Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Mamma þín dó í nótt“

„Mamma þín dó í nótt“

Eftir // Oddrúnu Láru Friðgeirsdóttur

„Mamma þín dó í nótt“. Þetta voru orðin sem ég vakn­aði við þann 14. maí 2006. Þá var ég 14 ára. Eitthvað sem ég hafði lengi búist við en gat engan veg­inn búið mig undir var orðið að veru­leika.

Alltaf býst maður við þessu á morgun, ekki í dag.

Falleg og góð og kenndi mér margt

Hún mamma var fal­leg og góð, rosa­lega fyndin og umhyggju­söm. Hún var ein­stæð móðir með mig og stóru systur mínar tvær. Hún kenndi mér svo margt og elskaði mig mikið. Á hverju ein­asta kvöldi kyssti ég hana og sagð­ist elska hana og hún mig, og ef ég bað um sopa af Diet Grape-inu hennar sagði hún ekki bara já. Hún sagði:

„Já, af því að það ert þú.“

Mér fannst samt alltaf Grape vont, það var bara sport að fá sopa. Mamma kenndi mér for­dóma­leysi og að bera virð­ingu fyrir mönnum og dýrum. Ef ég tjáði henni skoðun mína á ein­hverju þá spurði hún mig alltaf:

„Af hverju?“

Það þýddi ekki að hún efað­ist um mig, heldur vildi hún að ég myndi íhuga mál mitt og færa rök fyrir skoðun minni þó svo að hún væri ekki sú sama og hennar.

Sjúkdómurinn náði yfirhöndinni

En mamma mín var geð­veik. Hún glímdi við og þjáð­ist af geð­hvarfa­sýki. Geð­hvarfa­sýki fylgir oft­ast þung­lyndi sem herjar af slíkum mætti á þann veika að erfitt er að færa það í orð. Hún tókst einnig á við kvíða.

Mamma lærði hús­gagna­smíði þegar ég var yngri og starf­aði sem smiður. En þegar ég var u.þ.b. 9 til 10 ára fóru veik­indin að segja sífellt meira til sín, þar til hún hætti að vinna og var greind öryrki.

Á síð­ustu árunum var hún inn og út af geð­deild og í iðju­þjálfun. Nokkrum sinnum hafði hún reynt sjálfs­víg.

Aðfara­nótt mæðra­dags­ins 2006 náði sjúk­dóm­ur­inn loks­ins yfir­hönd­inni og hún end­aði sitt líf.

Hetjuleg barátta mömmu

Ég hef oft verið spurð hvort ég sé reið út í mömmu. Reið af því að hún ákvað að fara frá okkur. Og ég heyri oft fleygt fram að sjálfs­víg sé sjálfselska. Alltaf verð ég jafn­hissa að heyra þetta.

Þessa nótt tók mamma ekki þá sjálfselsku, með­vit­uðu ákvörðun um að yfir­gefa börnin sín.

„Mamma kenndi mér svo margt og elskaði mig mikið“

Hennar veik­indi, van­líðan, hennar sjúk­dómur varð þess vald­andi að hún dó. Hennar mein sást ekki utan á henni og því á sumt fólk enn erfitt með að skilja hvernig það getur dregið mann­eskju til dauða.

Eftir að hafa alist upp með geð­veiki í kringum mig og horft upp á þessi veik­indi og þá rosa­legu van­líðan get ég ekki með nokkru móti séð hvernig mann­eskja getur talist sjálfselsk. Mamma barð­ist á hverjum ein­asta degi, virki­lega barð­ist, við erfið veik­indi og var aug­ljós­lega ekki að sýna van­mátt eða eig­in­girni á neinn hátt, heldur hetju­lega bar­áttu.

Opnum umræðuna, ófeimin

Oft eru geð­ræn veik­indi í umræð­unni og þessi umræða hefur verið örlítið opn­ari und­an­farin ár. Árið sem mamma dó, 2006, voru þau 32 sem féllu fyrir eigin hendi.

22 karlar og 10 konur.

Tíðnin hér á landi sveifl­ast frá 33-37 á hverju ári, 2 til 3 í hverjum mán­uði.

Mér finnst samt enn langt í land með að talað sé jafn opin­skátt um geð­ræn veik­indi og um önnur, sér­stak­lega miðað við þann fjölda sem berst við þessi veik­indi og enn fleiri aðstand­endur eins og ég sem þurfa að kljást við sorg­ina yfir að missa ein­hvern sem deyr úr þessum veik­indum. Enn er þetta skömmustu­mál hjá mörgum.

Ég vona að það breyt­ist.

Höfundur: Oddrún Lára Friðgeirsdóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð