Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Segir áramótin nú vera fullkomin til að banna flugelda á Íslandi: „Alveg fráleitt“

Segir áramótin nú vera fullkomin til að banna flugelda á Íslandi: „Alveg fráleitt“

Magnús Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Símans, telur að ára­mótin henti full­kom­lega til að banna almenn­ingi að skjóta upp flug­eldum. Magnús viðrar skoðun sína á Twitter og segir ávinn­ing­inn vera minni mengun og meiri loft­gæði, færri slys og þrifa­legri borg. Orðrétt sagði Magnús:

„Þetta væru hin full­komnu ára­mót til að hætta flug­eld­arugl­inu.“

Hugdetta Magnúsar fær tölu­verðan stuðn­ing en hann var þó um leið spurður hvernig ætti að bæta björg­un­ar­sveitum upp tekju­miss­inn. Þá var einnig haldið fram að sveit­irnar væru háðar því að selja þjóð­inni flug­elda. Þessu svar­aði Magnús:

„Fjár­mögnun björg­un­ar­sveit­anna má ekki vera háð slysa­vald­andi ofsamengun. Ekki frekar en að fjár­mögnun Rauða kross­ins á að vera háð við­bjóðs­rekstri spila­kassa. Einu sinni var fullt af fólki sem átti lífs­af­komu sína undir því að vinna í mjólk­ur­búðum eða smíða hesta­kerrur. En tímar breyt­ast og menn­irnir með. Björg­un­ar­sveit­ar­menn eru eld­klárir og munu finna nýjar leiðir með aðstoð allra.“

Fræði­menn við Háskóla Íslands hafa áður tekið í svip­aðan streng og Magnús. Sprengi­gleði Íslend­inga er lýst sem grafal­var­legum, fyr­ir­sjá­an­legum meng­un­ar­at­burði, stund­ar­gleði, sem sé orðin hluti af ímynd þjóð­ar­innar, en hafi í för með sér mik­inn fórn­ar­kostnað.

Í úttekt fræði­mann­anna frá árinu 2018 segir að mengun við Dalsmára í Kópavogi, hafi sett nýtt Evr­ópu­met. Þröstur Þor­steins­son, pró­fessor í umhverfis- og auð­linda­fræði, segir:

„Þessi stóri toppur getur valdið skamm­tíma­á­hrifum, fólk sem er við­kvæmt fyrir, þetta getur valdið því að það fær heila­blóð­fall, hjartaflökt, jafn­vel hjarta­stopp.“

Þá kemur fram í Lækna­blað­inu að á nýársnótt árið 2018 hafi fimmtán manns leitað á bráða­mót­töku vegna and­þyngsla sem rekja mátti til meng­unar, eða helm­ingi fleiri en venju­legt er. Voru þetta tölu­vert fleiri en leit­uðu sér aðhlynn­ingar eftir meiðsli flug­elda. Og flug­eld­arnir sjálfir geta reynst stór­hættu­legir. Fyrr á árinu missti karl­maður hand­legg í flug­eldaslysi í Heiðmörk.

Einnig hefur verið tek­ist um það á þingi hvort banna eigi sölu flug­elda. Í byrjun árs var Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í við­tali á Bylgj­unni en hann var full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í starfs­hópnum. Jón sagði að flug­eldar lýstu upp skamm­degið og bætti við að hug­myndir um að banna notkun og inn­flutn­ing flug­elda hér á landi hafi verið viðr­aðar innan starfs­hóps­ins.

„Það tel ég vera alveg frá­leitt.“

Þröstur telur aftur á móti að óhóf­leg notkun Íslend­inga á flug­eldum leiði til alvar­legrar fyr­ir­sjá­an­legrar meng­unar. Hún hefur áhrif á heilsu og vellíðan lungna­sjúk­linga sem eru allt að 5-10% lands­manna og eru í þeim hópi bæði börn og full­orðnir.

Hvað segja les­endur Mannlífs? Á að banna Íslend­ingum að skjóta upp flug­eldum um ára­mót?

Kommentakerfið er opið hér aðeins neðar á síðunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ