Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sparnaður fyrir þig og umhverfið – Fjölnota þægindi

Sparnaður fyrir þig og umhverfið – Fjölnota þægindi

Hægt er að spara sér dágóðar upp­hæðir með því að nota fjöl­nota taubindi, buxna­hlífar og hreinsiskífur. Það er heil­næmara og fer mikið betur með umhverfið. Mannlíf kíkti í heim­sókn til Berg­lindar S. Heið­ars­dóttur eig­anda Laufa, sem saumar og hannar fjöl­nota tíða­vörur og hreinsiskífur.

Sparn­aður og umhverf­is­vernd eru Mannlífi hug­leikin. Þegar kemur að því að fólk fari á sínar mán­að­ar­legu blæð­ingar, er hægt að spara, vernda við­kvæma húð og umhverfið. Það er ekk­ert nýtt að konur skipti út einnota dömu­bindum og buxna­inn­leggjum, í fjöl­nota taubindi. Umræðan er samt sem áður mjög mik­il­væg og þörf. Mörgum þykir til­hugs­unin um að þvo og nota taubindi ekki spenn­andi og leggja ekki í að prófa. Það er þó þannig að fólk sem hafa látið sig hafa það að prófa, hefur fæst skipt aftur yfir í einnota. Hér erum við að fara aftur til for­tíðar en þá var talað um að konur hefðu á klæðum, not­uðu efni og sér­stakar tuskur sem dömu­bindi, gæðin eru auð­vitað tals­vert meiri í dag en þá. Ýmsar umhverf­is­vænar tíð­ar­vörur eru á mark­aðnum en ásamt taubindum eru til dæmis til sér­stakar túr­nær­buxur, sem fólk getur klæðst á þessu tilma­bili. Álfa­bik­ar­inn er líka vin­sæll hjá mörgum en tals­verður fjöldi þeirra sem nota bikar kjósa að nota taubindi sam­hliða, örygg­is­ins vegna.

Berglind S. Heið­ars­dóttir, eig­andi Laufa

Lauf

Mannlíf heim­sótti Berglind S. Heið­ars­dóttur, hún er eig­andi ,,einnar sauma­konu fyr­ir­tækis, “ eins og hún orðar það sjálf. Fyr­ir­tækið hennnar heitir Lauf og sér­hæfir sig í að sauma taubindi, buxna­inn­legg og hreinsiskífur. Berglind byrj­aði að sauma bindin fyrir sjö árum en þá aðal­lega fyrir sjálfa sig. Gaman er að segja frá því að Berglind byrj­aði að sauma á sauma­vél sem hún keypti fyrir ferm­ing­ar­pen­ing­ana sína og overlock vél mömmu sinnar sem hún var með í láni. Sauma­skap­ur­inn vatt heldur betur upp á sig og í dag á hún þetta glæsi­lega  fyr­ir­tæki. Berglind seg­ist hafa lagt mikla vinnu í að finna bestu efnin í vör­urnar og eru taubindin og hreinsiskíf­urnar hennar ein­ungis gerð úr gæða­efnum. Hægt er að sjá mjög ítar­legar upp­lýs­ingar á Facebooksíðu Laufa hér.

Alltaf gaman að velja ný taubindi

Persónuleg og fagleg þjónusta

Berglind veitir per­sónu­lega þjón­ustu við val á því hvað hentar hverjum og einum. Hún er reglu­lega með lag­er­á­fyll­ingar og tekur sér­pann­t­anir þess á milli. Berglind er auð­sjá­an­lega mjög vel að sér í þessum efnum og hugsar fyrir öllu, fag­mennskan upp­máluð. Það er meðal ann­ars hægt að fá hand­lituð velúr taubindi og hreinsiskífur hjá Lauf en Berglind hand­litar það allt sjálf. Hún segir að stærstu kúnna­hóp­arnir séu umhverf­is­sinnar, taubl­eyju­mömmur og fólk með við­kvæma húð. Margir vilja frekar kaupa vörur af litlum, heim­il­is­legum fram­leið­endum, heldur en að kaupa þau fjölda­fram­leidd af stórum fyr­ir­tækjum.

Allt hand­litað af Berglind

Fjölnota hreinsiskífur Laufa

Fjölnota hreinsiskíf­urnar koma í stað bómullar. Með þeim er hægt að gera allt það sama og bómullin er notuð í, fyrir utan að hreinsa af sér nagla­lakk. Bæði spar­ast pen­ingar þegar uppi er staðið og þetta er umhverf­is­vænn kostur. Hreinsiskíf­urnar fara ein­stak­lega vel með húð­ina og hreinsa mun betur en venju­leg bóm­ull. Berglind nýtir efnið sem verður afgangs, eftir að hún er búin að sníða bindin í skíf­urnar. Hreinsiskífur Laufa eru nú fáan­legar hjá Fermata vist­vænni verslun

Hand­lit­aðar hreinsiskífur

Umhverfi

Það er ekki bara umhverf­is­vænt að skipta út einnota vörum eins og dömu­bindum og bómull­ar­skífum, heldur er það sparn­aður líka. Þar að auki ertu ekki að ofbjóða húð­inni á mjög við­kvæmu svæði með einnota bindum sem sum inni­halda mis­góð efni. Margir ein­stak­lingar hafa óþol, jafn­vel ofnæmi fyrir einnota bindum. Fyrir þann hóp er nauð­syn­legt að geta valið eitt­hvað betra. Á lífs­leið­inni notar ein kona að jafn­aði 16.000 dömu­bindi eða tappa. Það þýðir að frá öllum konum á Íslandi (noti þær einnota) lenda 1.792.000.000 bindi í rusl­inu, sem síðan fer í land­fyll­ingu. Hér er miðað við tölur síðan 2017, konur á ald­urs­bil­inu 15 til 50 ára og meðal notkun þeirra á bindum frá upp­hafi blæð­inga til enda. Ekki er inn í þessum tölum buxna­inn­legg en sú tala er tölu­vert hærri.

Taubindi og hreinsiskífur

Sparnaður

Það er sparn­aður til lengri tíma litið að skipta yfir í tauið en stofn­kostn­að­ur­inn getur verið nokkuð hár, ætli fólk sér að kaupa allt það magn sem þarf í einu. Berglind mælir þó alls ekki með því bæði vegna þess að það er mik­il­vægt að finna hvað hentar og hvað ekki og vegna kostn­aðar, en mjög auð­velt er að skipta einnota út smátt og smátt. Það þarf ekki að vera allt eða ekk­ert eins og okkur Íslend­ingum hættir stundum til gera. Berglind segir það mjög algengt að fólk kaupi sér nokkur stykki í mán­uði eða bara eins og efni leyfa í hverju til­viki. Það geta allir skipt óháð fjár­hag, það eina er að það tekur þann sem minna á af aurum aðeins lengri tíma að kaupa allt sem þarf. Það má hins vegar benda á að það er lítið mál að þvo og þurrka taubindin, svo það er hægt að nota eitt stykki oftar en einu sinni í hverjum tíð­ar­hring.

Hand­lituð taubindi

Heilsufar

Það hefur verið talað um það að verkir hafi minnkað sem og blæð­ing­arnar eftir að farið var að  nota taubindin. Það eru fjöl­margir sam­mála um og hafa losnað við síend­ur­teknar þvag­færa- og sveppa­sýkn­ingar jafn­framt því sem óþol og ofnæmi haf kvatt eftir að notkun einnota binda var hætt.

Lauf bíður líka upp á poka undir bindin

Frábær kostur fyrir ungar konur

Stelpur sem þekkja ekk­ert annað en tau frá því þær byrj­uðu á blæð­ingum og hafa lent í þeim aðstæðum að vera ekki með taubindi á sér þegar blæð­ingar hefj­ast og því þurft að nota einnota, skilja ekki í því að fólk vilji nota þau. Berglind segir að einnig sé talað um að þetta sé ekki eins og að vera með dömu­bindi, heldur lík­ara því að vera í hreinum nær­fötum. Þægindin eru bara svo miklu meiri með notkun taubindia. Ungum stelpum þykir líka sport að geta valið úr lit­ríkum og skemmti­legum efnum. Reyndar ein­skorð­ast það alls ekki við ungar stelpur því flestum þykir gaman að geta valið flott taubindi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð