Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Einn af bestu sonum Hafnarfjarðar er látinn: „Þúsundir minnast nú læriföður”

Einn af bestu sonum Hafnarfjarðar er látinn: „Þúsundir minnast nú læriföður”
kerti

Haukur Helgason er lát­inn. Hann kom víða við á langri ævi en hann var meðal ann­ars sjó­maður, skóla­stjóri og stjórn­mála­maður, svo nokkuð sé nefnt. Hann stýrði Öldutúns­skóla ára­tugum saman og því ljóst að hann snerti líf margra Hafn­firð­inga. Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Alþýðu­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar, segir hann einn af bestu sonum Hafn­ar­fjarðar í minn­ing­ar­grein.

Morg­un­blaðið tekur saman ævi­störf hans en hann kom víða við. „Haukur var sjó­maður á Ísafirði 1947-49, tog­ara­sjó­maður hjá BÚH 1949-50, sjó­maður, verka­maður og vöku­maður með námi og kennslu 1950-58, for­stöðu­maður Vinnu­skóla Hafn­ar­fjarðar í Krísuvík 1959- 64, kenn­ari við Barna­skóla Hafn­ar­fjarðar 1955-61 og var skóla­stjóri Öldutúns­skóla frá stofnun 1961 og til 1998.”

Haukur tók virkan þátt í ýmsum félags­störfum. Hann sat í samn­inga­nefnd kenn­ara og BSRB frá 1970 til 1985. Hann sat í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar 1974 til 77 og var einn af stofn­endum Fjarð­ar­frétta.

Guð­mundur Árni segir Hauk hafa látið sín til taka í Hafn­ar­firði og víðar. „Haukur Helgason var einn af bestu sonum Hafn­ar­fjarðar. Hann gerði umhverfi sitt og sam­fé­lag betra. Kraft­mik­ill og ákveð­inn og fylgdi fast eftir hug­sjónum sínum, mark­miðum og áformum. Lét svo sann­ar­lega til sín taka og kom víða við á langri ævi. Og lagði ávallt gott til. Og nú er hann allur. Lést 87 ára gam­all á Hrafn­istu í Hafn­ar­firði,” segir Guð­mundur Árni.

Hann segir þús­undir nú syrgja. „Haukur Helgason var mynd­ar­maður á velli, lá hátt rómur, mælskur, brosmildur og hlýr. Var vel til for­ystu fall­inn, enda kall­aður til slíkra starfa oft og einatt. Lífs­starf hans var að vinna með ungu fólki og koma því til manns og mennta; það gerði hann sem skóla­stjóri Öldutúns­skóla í heil 37 ár, allt frá stofnun skól­ans 1961. Var frum­kvöð­ull í skóla­starfi, frjór og fram­sæk­inn um nýtt og end­ur­bætt skóla­starf á fjöl­mörgum sviðum. Þúsundir nem­enda Hauks í gegnum ára­tug­ina minn­ast nú læri­föður, sam­herja og vinar,” segir Guð­mundur Árni.

Hann segir Hauk hafa verið gegn­heilan jafn­að­ar­mann. „En Haukur Helgason var ekki maður ein­hamur. Hann var dugn­að­ar­forkur, félags­málatröll og hafði ein­lægan áhuga á því að gera þjóð­fé­lagið rétt­lát­ara. Í honum bærð­ist heitt hjarta þess manns sem vildi leggja lið og hjálpa, ekki síst þeim er höllum fæti stóðu. Hann var og enda gegn­heill jafn­að­ar­maður, krati, Hafn­ar­fjarð­ar­krati. Hann þekkti vel bar­áttu fólks­ins í Firðinum fyrir brauð­inu. Haukur vildi jafn­rétti í raun; að allir hefðu jafnan rétt til mennt­unar, atvinnu við hæfi og ann­arra lífs­ins gæða, burt­séð frá stétt, kyni eða lit­ar­hætti. Hann vildi sjá bræðra­lagið blómstra; virka sam­vinnu fólks og sam­hjálp í lífs­ins erli. Og hann unni frels­inu; að almenn­ingur væri frjáls til athafna og orða og gæti nýtt hæfi­leika sína og tæki­færi til fulln­ustu.”

Guð­mundur Árni sendir sam­úð­ar­kveðjur fyrir hönd jafn­að­ar­manna um land allt. “Við Hafn­ar­fjarð­ar­kratar, Alþýðu­flokk­ur­inn og jafn­að­ar­menn víða um land þökkum mann­vin­inum Hauki Helga­syni fyrir langa og far­sæla sam­ferð og sam­vinnu, góðar og glaðar stundir og hans merku verk til hags­bóta fyrir land og þjóð. Öllum ætt­ingjum hans og vinum sendi ég hug­heilar sam­úð­ar­kveðjur og bið þeim Guðs bless­unar. Blessuð sé minn­ing Hauks Helga­sonar.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð