Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Halldór segir nær flesta eldri borgara fara á mis við háar upphæðir í hverjum mánuði

Halldór segir nær flesta eldri borgara fara á mis við háar upphæðir í hverjum mánuði

Halldór Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur í Holti og einn stofn­enda Flokks Fólksins, segir í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu að mark­visst hafi verið komið í veg fyrir betri lífs­kjör eldri borg­ara á síð­ustu árum. Hann telur upp allar þær skerð­ingar sem eldri borg­arar þurfa að þola. Hann lýsir þeim ein­fald­lega sem ósann­gjörnum.

„Flestir stjórn­mála­flokkar hafa gefið lof­orð fyrir kosn­ingar um bætt kjör eldri borg­ara og kapp­kostað að lýsa hlýjum hug til þeirra, sem lögðu grunn að upp­bygg­ingu og hag­sæld þessa lands. Reyndin er hins vegar sú, að kjör þeirra sem minnst hafa, eru skert mest, með líkum hætti og kjör öryrkja eru skert. Mark­visst er komið í veg fyrir að lífs­kjör þess­ara hópa hækki í sam­an­burði við laun og lífs­gæði ann­arra í land­inu. Loforð flokka í rík­is­stjórnum und­an­farin 12 ár um bættan hag, hafa reynst orð­skrúð og mark­leysa,“ segir Halldór.

Hann telur svo skerð­ing­arnar lið fyrir lið:

„Skerð­ing­arnar 1. Líf­eyr­is­greiðslur til eldri borg­ara eru skatt­lagðar sem almennar tekjur með allt að 45% skatti, þótt stór hluti af því fé, sem sjóð­fé­lag­inn á í við­kom­andi líf­eyr­is­sjóði, hafi orðið til vegna vaxta og ann­arra hækk­ana fjár­magns, og ætti því að skatt­leggj­ast sem fjár­magnstekjur, þ.e. með 22% skatti.

2. Greiðslur frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins (TR) skerð­ast um 45% á móti líf­eyr­is­sjóðs­greiðslum umfram kr 25.000 á mán­uði og vinnu­launum umfram kr. 100.000 á mán­uði. Til við­bótar þeirri skerð­ingu á greiðslum frá TR, reikn­ast tekju­skattur á líf­eyr­is­greiðsl­urnar og vinnu­launin, þannig að skerð­ingin og skatt­ur­inn af greiðslum umfram frí­tekju­markið geta numið allt að 81,9%. Hver er til­bú­inn að vinna við þá ósann­girni gagn­vart því sem ætti að vera grund­vall­ar­at­riði hjá hverju lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi; að fá að vinna til launa sér til bjargar frá fátækt og borga af því skatt eins og aðrir, en ekki til við­bótar með skerð­ingu, þannig að nær ekk­ert sé eftir?

3. Ofan­greindar við­mið­anir um skerð­ingar hafa verið óbreyttar í fjögur ár. Þegar allt annað hækkar í gjöldum og launum eftir vísi­tölum og verð­bólgu, þá ættu við­mið­un­ar­fjár­hæðir vegna frí­tekju­marks að hækka árlega miðað við það. Þessar óbreyttu skerð­ingar á greiðslum frá TR, eru því ekk­ert annað en lækkun á greiðslu­stöðu þessa fólks til lífs­bjargar, þeirra sem minnst fá.

4. Ákvörðun um að skerða með sama hætti des­em­ber­upp­bót og sum­ar­or­lof, sem TR greiðir til eldri borg­ara, var skerð­ing. 2008 var samið um að allir fengju þetta sem upp­bót á laun, trygg­ing­ar­greiðslur og bætur. Hverjum skyldi hafa dottið í hug við þá samn­inga, að skerð­ingum yrði við­haldið árlega síðan?

5. Skatt­leys­is­mörkin voru lækkuð um kr. 3.836 á mán­uði, eins og reyndar var einnig gert á síð­asta ári, í bæði skiptin án umfjöll­unar, sem sann­ar­lega bitnar mest á þeim sem minnst hafa og er því skerð­ing. Grunn­líf­eyrir hækk­aði 1. jan­úar um 6,1% í kr. 266.033 á mán­uði. Hækkunin var skil­greind 3,6%, miðað við óskilj­an­legan útreikn­ing hækk­unar, lík­lega frá 2019, að við­bættri 2,5% hækkun, sem sam­bæri­legir hópar fengu að lág­marki, vegna sömu hækk­ana á föstum auka­tekjum rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga 2021, sem voru þó víða hærri, svo sem á sorp­hirðu­gjöldum og póst­burð­ar­gjöldum. Hækkun TR frá 1. jan­úar 2021 reynd­ist vera um kr. 10.000 á mán­uði, sem eftir skatt­lagn­ingu og með lækk­uðum per­sónu­af­slætti skilja eftir afgreiðslu TR, kr. 198.986, en hjá ein­stæð­ingum með heim­il­is­upp­bót kr. 245.270“

Allar ríkisstjórnir sekar

Halldór segir allar rík­is­stjórnir frá hruni bera ábyrgð á þessu. „Þannig er við­haldið stefnu rík­is­stjórna frá hruni 2008 að lækka árlega verð­gildi greiðslna TR og til við­bótar að við­halda skatt­lagn­ingu lág­marks­greiðslna til sárrar fátæktar. Hvernig getur það verið sann­gjarnt sam­an­borið við krónu­tölu­hækk­anir sem aðrir hafa notið árið 2020 eða við lífs­kjara­samn­inga þá og einnig þetta ár, ásamt öðrum launa­hækk­unum?,“ spyr Halldór.

Hann segir þetta gíf­ur­lega háar upp­hæðir sam­tals. „Samkvæmt svari ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi var með­al­upp­hæð elli­líf­eyris og heim­il­is­upp­bótar árið 2017 kr. 241.250 á mán­uði frá TR. Greiðslur þá án skerð­inga hefðu kostað rík­is­sjóð 101,9 millj­arða, en rík­is­sjóður greiddi út 66,9 millj­arða í elli­líf­eyri og heim­il­is­upp­bót. Skerð­ing­arnar spör­uðu rík­is­sjóði því um 35 millj­arða það ár. Þar af spör­uðu skerð­ing­arnar vegna líf­eyr­is­sjóðs­greiðsln­anna lík­lega um 70% af þeirri upp­hæð eða um 24 millj­arða. Hvað skyldi upp­hæðin hafa verið á síð­asta ári, vegna áunn­inna rétt­inda eldri borg­ara, sem Alþingi með ólögum heim­ilar að séu teknar af lög­bundnum sparn­aði ein­stak­linga allt frá 1969? Getur verið að alþing­is­menn átti sig ekki á því hvernig kerfið er úthugsað með öllum þessum skerð­ingum, sem verður að breyta með lögum, ef við viljum búa í rétt­ar­ríki, þar sem sann­girni ríkir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð