Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jóhannes varar landsmenn við að stunda viðskipti við Sigurð Örn: „Þessi framkoma er ekki boðleg“

Jóhannes varar landsmenn við að stunda viðskipti við Sigurð Örn: „Þessi framkoma er ekki boðleg“
Sigurður Örn Ágústs­son, for­stjóri Bláfugls.

Jóhannes Bjarni Guð­munds­son flug­maður varar við fyr­ir­tæk­inu Bláfugl í aðsendri grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu. Hann segir fyr­ir­tækið, sem sér um frakt­flug til og frá Íslandi, stunda gervi­verk­töku með þeim afleið­ingum að það skilar litlu til sam­eig­in­legra sjóða á Íslandi. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins er Sigurður Örn Ágústs­son en erlendur risi, Avia Solutions Group, keypti félagið fyrir um ári síðan.

Jóhannes útskýrir þetta nánar í pistl­inum. „Gervi­verk­taka er mein­semd á evr­ópskum vinnu­mark­aði. Með gervi­verk­töku spara fyr­ir­tækin sér kostnað sem sam­fé­lagið þarf að bera í stað­inn, sama sam­fé­lag og gerir þeim kleift að starfa. Í alþjóð­legri starf­semi eins og flugi er þetta mikið vanda­mál. Fyr­ir­tækin leita leiða til að spara og horfa til lægsta sam­nefn­ara til sam­an­burðar. Ef hin fyr­ir­tækin gera þetta, af hverju ekki við?,“ spyr hann.

Hann segir verk­taka fyr­ir­tæk­is­ins í raun starfs­menn í fullu starfi. „Gervi­verk­taka þýðir að launa­maður er gerður að verk­taka, þrátt fyrir að hann geti ekki á neinn hátt talist verk­taki. Launa­fólk, eins og áhafnir flug­véla, ræður ekki hvernig eða hvenær það vinnur sín verk því það er flug­fé­lagið sem setur því það fyrir sam­kvæmt ákveðnum lögum og reglum. Launa­fólk í flug­vélum hefur heldur ekki umráð yfir þeim tækjum sem notuð eru og flug­á­hafnir fá mjög skýrar verk­lags­reglur til að vinna eftir frá sínu flug­fé­lagi. Þrátt fyrir þessar aug­ljósu stað­reyndir kom­ast flug­fé­lögin sum hver upp með að „bjóða“ starfs­fólki sínu ein­göngu verk­taka­samn­inga. Þetta er bara það sem er í boði og ef þú vilt þetta ekki, þá eru nógu margir aðrir sem munu þiggja þessi kjör,“ segir Jóhannes.

Jóhannes lýsir svo aðstæðum í fyr­ir­tæk­inu. „Bluebird Nordic eða Bláfugl ehf. er íslenskt flug­fé­lag með flug­rekstr­ar­leyfi frá Sam­göngu­stofu. Félagið gerir út á frakt­flug til og frá land­inu og nýtir til þess flug­vélar og starfs­fólk með aðsetur á Íslandi. En nú ætlar fyr­ir­tækið að skilja sig frá íslenskum mark­aði og segja sig frá íslensku sam­fé­lagi, með því að segja upp þeim 11 flug­mönnum félags­ins sem starfa á íslenskum kjara­samn­ingi og ráða gervi­verk­taka í stað­inn. Eða eins og félagið kallar það: „sjálf­stætt starf­andi flug­menn“. Þannig losnar fyr­ir­tækið undan því að greiða opin­ber gjöld eins og trygg­inga­gjald og líf­eyr­is­sjóð af launum fyrir þessa starfs­menn. Hinir sjálf­stætt starf­andi flug­menn skulu sjálfir skila þeim greiðslum af verk­taka­greiðslum sínum,“ lýsir Jóhannes.

Hann skorar að lokum á alla þá sem standa í inn- og útflutn­ingi að taka afstöðu og velta fyrir sér hvort þau vilji taka þátt í þessu. „Sam­fé­lags­leg ábyrgð fyr­ir­tækja er æski­leg en hún verður ekki meiri en sið­ferði stjórn­enda þess­ara sömu fyr­ir­tækja. Þetta mál Bláfugls og fram­koma þeirra gæti verið próf­steinn á það sem koma skal. Hverjir ætla að stunda við­skipti við Bláfugl núna? Ætla inn- og útflytj­endur að láta sig það ein­hverju varða að þetta fyr­ir­tæki und­ir­bjóði og hunsi íslenskan vinnu­markað á þennan hátt? Nútíma­leg fyr­ir­tæki eru flest með sýn og stefnu um sam­fé­lags­lega ábyrgð. Nú þurfa þau að sýna þessa stefnu í verki og velja þá sem þau skipta við. Ég skora á alla þá sem standa í inn- og útflutn­ingi með flug­frakt til og frá Íslandi að taka nú afstöðu. Þessi fram­koma Bláfugls er ekki boð­leg fyrir fyr­ir­tæki á Íslandi. Hvar á að stoppa í gervi­verk­taka­væð­ing­unni? Eða eigum við öll að vera gervi­verk­takar með okkar eigið póst­hólf á aflandseyju? Þá yrði senni­lega lítið til í sam­eig­in­legum sjóðum til að takast á við næstu kreppu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð