Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sverrir Páll var hrakinn úr farsælu starfi: „Kennarastarfið var líf mitt”

Sverrir Páll var hrakinn úr farsælu starfi: „Kennarastarfið var líf mitt”

Sverrir Páll Erlends­son, fyrr­ver­andi fram­halds­skóla­kenn­ari, segir óskilj­an­legt af hverju reynslu­boltum sé sparkað fyrir þær einar sakir að þeir séu 70 ára. Hann kenndi íslensku við Mennta­skól­ann á Akureyri frá 1974 til 2018 og þekkja því lík­lega flestir Akur­eyr­ingar hann. Sverrir segir að honum hafi lang­aði að halda áfram en það kemur ekki til greina. “Að und­an­förnu hafa verið nokkrar umræður um það að hið opin­bera láti kenni­tölu ráða því að starfs­fólki skuli sagt upp end­an­lega. Hér er átt við það að starfs­maður skuli skil­yrð­is­laust vera lát­inn hætta (það heitir að honum sé veitt lausn) í lok þess mán­aðar sem hann á sjö­tugs­af­mæli,” segir Sverrir í aðsendri grein sem birt­ist á Akureyri.net. 

Hann segir að margir vilja vinna lengur. „Umræð­urnar hafa meðal ann­ars stafað af því að margir sem ná þessum aldri eru enn full­frískir and­lega og lík­am­lega og hafa sumir auk heldur bæði löngun og vilja til að láta gott af sér leiða í fáein ár til við­bótar. Una því ekki að vera strik­aðir út eða skolað niður úr kerf­inu fyrir þá sök eina að hafa orðið sjö­tugir. Vissu­lega eru þeir líka til sem taka því guðs fegnir að öðl­ast frelsi frá starfi um sjö­tugt og sumum hentar að ljúka störfum tals­vert löngu fyrr, eru orðnir þreyttir og leiðir á vinnu sinni og vilja snúa sér að öðru. Sem betur fer eru ekki allir eins. Sumir hætta skil­vís­lega þegar þeir ná 67 ára aldri og sumir nýta sér ákvæði, sem trú­lega eru fólgin í kjara­samn­ingum, um að láta af störfum sam­kvæmt svo­kall­aðri 95 ára reglu. En sumir vilja vinna lengur,” segir Sverrir.

Hann segir að þetta mætti laga með því að skipta út einu orði fyrir annað í téðum lögum. „Til eru lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, og þau eru meðal ann­ars birt á vef Alþingis. Ef maður les þann pakka allan kemur í ljós að hann fjallar í meg­in­at­riðum um rétt­indi rík­is­ins og skyldur starfs­manna og hvernig ríkið eigi að bregð­ast við ef starfs­maður ger­ist á ein­hvern hátt brot­legur í starfi. Það er önnur saga. En í 33. grein þess­ara laga segir ein­fald­lega: Emb­ætt­is­manni skal veita lausn frá og með næstu mán­aða­mótum eftir að hann nær 70 ára aldri. Ein­fald­lega SKAL, og eng­inn afsláttur eða und­an­tekn­ing frá því. Mér skilst að yfir­menn stofn­ana lendi í ógöngum ef þeir láta sér koma til hugar að draga upp­sögn­ina eitt­hvað umfram það sem segir í grein­inni,” segir Sverrir. 

Hann segir að út af þessu hafi hann verið hrak­inn úr ævi­starfi sínu. „Nú er það svo að ég hef verið kenn­ari svo gott sem alla mína hunds og kattar tíð. Ég kenndi á fram­halds­skóla­stigi í 44 ár og einu betur í grunn­skóla. Mér hefur aldrei leiðst starf mitt, aldrei hef ég kviðið fyrir kom­andi við­fangs­efnum og ævin­lega hlakkað til hvers vetrar, hvers vinnu­dags. Kenn­ara­starfið var líf mitt. Ég vissi svo sem vel að ég yrði sleg­inn af, en er svo hepp­inn að eiga afmæli á sum­ar­leyf­is­tíma, en ekki á miðri önn. Sam­starfs­fólk mitt kvaddi mig með virktum og óvæntum fagn­aði og þakk­aði þannig sam­fylgd­ina (hvor­ugt ráðu­neytið sem ég vann fyrir hefur á þeim næstum þrem árum sem liðin eru sagt við mig takk né svei þér. Ég er ekki lengur til þar, ég var lát­inn hverfa, strikað yfir mig),” segir Sverrir. 

Hann segir lítið mál að breyta þessu ástandi að lokum. „Á þessu máli er til ein­föld lausn. Það er laga­breyt­ing sem felur í sér að skipta út einu orði í þess­ari umræddu 33. grein laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. Að fella brott orðið SKAL en setja þess í stað orðið MÁ. Að starfs­lok séu sveigj­an­leg. Vegna þess að starfs­maður verður ekki ónýtur á einum degi. Sjö­tugs­af­mælið er ekki lífs­hættu­legt og á þeim degi slokknar ekki á viti, vilja og reynslu neins manns.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð