Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, er ekki alls kostar sáttur við frétt Morgunblaðsins þar sem greint er frá því að vinsæll tónlistarmaður sé dottinn í það aftur. Umræddur tónlistarmaður er bandaríska söngkonan Miley Cyrus. Helgi Hrafn segir einkalíf frægs fólks ekki koma við almenningi.
„Nú er frétt á Mbl.is (K100), sem ég ætla ekki að auglýsa með því að vísa tengil í. Þar er frétt um að vinsæll tónlistarmaður sé aftur dottinn í það. Þar er fjallað um að viðkomandi hafi sést á bar einhvers staðar, en sagt einhvern tíma ætla að halda sig frá áfengi. Fréttinni lýkur á von um að viðkomandi nái sér á strik aftur,“ segir Helgi á Facebook.
Hann segir sjálfur að þetta sé kannski forréttindablinda sem valdi því að hann stingur niður penna út af þessu. „Kannski er forréttindablindan hérna í fílabeinsturninum að gera út af við mig, en mér finnst ekkert í lagi hvernig einkalíf frægs fólks er tekið í fjölmiðla eins og það komi almenningi við. Þessi einstaklingur misnotar engin völd, verður engum að skaða og græðir ekkert á því að eiga mögulega við áfengisvandamál að stríða sem almenningur veit ekki af. Enn síður ef raunveruleikinn er flóknari en það sem síast í gegnum tímaskort fjölmiðla og þekkingarleysi almennings á persónulegum aðstæðum og atburðum í lífi viðkomandi. Það er ekki fréttnæmt, og á ekki erindi til almennings, hvort að einstaklingur eigi við veikindi að stríða eða ekki, né hvernig viðkomandi gengur í baráttunni við þau veikindi,“ segir Helgi.
Hann segir sumt fólk frægt á Íslandi einungis vegna þess að það gerði eitthvað fréttnæmt. „En mögulega aðeins niður úr fílabeinsturni fræga fólksins. Það er nefnilega ekki lengur þannig að „opinberar persónur“ séu bara þær sem selja fullt af tónlist eða bjóða sig fram í stjórnmálum. Þær eru einfaldlega þær persónur, sem fjölmiðlar fjalla um. Það eru reyndar allnokkur dæmi um frægar manneskjur á Íslandi sem eru einungis „opinberar persónur“ vegna þess að þær sögðu eða gerðu eitthvað sem vakti athygli fjölmiðla, og urðu fyrir það að gjalda með einkalífi sínu. Þetta eru ekkert bara við í fílabeinsturninum með öll völdin, heldur fólk sem bara gerir eitthvað sem vekur athygli,“ segir Helgi.
Helgi telur þetta valda því að sumir forðast athygli. „Afleiðingin er sú að manneskjum er hollast að forðast athygli eftir fremstu megni, af ótta við að lenda í einhverjum gapastokki einn daginn fyrir það eitt að skera sig út úr fjöldanum. Mér finnst það afskaplega vond tilhugsun, en það er svolítið raunveruleikinn sem við búum við í dag. Ég bað sjálf um að verða opinber persóna, og kannski líka umræddur tónlistarmaður (þótt það geti vel verið vegna utanaðkomandi áhrifa – ég veit ekkert um það), en við föllum hinsvegar saman undir hugtakið „opinber persóna“ sem gerir engan svakalegan greinarmun á okkur sem báðum um athyglina og þeim sem báðu ekki um hana,“ segir Helgi.
„En fyrir utan það, þá skil ég bara ekki hvernig einkalíf opinberra persóna verður áhugaverðara við það eitt að opinbera persónan hafi beðið um að verða opinber persóna. Þarf nauðsynlega að finna einhverja réttlætingu fyrir því að svipta fólk einkalífinu, bara til að skemmta áheyrendum og selja auglýsingar í fjölmiðlum? Má þessi tónlistarmaður ekki bara eiga við sín meintu vandamál í friði, með aðstoð vina, fjölskyldumeðlima og mögulega sérfræðinga? Má það ekki bara?“
Hann segir fréttir um heilsufar frægs fólks tvístra athygli fólks. „Í ofanálag má benda á að það er ekki eins og að athygli fólks sé ótæmandi auðlind nú til dags. Allt í samfélaginu berst um hana, þar á meðal fjölmiðlar og stjórnmálamenn sem öskra sig hása til að reyna að benda á kviknakin, manngerð vandamál sem væri ekkert mál að leysa ef fólk sýndi því bara nægan áhuga. En þá þarf að velta sér upp úr meintum veikindum einhvers skemmtikrafts,“ segir Helgi.
Hann segist þó ekki ætla að beita sér gegn þessu á Alþingi. „Bara til umhugsunar. Eins og þið vitið vonandi er ég fyrsta manneskjan upp á dekk til að verja rétt fjölmiðla til tjáningar, og ég hyggst ekki leggja til nokkurn skapaðan hlut sem þingmaður í kjölfarið af þessu. En mér finnst þess virði að velta þessum samfélagsbreytingum aðeins fyrir okkur af og til, með hliðsjón af því að skilin milli óbreytts borgara og opinberrar persónu eru orðin mun óljósari en áður, en sömuleiðis því fyrirbærin einkalíf og tjáning hafa orðið fyrir tæknibyltingu sem ekki sér fyrir endan á, og við þurfum að vaxa sem samfélag samhliða til að geta tekist á við með góðu.“































Athugasemdir