Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óður ökumaður skapaði stórhættu í miðbænum: Rústaði bíl, ók gegn einstefnu og lagði á flótta

Óður ökumaður skapaði stórhættu í miðbænum: Rústaði bíl, ók gegn einstefnu og lagði á flótta

Ökumaður jeppa skap­aði stór­hættu í mið­borg­inni aðfar­arnótt nýárs­dag. Klukkuna var að ganga þrjú þegar bíl­stjóri jeppa ók á miklum hraða niður Skál­holts­stíg. Á gatna­mótum Lauf­ás­vegar og Skál­holts­stígar missti öku­fant­ur­inn stjórn á bílnum og lenti á miklum hraða á kyrr­stæðum Volkswagen golf rauðum að lit sem lagt var í stæði rétt fyrir neðan Lauf­ás­veg. Kraft­ur­inn var slíkur að fólks­bíll­inn kastað­ist yfir þrjú stæði, rakst þar utan í bíl neðar í göt­unni og end­aði svo för sína með því að fara í gegnum grind­verk og inn á bíla­stæði ætlað íbúum neðst í göt­unni. Bíllinn er gjör­ó­nýtur en eig­and­inn sem er eldri kona hefur nú misst tvo bíla á þessum nákvæm­lega sama stað á sama degi á árinu.

Skömmu áður hafði fjöldi manns fagnað nýju ári hjá Reykja­vík­ur­tjörn. Þykir mikil mildi að gang­andi veg­far­endur hafi ekki átt leið um svæðið á sama tíma. Þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum.

Rauða bílnum var lagt um það bil þar sem kross­inn er

Í stað þess að stoppa og ganga úr skugga um að eng­inn hafi verð í fólks­bílnum lagði bíl­stjór­inn á flótta. Jeppinn var vart í öku­hæfu ástandi, vélin hikstaði og hökti, bíll­inn var mikið lask­aður á hægra horni og rauk úr vél­inni. Maðurinn ók jepp­anum inn í Þing­holtin, fór meðal ann­ars gegn ein­stefnu, ákveðin í að forða sér af vett­vangi sem fyrst.

Öku­níð­ingnum tókst að koma bílnum upp á Skóla­vörðu­stíg þar sem hann skildi bíl­inn eftir og forð­aði sér undan lög­reglu á hlaupum. Lögreglu þótti með nokkrum ólík­indum að öku­níð­ing­ur­inn hefði náð að koma bílnum alla þessa leið í því ástandi sem öku­tækið var.

Eigandi volkswagen bíls­ins er eldri kona, búsett í göt­unni. Var hún furðu lostin þegar hún átt­aði sig á atburð­ar­rásinni og að litli rauði bíll­inn hennar væri gjör­ó­nýtur. Þetta hafði nefni­lega gerst áður. Ekki bara það, líka á sama degi, á sama stað. Í bæði skipti var um að ræða wolksvagen bíla, annan rauðan og hinn vín­rauðan.

„Áramótin 2006 til 2007 var bílnum mínum lagt á sama stað hér í göt­unni, þegar keyrt var aftan á hann og var bíll­inn ónýtur eftir árekst­ur­inn. Það var bíll af sömu teg­und og vín­rauður,“ segir konan og keypti sér þá annan Volkswagen Golf, í þetta sinn rauðan að lit.

„Ég er gáttuð að upp­lifa þetta aftur. Ég vil þó taka fram að ég er svo lánsöm að ég finn ekki til í bílnum mínum. Það er nú ekki þannig hjá öllum. Þetta er bara ílát á fjórum hjólum sem er gott til að brúka til að kom­ast á milli staða,“ segir konan.

Aðspurð hvort hún stefndi á að fá sér þriðja Volkswagen Golf bíl­inn, svar­aði hún hlæj­andi að hún ætli að hugsa sinn gang.

„Ég ætla að njóta þess að vera bíl­laus í nokkra daga áður en ég geri upp hug minn. Fram­vegis á meðan ég er búsett hér, þá mun ég leggja bílnum á gamlárs­kvöld á öðrum stað en fyrir utan heim­ili mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð