Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Svona sparar þú risaupphæðir: 20 bestu sparnaðarráðin fyrir árið 2021

Svona sparar þú risaupphæðir: 20 bestu sparnaðarráðin fyrir árið 2021

Gott sparn­að­ar­ráð er gulls ígildi. Mannlíf deilir hér með les­endum 20 ráðum sem munu spara fólki frá tugum þús­und og upp í hund­ruð þús­unda króna á ári, þá má finna aðra umfjöllun hér. Hjá mörgum fjöl­skyldum skiptir hver króna máli og eftir að Kór­óna­veiran hóf að herja á heim­inn er fjöldi fólks atvinnu­laust eða tekjur hafa dreg­ist saman. Það er því aldrei mik­il­væg­ara að kunna list­ina að spara.

SJÁ EINNIG: 25 RÁÐ OG ÞÚ GRÆÐIR

Sparn­að­ar­ráðin eru fengin héðan og þaðan en flest eru þau fengin úr einni allra skemmti­leg­ustu grúppu sem er að finna á sam­fé­lags­miðlum: Sparn­aðar tips á Facebook. Mannlíf mælir með að les­endur geri sér ferð þangað næst þegar þeir bregða sér á flakk á ver­ald­ar­vefnum.

Hvernig sem fjár­hag­ur­inn er, þá geta allir grætt á Sparn­að­ar­ráðum Mannlífs!

  • Afgangi af heima­bök­uðum pizzum má henda í frysti. Plúsinn: Gott er að eiga pizzusneiðar í fryst­inum þegar löngun í skyndi­bita hellist yfir þig.
  • Skerðu app­el­sínur og epli í báta og settu í frysti. Þegar þig langar í ferskan drykk, þá fyllir þú fal­lega könnu af vatni og hendir frosnum ávöxtum út í. Plúsinn: Kannan verður nán­ast eins og skraut, lista­verk eða stofustáss.
  • Keyptu skeggsnyrti og þú sparar yfir 20 þús­und, jafn­vel mun meira. Rak­véla­blöð kosta sitt, fyrir utan rak­sápu, og bursta. Plúsinn: Skeggsnyrtir end­ist árum saman.
  • Notaðu duft í upp­þvotta­vél­ina í stað þess að kaupa töflur. Plúsinn: Dugar vikum eða mán­uðum lengur en töfl­urnar.
  • Skipti út safa fyrir vatn. Ef fjöl­skylda drekkur nokkra lítra af safa í viku en skiptir honum út fyrir vatn spar­ast tugi þús­unda. Plúsinn: Vatn er mun holl­ara en gos og syk­ur­drykkir.
  • Þriggja daga reglan! Ef þig langar í dýran hlut, hugs­aðu málið í þrjá daga. Plúsinn: Kannski var löng­unin í hlut­inn skyndi­hug­detta og kannski þarftu alls ekki á þessu að halda.
  • Skoðaðu heima­síðu verka­lýðs­fé­lags­ins þíns og athug­aðu vel og vand­lega hvað þeir styrkja og nið­ur­greiða. Mörg þeirra nið­ur­greiða: Læknis og jafn­vel tann­lækna­kostnað. Styrkur fyrir gler­augu, sál­fræði­þjón­ustu, Glasa-, tækni­frjóvgun og ætt­leið­ing og ýmis­legt fleira.
  • Aldrei yfir­gefa versl­un­ina án þess að koma við í „síð­asti séns hornið“ og athug­aðu hvort þar sé ekki eitt­hvað bita­stætt í gogg­inn. Versl­anir bjóða í auknum mæli upp á vörur sem eru að renna út á hag­stæðum kjörum og þar er Krónan og Nettó að gera góða hluti.
  • Nota fjöl­nota­þurrkur í stað eld­hús­papp­írs og búðu til borð­tuskur úr ónýtum fötum.
  • Keyptu fjöl­nota bómull­ar­skífur í stað einnota.
  • Fjár­festu í kæli­boxi til að hafa í bílnum þegar farið er í þeysi­reið um landið eða sunnu­dags­bílt­úr­inn. Smyrðu nesti fyrir fjöl­skyld­una og þá sleppir þú við að kaupa dýrt fæði á bens­ín­stöðvum eða veit­inga­stöðum. Muna að nesti í skól­ann og nesti í vinn­una sparar aura. Í Góða hirð­inum fást kæli­box á slikk.
  • Þú getur þetta líka! Þú þarft ekki að fara einu sinni í mán­uði í klipp­ingu, litun, plokkun, neglur, augn­hár­leng­ingar. Það er dýr við­halds­kostn­aður. Skoðaðu kennslu­mynd­skeið á Youtube! Plúsinn: Þú verður á end­anum snill­ingur í snyrtifræði og vin­sælust/vin­sælastur í vina­hópnum!
  • Notaðu nefið! Þó matur sé kom­inn yfir síð­asta sölu­dag, þýðir ekki að hann sé ónýtur. Plúsinn: Þú þjálfar nefið og eflir lykt­ar­skynið.
  • Hrafn­hildur í Sparn­að­ar­tips grúpp­unni bendir á að Grön Balance hand­sápa í 1 lítra umbúðum fæst í Krónunni. Hún segir: „Ég er með „freyði“ pumpu­skammt­ara og þarf 1:10 í pump­una og vatn á móti. Sýnist að þessi 1 lítri muni duga 2 ár.“
  • Þú þarft ekki að þvo hand­klæði eftir hvern ein­asta þvott. Þú varst að stíga út úr sturt­unni og lík­am­inn er hreinn og ert aðeins að þerra af þér vatn. Plúsinn: Hand­klæði enda oft á því prógrammi í þvotta­vél­inni sem tekur lengsta tím­ann. Þú ert að spara aura, raf­magn og tíma.
  • Ódýrara er ekki alltaf málið. Ef varan er drasl og end­ist ekki, þá fer sparn­að­ur­inn fyrir bý.
  • Nota sprey­brúsa undir upp­þvotta­lög. Þú blandar nokkrum dropum í brús­ann og fyllir með vatni. Margir eru gjarnir á ofnotkun á upp­þvotta­legi.
  • Í Sparn­aðar tips grúpp­unni er þetta ráð að finna: „Raspa niður hand­sápur, gamlar sem nýja. Þá þarf að setja nokkrar mat­skeiðar í vatns­könnu eða skál og láta standa í einn til tvo sól­ar­hringa. Þetta setur þú á tómar sjampóflöskur. Þá er komin prýði­leg hand- eða sturtu­sápa.“
  • Notaðu lítið magn af þvotta­efni í hverja vel. Svein­laug í Sparn­aðar tips segir: „Magnið sem mælt er með er út í hött. Dugar að nota 1/3 eða 1/4 af því í hvert skipti.“

Þá er þess­ari yfir­ferð lokið, HÉR MÁ LESA fyrri umfjöllun Mannlífs um sparn­að­ar­ráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ