Guðrún Andrea nokkur deilir á Twitter nokkuð gamansamri lífreynslu en varð fyrir því að símanúmeri hennar var ruglað saman um árabil fyrir símanúmer fíkniefnasölumanns. Henni grunar að það hafi ekki einungis verið kúnnar heldur jafnframt lögreglan sem ruglaðist á númerum hennar og „Stefáns sölumanns“.
Guðrún segir þetta langsótt en þó gruni henni þetta. „Ok hér kemur ein langsótt pæling í nokkrum hlutum. Síðan svona 2006 þá hef ég reglulega fengið símtöl þar sem beðið er um Stefán. Símtölin hafa í gegnum tíðina verið um helgar og á nóttunni. Einhversstaðar á tímabilinu komst ég að því að Stefán var sölumaður í undirheimunum á Akureyri,“ segir Guðrún.
Henni hafi á heildina þótt þetta skemmtilegt. „Það hefur margt skemmtilegt gerst á þessum tíma. Ég hef fengið sms og þar sem ég er spurð hvort ég sé fersk og svo fékk ég þessi ógleymanlegu sms,“ skrifar Guðrún og deilir myndum þar sem fíkniefnakaupandi sendi henni myndir af hundinum sínum með sólgleraugu.

Síðan fór að koma skruðningur í símann. „Sirka árið 2009 fór að koma reglulega einhverjir stælar í símann minn. Ég fór með hann í viðgerð og ekkert fannst. Það lýsti sér eins og þegar kasettur biluðu í gamla daga, hljóðið var þannig. Þetta gerðist reglulega í nokkur ár. Bara á línunni minni. Svo bara hætti það. Og allt í einu datt mér í hug. Hvað ef, langsótt (á að vera að læra), hvað ef lögreglan var líka með vitlaust númer og var að hlera mig?“































Athugasemdir