Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Talsímadaman Dóra er 108 ára og les Moggann: „Það má alls ekki selja orkuna út úr landinu“

Talsímadaman Dóra er 108 ára og les Moggann: „Það má alls ekki selja orkuna út úr landinu“
Áskell og Dóra á sýn­ingu Áskels. Mynd: Laufey Dóra Áskelsdóttir

Dóra Ólafs­dóttir er 108 ára sem gerir hana að elsta Íslend­ingnum. Hún er með skoð­anir á flest­öllum þjóð­málum og hefur orðið sífellt rót­tæk­ari í stjórn­mála­skoð­unum með árunum og ekki síst hvað varðar mál­efni kvenna.

Vil lifa svo lengi sem ég stend í lappirnar

„Ég full­yrði að meiri kven­rétt­inda­kona er vand­fundin“, segir Áskell Þórisson, fyrr­ver­andi rit­stjóri og blaða­maður og sonur Dóru. Mannlíf átti við­tal við Dóru í með dyggri hjálp Áskels en þrátt fyrir að vera ótrú­lega góð til heils­unnar er heyrnin farin að gefa sig.

Dóra segir að hún hafi alveg lifað nógu lengi. En um leið hefur bætir hún því við að hún vilji lifa svo lengi sem hún geti staðið í fæt­urna! En vill Dóra ekki að minnsta kosti verða 110 ára? Hún bara skelli­hlær.

Dóra prjónar enn alls konar skemmti­leg dýr og furðu­verur

Megum ekki selja orkuna úr landi

Dóra hefur alltaf haft gríð­ar­legan áhuga á þjóð­málum og talar oft um sjálf­stæði þjóð­ar­innar. Hún leggur áherslu mik­il­vægi þess að Íslend­ingar átti sig á að þeir þurfa að hafa fyrir því að vera sjálf­stæð þjóð. „Sjálf man ég aðra tíma og segi margoft að það má alls ekki selja orku þjóð­ar­innar út úr land­inu“. Og hún er ekki hrifin af þeim stjórn­mála­mönnum sem horfa á orku­sölu í gegnum sæstreng sem leið til tekju­öfl­unar.

Davíð og Jón Steinar í uppáhaldi

Dóra kosið marga stjórn­mála­flokka og aldrei verið flokks­bundin. Hún hefur horft til fram­bjóð­enda þótt hún hafi lítið hampað ein­staka stjórn­mála­mönnun og aldrei bundið sig við stefnur flokka  „Ég hafði vissu­lega gaman af því að fá Davíð Oddsson í heim­sókn á 108 ára afmæl­inu. Ég les Moggann dag­lega, svo ekki sé nú talað um grein­arnar hans Styrmis Gunn­ars­sonar, fyrrum rit­stjóra. Hann er í sér­stöku upp­á­haldi hjá mér sem og Jón Steinar Gunn­laugs­son, lög­fræð­ingur“.

Reyndar sagði Dóra frá því í við­tali við Morg­un­blaðið fyrir nokkrum árum að Jón Steinar skrif­aði góðar greinar. Jón Steinar sá þetta og færði henni bók­ina sína, sem hann gaf út fyrir tveimur árum eða svo. Davíð Oddsson gaf henni einnig lífs­tíð­ar­á­skrift af Morg­un­blað­inu á 108 ára afmæli hennar.

Göngur og sund en afþakkaði bílprófið

Dóra er alveg merki­lega vel á sig komin og erfitt að trúa því að hún sé 108 ára. Hún var í 40 ár „tal­símadama” hjá Lands­sím­anum á Akureyri, gekk langa vega­lend til og frá vinnu auk þess að fara í sund dag­lega. Áskell sonur hennar er viss um að þessi mikla hreyf­ing og úti­vera sé að skila sér með góðri heilsu núna. Dóra þakkar einnig mat­ar­ræð­inu í upp­eld­inu á Kljá­strönd gott heilsu­far en und­ir­staðan í því var fersk­meti, nýveiddur fiskur og nýskotin bráð.

Dóra við minn­is­merki Auðar djúpúðgu í ferða­lagi sem tekið í til­efni af 100 ára afmæli hennar.

Á ein­hverjum tíma­punkti ákvað Dóra að taka bíl­próf en var fljót að sjá að það hent­aði henni ekki. Þess í stað bauð hún öku­kenn­ar­anum inn í kaffi og með því og þakk­aði svo pent fyrir sig.

Les allt sem hönd á festir

Dóra hefur ótrú­legt minni en ekk­ert endi­lega á það sem gerð­ist fyrir 100 árum eða svo. Lengi vel hafði hún gríð­ar­legan áhuga á Auði Djúpúðgu, sá e.t.v. eitt­hvað í hennar sögu sem heill­aði hana að mati Áskels. „Ég les ekki bara Morg­un­blaðið dag­lega heldur alls kyns bók­menntir” segir Dóra.

Hún las allar bækur Vil­borgar Dav­íðs­dóttur og hefur átt það til að halda langa fyr­ir­lestra yfir syni sínum um Auði. Eitt sinn áskotn­að­ist henni banda­rísk bók um merkar konur og í henni var m.a. sagt frá Auði. „Mamma lét hvorki laust né fast fyrr en ég fór með bók­ina til Vil­borgar sem gjöf frá mömmu” bætir Áskell við en síðar hitt­ust þær en Auður kom í Skjól og las fyrir gamla fólkið.

Sýn­is­horn af prjóni Dóru

Íslensk list til Kaliforníu

Nýlega fór Dóra á sýn­ingu á verkum Áskels en hann hann vinnur nátt­úru­myndir. Dóra gerði sér lítið fyrir og keypti fjórar myndir, eina handa dóttur sinni, Ásu, sem býr í Banda­ríkj­unum eina mynd fyrir hverja af dótt­ur­dætrum sínum.

„Ég hef farið nokkrum sinnum farið til Kali­forníu þar sem Ása býr en hef að öðru leiti aldrei verið gefin fyrir utan­lands­ferðir” segir Dóra.

Mynd eftir Áskel en Dóra hefur sent nokkrar slíkar til Kali­forníu. askphoto.is

Dóra flutti suður árið sem hún varð hund­rað ára og hefur verið á Skjóli í rúm átta ár og lætur vel af sér þar.

Mannlíf þakkar Dóru og Áskeli skemmti­legt spjall og vonar að við Íslend­ingar fáum að hafa þessa vel gefnu og stefnu­föstu konu í sam­fé­lag­inu með okkur sem allra lengst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð