Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Össur æfur útaf töfum á bóluefni: „Ætla að sitja á sínum breiða rassi og sjá hvort þetta reddist“

Össur æfur útaf töfum á bóluefni: „Ætla að sitja á sínum breiða rassi og sjá hvort þetta reddist“
Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

Össur Skarp­héð­inson, fyrr­ver­andi ráð­herra, er ævar­eiður yfir töfum á bólu­efnum til lands­ins og segir að stjórn­völd verði að rífa sig upp af sínum breiða rassi eftir afleita frammi­stöðu og dæma­laust klúður. Hann skilur ein­fald­lega ekki hvers vegna við leitum ekki til Kínverja eftir bólu­efni.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs logar allt bak­við tjöldin vegna sein­kunnar bólu­efnis til lands­ins. Aula­skapur stjórn­valda sé hví­líkur að tryggja hefði átt aðgengi miklu fyrr og betur. Seinkun bólu­setn­inga þýðir lítið annað en alvar­leg seinkun við­spyrnu atvinnu­lífs­ins sem kosta mun þjóð­ar­búið veru­lega fjár­muni. Spjótin bein­ast að Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra.

Össur er einn þeirra sem telja asna­skap íslenska stjórna­valda algeran. Það kemur fram í stöðu­færslu hans á Facebook. „Upp­lýs­ingar yfir­valda, þrí­eykis og ann­arra, um bólu­efni er varla hægt að kenna við annað en óreiðu. Fyrir skömmu börðu yfir­völd bumbur yfir því að vera búin að semja við Pfizer um bólu­efni fyrir alla þjóð­ina. Þau töl­uðu um að bólu­setn­ing yrði kláruð á fyrsta og öðrum árs­fjórð­ungi 2021. Þau virt­ust telja að nóg bólu­efni yrði til reiðu innan skamms. Heil­brig­is­yf­ir­völd í Reykja­vík skildu það þannig að þau þyrftu að vera reiðu­búin til að bólu­setja mik­inn fjölda fólks á skömmum tíma. Þau unnu sitt verk af stakri prýði og kynntu áætlun, sem mið­aði að því að hægt væri að bólu­setja alla Reyk­vík­inga á örfáum dögum. Sama gilti vænt­an­lega um alla þjóð­ina,“ segir Össur og heldur áfram:

„Á síð­ustu dögum hefur hins vegar komið í ljós að mjög mikið mun skorta á að bólu­efnið ber­ist í tíma. Nú er talað um að bólu­setn­ing verði ekki lokið fyrr en undir lok árs. Full­trúar kerf­is­ins fóru í flæm­ingi undan spurn­ingum Björns Inga um bólu­efnin á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Skýr svör komu ekki fram. Þar kom hins vegar fram sú ótrú­lega stað­reynd að þó íslensk stjórn­völd hefðu gert samn­inga við ein­staka lyfj­arisa þá hefðu þau EKKI samið um afhend­ing­ar­tíma. Þetta er í reynd ótrú­legt og virkar satt að segja sem dæma­laust klúður. Hverjir gengu svona laust frá samn­ingum og hver ber ábyrgð á því? Vissu ráð­herrar ekki af þessu þegar þeir sköp­uðu vænt­ingar hjá þjóð­inni – m.a. ferða­þjón­ust­unni – um að búið yrði að bólu­setja þjóð­ina á fyrri part árs?“

Össur segir ljóst að sú staða sem nú er uppi varð­andi bólu­efni komi til með að verða Íslend­ingum mjög dýr. „Verði bólu­setn­ingum ekki lokið fyrr seinni part árs – þvert ofan í vænt­ingar sem stjórn­valdið skap­aði – þá þýðir það að enn eitt ferða­þjón­ustu­sumar mun glat­ast. Það mun kosta þjóð­ar­búið tugi millj­arða, hugs­an­lega hund­ruð, og lík­lega líf fjölda fyr­ir­tækja sem hingað til hafa hangið á nögl­unum á bjarg­brún­inni. Séð af Vest­ur­göt­unni virkar þetta afsak­p­lega afleit frammi­staða hjá heil­brigð­is­yf­ir­völdum. Núna er spurn­ingin hins vegar þessi: Hvernig ætla stjórn­völd að bregð­ast við þess­ari nýju stöðu? Ætla þau bara að sitja á sínum breiða rassi og sjá hvort þetta redd­ist af sjálfu sér?,“ spyr Össur.

Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi segir ljóst að í alheims­far­aldr­inum þurfi íslensk stjórn­völd að slást fyrir bólu­efn­inum til að bjarga íslenskum hags­munum. „Mjálmið á upp­lýs­inga­fund­inum um að Íslend­ingar væru svo smáir að betra væri að vera í stóru sam­floti virkjar hjá­kát­lega and­spænis þeirri stað­reynd, að gegnum tengsl við æðstu ráða­menn Kína komu flug­vélafarmar þaðan í sumar með grímur og annað sem Íslend­inga skorti fyrir heil­brigð­is­þjón­ust­una. Gildir eitt­hvað annað um bólu­efni? Afhverju fara stjórn­völd ekki á sömu stúfa og í sumar, og hafa beint sam­band við kín­versk stjórn­völd og fá þaðan bólu­efni amk þangað til Pfizer fer að standa við samn­inga? Er það póli­tískur rétt­trún­aður a la Trump sem veldur að ekki má leita til Kínverja? Á meðan blæðir ferða­þjón­ustu og fleiri almennir borg­arar munu eiga um sárt að binda en ella,“ segir Össur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð