Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

TikTok-perrinn herjar á Austurland – Sum börn komu með krók á móti bragði – Sjáðu bréfið

TikTok-perrinn herjar á Austurland – Sum börn komu með krók á móti bragði – Sjáðu bréfið

For­eldrar á Aust­ur­landi, nánar til­tekið í Múla­þingi, eru varaðir við því að mörg dæmi séu um að full­orð­inn maður hafi reynt að kaupa nekt­ar­myndir af börnum gegn greiðslu. Maðurinn setur sig í sam­band við börn á miðlum svo sem TikTok, Snapchat, leik­inn Among us, Telegram, Whats app, Discord, svo nokkuð sé nefnt. Hann lofar börn­unum á bil­inu 5 til 10 þús­und krónum fyrir mynd­ina.

Þetta kemur fram í bréfi til for­eldra sem er birt á vef Múla­þings. Nokkur umræða hefur verið um þennan glæpa­mann en sá er yfir­leitt kenndur við TikTok. Bréfið til for­eldra má lesa í heild sinni hér fyrir neðan en þar kemur meðal ann­ars fram að nokkur börn hafi snúið á þennan mann. Sum börn hafi ein­fald­lega fundið nekt­ar­myndir á net­inu, sent per­vert­inum þær og fengið greitt. Í bréf­inu er þó varað við þessu því best sé að hafa engin sam­skipti við mann­inn.

Bréfið til for­eldra

Við viljum vekja athygli ykkar á nýrri birt­ing­ar­mynd kyn­ferð­is­brota gegn börnum og ung­lingum sem vert er að vera vak­andi fyrir. Komið hafa upp nokkur til­vik hér­lendis á síð­ustu vikum þar sem full­orðnir ein­stak­lingar hafa greitt ung­mennum á grunn­skóla­aldri pen­inga eða önnur verð­mæti fyrir kyn­ferð­is­legar ljós­myndir.

Leið þeirra að sam­skiptum við ung­mennin er í flestum til­vikum í gegnum spjall á net­inu, oft í gegnum mjög vin­sæl for­rit sem bjóða upp á sam­skipti milli not­enda. Þar má til dæmis nefna TikTok, Snapchat, leik­inn Among us, Telegram, Whats app, Discord og fleiri for­rit.
Greiðslur sem börnum eru boðnar fyrir myndir eru ýmis­konar. Það er þekkt að þeim sé borgað í gegnum milli­færslu­for­rit eins og Aur og Kass, mis­háar upp­hæðir eftir því hvað sést á mynd­unum og hversu skýrar þær eru. Einnig eru dæmi um að börnum sé borgað í gjald­miðli sem ekki er eins auð­grein­an­legur fyrir for­eldra, þar má nefna Roblox pen­inga, inn­eignir í tölvu­leikjum og öðrum for­ritum.

Vitað er að full­orðnir aðilar sem verða sér út um eða kaupa ljós­myndir af börnum nota mynd­irnar sem kúg­un­ar­tól til þess að fá sendar fleiri og gróf­ari myndir. Þá er þekkt að þessir aðilar reyni að nálg­ast börnin enn frekar m.a. með því að gefa þeim gjafir og gera þeim ein­hvers konar greiða.

Þannig reyna þeir að gera sam­bandið við börnin per­sónu­legra, búa til sam­eig­in­leg leynd­ar­mál og gefa börn­unum þá til­finn­ingu að þau skuldi þeim eitt­hvað fyrir vikið.
Það er því miður þekkt að það getur reynst barni erf­ið­ara að neita við­kom­andi ef það hefur þegið gjafir eða pen­inga frá við­kom­andi. Barnið getur upp­lifað skömm yfir fyrri sam­skiptum og það reynst barn­inu erfitt að segja frá því sem hefur gerst.

Börn geta upp­lifað sölu á nekt­ar­myndum sem ein­falda leið til að eign­ast smá pen­ing án þess að gera sér nokkra grein fyrir hætt­unni. Vitað er að sum börn hafa stolið myndum af net­inu og selt hinum full­orðnu en mik­il­vægt er að stöðva strax aðgengi þess­ara aðila að börnum.

Mik­il­vægt er að við séum öll vak­andi fyrir þessum veru­leika og að for­eldrar eða for­sjárað­ilar taki spjallið með sínum börnum og séu með­vit­aðir um hvað börnin gera á net­inu. Það er nauð­syn­legt að börn átti sig á hætt­unni en upp­lifi ekki skömm við að segja frá sam­skiptum sem þau hafa átt á net­inu, eða aðrir sem þau þekkja til.

Börn þurfa að vera viss um að þau beri ekki ábyrgð á því sem skeð hefur, það getur reynst
full­orðnum ein­stak­lingi auð­velt að afvega­leiða barn af því að valda­ó­jafn­vægið milli þeirra er mikið. Ef börn segja frá eða þið hafið upp­lýs­ingar eða grun um mál af þessum toga þá getur verið um að ræða brot á hegn­ing­ar­lögum. Því ber að til­kynna málið taf­ar­laust til lög­reglu og barna­verndar í síma 112.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð