Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Brynjar er hetja sem glímir við erfiðar minningar: „Svo svakalegt þegar þeir komu með barnið“

Brynjar er hetja sem glímir við erfiðar minningar: „Svo svakalegt þegar þeir komu með barnið“
Brynjar Þor­björns­son var einn þeirra sem komu að hörmu­legu slysi í Skötu­firði þar sem ung kona og barn létu lífið. Mynd: Guðmundur Sigurðsson.

Þjóðin hreifst mjög af fram­göngu fjög­urra veg­far­enda við það hörmu­lega slys þegar fjöl­skylda frá Flateyri lenti utan vegar í Skötu­firði í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Fjöl­skyldan var að koma úr milli­landa­flugi og mátti ekki gista syðra vegna sótt­varna­reglna og ók því af stað vestur undir nótt­ina í skamm­degi jan­ú­ar­mán­aðar.

Um nán­ast allt Ísa­fjarð­ar­djúp liggur veg­ur­inn með fram sjónum sem í skamm­deg­inu er hroll­kaldur og jafn­vel ís á fjörðum. Svo hörmu­lega vildi til að fjöl­skyldan, hjón með lítið barn, hafn­aði utan vegar í gler­hálku og úti í sjó.

Einn þeirra er kom á vett­vang og lagði mikið að mörkum við þessa fræki­legu björgun var Brynjar Örn Þor­björns­son verk­taki á Vest­fjörðum. Kvöldið áður var hann að ljúka vinnu inn í Djúpi og hugð­ist halda heim á leið á vöru­bif­reið sinni, en eitt­hvað varð til þess að hann ákvað að fresta för til næsta dags.

Íslenska þjóðin var slegin yfir harm­leiknum í Skötu­firði. Litli dreng­ur­inn, Mikolaj Majewski, var aðeins 18 mán­aða. Móðir hans, Kamila Majewska, lést einnig eftir hið hræði­lega slys en Tomek Majewska, faðir drengs­ins og eig­in­maður Kamila, komst lífs af.

„Ég veit ekki hvað olli því að ég frestaði heim­ferð­inni en það var eins gott því að ekki veitti af aðstoð þarna á vett­vangi slyss­ins. Það voru þrír komnir þarna á undan mér og búnir að vinna þrek­virki í köldum sjónum þegar ég kom að. Ég hef farið á nokkur skyndi­hjálp­ar­nám­skeið þannig að ég stóð nokkuð vel að vígi við fyrstu hjálp. Það var ótrú­lega erfitt að bíða hjálp­ar­vana eftir aðstoð og klukku­stundin ótrú­lega lengi að líða.“

„Það var svo svaka­legt þegar þeir komu með barnið, ég mun aldrei gleyma því. Það mun fylgja mér út lífið.“

Á undan Brynjari á slys­stað voru Einar Valur Krist­jáns­son for­stjóri útgerð­ar­fé­lags­ins Gunn­varar í Hnífsdal og Kristján G. Jóakims­son mark­aðs­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.
Þarna var líka Eiríkur Ingi Jóhanns­son, hetjan sem bjarg­að­ist í vit­lausu veðri undan ströndum Noregs er tog­ar­inn Hall­grímur fórst þar 2012.
„Þessir þrír voru búnir að vinna afrek við mjög erf­iðar aðstæður egar ég kom á stað­inn. Þeir unnu sann­kall­aða hetju­dáð.“

Brynjar seg­ist hrein­lega ekki vita hvernig honum líði eftir þessa þrekraun, það sitji auð­vitað í honum að koma að svo alvar­legu slysi þar sem ung kona og barn lét­ust og eftir sitji ungur faðir í sorg með hrun­inn heim­inn.

„Á meðan á þessu stóð tók ég til dæmis ekk­ert eftir því hvort mér var kalt. Það var ekki fyrr en ég skipti um föt í bílnum að ég átt­aði mig á að stíg­vélin voru full af köldum sjó og mér var öllum kalt en þá var björg­un­ar­fólk komið og allt í lagi að verða kalt.
Þetta verður manni erfið minn­ing, það var svo svaka­legt þegar þeir komu með barnið, ég mun aldrei gleyma því. Það mun fylgja mér út lífið,“ segir þessi harð­gerði björg­un­ar­maður.

Brynjar leggur mikla áherslu á að fólk, allur almenn­ingur fari á skyndi­hjálp­ar­nám­skeið til að geta betur brugð­ist við ef það kemur að slysum, sjálfur starfar hann með Björg­un­ar­fé­lagi Ísa­fjarðar og hefur farið þar á nám­skeið auk þess að fara í Slysa­varn­ar­skóla sjó­manna.

„Biðin inn­frá var mjög óvenju­leg fyrir mig því venju­lega er ég í hópi þeirra sem beðið er eftir þegar björg­un­ar­fé­lagið kemur til hjálpar. Nú veit ég enn betur hve mik­il­vægt er að bregð­ast fljótt við. En þeir sem voru komnir þarna að slys­inu á undan mér eru sann­kall­aðar hetjur, ég get eig­in­lega ekki lýst aðdáun minn i á fram­göngu þeirra,“ segir Brynjar Örn sem sjálfur verður að telj­ast harð­gerður nagli og úrræða­góður í betra lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð