Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Faðir Bóelar var aðeins 61 árs og hún kom að honum blóðugum: „Öskra á mömmu að koma ekki niður“

Faðir Bóelar var aðeins 61 árs og hún kom að honum blóðugum: „Öskra á mömmu að koma ekki niður“

Krist­borg Bóel Stein­dórs­dóttir þátta­gerð­ar­kona kom að föður sínum blóð­ugum í stig­anum þar sem blæddi úr öllum vitum. Hann var lát­inn þremur vikur síðar.

Bóel, eins og hún er oft­ast kölluð, ræddi erf­iðan upp­vöxt sinn á alkó­hólista­heim­ili í við­tali við Frétta­blaðið. Þar ræðir hún einnig skiln­að­ina tvo sem hún hefur gengið í gegnum, hið and­lega þrot sem hún upp­lifði og hversu mikið ADHD-grein­ing hennar á full­orð­ins­árum breytti líf­inu.

Bóel ólst upp á heim­ili með áfeng­is­sjúkum föður og móður sem flúði vand­ann í miikla úti­vinnu. „Á mínum upp­vaxt­ar­árum varð ég aldrei vitni að átökum eða neinu ljótu, en ég ólst upp við mikla van­virkni og var mikið ein að redda mér. Það voru allir að gera sitt besta en pabbi var þó ekki að sinna föð­ur­hlut­verk­inu og mamma lík­lega að flýja sínar aðstæður með mik­illi vinnu og lít­illi sam­veru,“ segir Bóel.

Eftir þetta fór allt versn­andi, hann drakk meira, datt oftar út, flosn­aði upp úr vinnu og ein­angr­aði sig

Þegar Bóel var á ung­lings­árum fór sjúk­dómur föður hennar versn­andi og á end­anum var þannig komið fyrir honum að hann treysti sér ekki lengur í nein verk. „Við feðginin áttum það sam­eig­in­legt að elska skötu svo ég plat­aði pabba oft til að elda hana fyrir mig. Þegar ég var komin heim til­kynnti hann mér að hann gæti ekki eldað, því hann treysti sér ekki til að setja skötuna í útvötnun. Verkn­að­ur­inn að fara í frystikist­una, taka upp skötu­börð og setja í skúr­inga­fötu með köldu vatni var honum ofviða. Ég skildi þetta auð­vitað ekki og þetta var fyrsta minn­ing mín um að það væri virki­lega eitt­hvað í ólagi. Og eftir þetta fór allt versn­andi, hann drakk meira, datt oftar út, flosn­aði upp úr vinnu og ein­angr­aði sig,“ segir Bóel og bætir við:

Hér er Bóel á góðri stundum með börn­unum fjórum. Hún hefur gengið í gegnum tvo skiln­aði og algjört þrot.

„Hann fékk mikið af geð­lyfjum og tók þau ofan í áfengið. Ég man eftir að hafa oft hugsað þegar sím­inn hringdi að nú væri þetta búið. Jafnvel lædd­ist að mér sú hugsun að það yrði léttir fyrir alla. Svo líður manni hræði­lega að hugsa svona, en það er stað­reynd að þessi sjúk­dómur hel­tekur fjöl­skyldur.

Á end­anum fór svo að faðir Bóel var lagður inn á geð­deild. Þar sinnti Bóel honum.„Ég var þá ekki nema 19 ára en sinnti umönn­un­ar­hlut­verki gagn­vart manni sem vildi stundum ekki sjá mig, var stundum glaður, stundum grát­andi og stundum mátti ég ekki yfir­gefa hann,“ segir Bóel.

Þegar ég kom að honum lak blóð úr öllum vitum

Bóel hafði litla trú á árangri þegar faðir hennar til­kynnti honum að hann ætl­aði í með­ferð. Honum tókst hins vegar að halda sér edrú í tvö ár en þá dundu ósköpin yfir. „Ég var uppi að prjóna þegar ég heyri pabba koma og hann seg­ist vera að sækja eitt­hvað. Í fram­haldi heyri ég þann hæsta dynk sem ég hef nokkru sinni heyrt. Ég rýk fram og lít niður stig­ann þar sem ég sé pabba liggja hreyf­ing­ar­lausan. Líklega hefur hann verið á leið upp og fengið aðsvif þó við vitum það ekki, og dottið úr tröpp­unum beint aftur fyrir sig og fallið á hnakk­ann á stein­gólfið fyrir neðan. Þegar ég kom að honum lak blóð úr öllum vitum en í sömu andrá kom mamma inn með strák­inn og ég öskra á hana að koma ekki niður,“ segir Bóel.

Aðkoman eftir fallið var lengi greipt í huga Bóelar. Það blæddi mikið inn á heila föður hennar og var hann fluttur með þyrlu á sjúkra­hús. „Við sátum yfir honum í þrjár vikur eða þar til hann lést, aðeins 61 árs.“

Bóel bætir við að auð­vitað hafi verið sorg­legt að missa föður sinn, þegar hann loks hafði tök á að lifa líf­inu. Hún er samt sem áður afar þakk­lát fyrir þann tíma sem hann náði að vera edrú, áður en hann féll frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð