Glóð Jónsdóttir er tæplega tvítug stúlka sem lífsnauðsynlega þarf á nýju nýra að halda til að lifa lengur. Fjölskylda hennar auglýsir eftir hjartagóðum Íslendingi til að gefa nýra og bjarga þannig lífi Glóðar.

Móðir Glóðar, Selma Dan Stefánsdóttir, auglýsir eftir nýrnagjafa sem allra fyrst því sjúkdómur hennar er kominn á lokastig:
„Við óskum eftir nýra fyrir Glóð okkar. Glóð fæddist 3 mánuðum fyrir tímann. Hún er sannkallað kraftaverkabarn en hefur frá fæðingu glímt við nýrnarsjúkdóm sem er kominn á lokastig. Glóð er að fara hefja blóðskiljun. Í dag skerðir sjúkdómurinn öll hennar lífsgæði en hann hefur áhrif á andlega og líkamlega heilsu,“ segir Selma og heldur áfram:
„Sjúkdómnum fylgir mikil þreyta, orkuleysi og slen, háþrýstingur, járnskortur hausverkur og margt fleira. Glóð er í AB+ blóðflokk. Nýrnargjafinn þarf að vera andlega, félagslega og líkamlega tilbúinn til þess að gefa nýra og því fylgir læknisrannsóknir og viðtöl. Ef þú ert tilbúinn til þess að gefa nýra hafðu þá samband. Bestu þakkir í von um góð viðbrögð.“

Undir færslunar rita Glóð og fjölskylda. Ef þú vilt hjálpa eða þekkir einhvern sem er til í að hjálpa þá er hægt að hafa samband við Ígræðsludeild Landspitalans í síma 5432200.































Athugasemdir