eins og fólk veit. Skemmd epli inni á ólög­legum vímu­efna­mark­aði þar sem verð­lag er ótrú­lega hátt valda mjög miklum skaða. Heilsu­fars­legum, efna­hags­legum og síð­ast en ekki síst þá skapar þetta óþarfa ofbeldi. Okkar ást­kæru lög­reglu­menn sitja uppi með að glíma við vanda sem er fyrst og fremst sprottin af efna­hags­legum erf­ið­leikum. Fólk brjálað út í hvort annað. Allir pirraðir út í hinn og þennan.“

Hinn íslenski dóp­sali á Reddit seg­ist illa skilja hvern fíkni­efna­lög­gjöfin hér­lendis eigi að vernda. „Þau gera ekk­ert. Ekki neitt. Það er verið að taka vanda­mál og dífa honum ofan í fötu fulla af tjöru í von um að tjaran fæli nógu marga frá því sem hún umlykur. Fólk notar dóp. Það vita það allir. Fólk er að fara nota dóp. Það vita það allir. Fólk veit vel að núver­andi stefna er úti úr korti og stuðlar ekki að bættu sam­fé­lagi og gerir veik­ustu neyt­end­unum mjög illt,“ segir sal­inn og bætir því við að lög­leið­ing fíkni­efna sé eina raun­hæfa lausnin.

„Fólk kemur alltaf með efa­semda raddir. Já en ef þetta yrði nú gert frjálst væri fullt af fólki á geð­deild veikt og hálf þjóðin látin úr ofskömmtum. Horfum á stað­reynd­irnar. Eins og staðan er núna er þetta með fullu ólög­legt og vanda­málin eru gríð­ar­leg. Ég er pirr­aður verð ég að segja. Að vera nautna­seggur á ein­hverju sviði á ekki að halda manni helj­ar­g­reipum til að rétt­læta ein­hvern sið­ferð­is­legan boð­skap. Verum hrein­skilin og horf­umst í augu við hlut­ina eins og þeir eru. Lög­leiðum fíkni­efni, leyfum þessu bara að hafa sinn gang. Ef allt fer til fjand­ans ok drögum það til baka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð