Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Séra Önundi er ofboðið: Dóttirin handjárnuð og dregin fyrir dóm

Séra Önundi er ofboðið: Dóttirin handjárnuð og dregin fyrir dóm

„Hér er verið að mis­beita valdi þess sterka gegn hinum veika. Þannig sam­fé­lag vil ég ekki sjá. Og ég er viss um að stór meiri­hluti Íslend­inga er mér sam­mála,” segir séra Önundur S. Björns­son á Facebook en 27 ára gömul dóttir hans er ákærð fyrir að hafa valdið lög­reglu­manni lík­ams­tjóni. Elínborg Harpa, dóttir Önundar var hand­tekin við frið­sam­leg mót­mæli á Aust­ur­velli þegar stuðn­ings­fólk flótta­fólks mót­mælti. Hún er sótt til saka fyrir meint brot gegn vald­stjórn­inni.

Dregin og handjárnuð

„Kæru­efnið: „eymsli í sköfl­ungi“. Að vísu mundi lög­reglu­mað­ur­inn ekki í vitna­haldi á hvorum fæt­inum hann hafði haft eymsli, enda ekki skrýtið, þar sem hann missti ekki dag úr vinnu, að eigin sögn. Þetta gerð­ist við frið­sam­leg mót­mæli framan við Dóm­kirkj­una, hús friðar og sátta, þar sem dóttur minni var kippt út úr hópi mót­mæl­enda og dregin liggj­andi, til skiptis á höndum og fótum, þar sem síðan þrír lög­reglu­menn lögð­ust af sam­an­lögðum þunga yfir hana og færðu í hand­járn.”

Önundur segir í grein sinni að hann sé frið­ar­ins maður og annt um lýð­ræði. Dóttir hans brenni fyrir rétt­læti og mann­rétt­indum, þar á meðal hæl­is­leit­enda, og sé virk í sinni við­leitni.

„Það kann vel að vera að lög­reglu­menn hafi lítið þol gagn­vart slíkum ein­stak­lingum, enda hafa þeir í ýmis horn að líta, þar sem alvar­legir glæpir í sam­fé­lagi okkar hafa því miður farið vax­andi. Nú síð­ast ofbeld­is­maður sem ógnað hefur blásaklausri fjöl­skyldu og engum böndum verður á komið, að best verður séð”.

Önundur segir hand­tök­una hafa verið ástæðu­lausa en mál­sóknin í ofaná­lag, þar sem kraf­ist sé refs­ingar, sé enn verri. Mynd­skeið séu til sem sanni að um frið­sam­leg mót­mæli var að ræða. Gríð­ar­legur kostn­aður fylgi mál­inu, ekki bara hjá dóttur hans heldur öllum þeim emb­ættum sem að mál­inu koma svo og sam­fé­lag­inu.

„Er þetta það rétt­læti sem vald­stjórnin, svokölluð, telur í for­gangi til að tryggja öryggi borg­ara þessa lands?” spyr Önundur.

Málssókn vegna skoðana

„En nú bregður svo við, að afleið­ingar frið­sam­legra mót­mæla og hátt­vísra, eru skyndi­lega þess eðlis, að gerðar eru harðar kröfur á fólk og því stefnt fyrir dóm­stóla og kraf­ist pen­inga og jafn­vel fang­els­unar, vegna skoð­ana fólks og vilja til þess að rétt­lætið nái fram að ganga gagn­vart okkar minnstu bræðrum og systrum; hæl­is­leit­endum og fólks á flótta.”

Önundur spyr hvert réttafar okkar sé komið. Hann hafi samúð með lög­reglu­mönnum þessa lands og þekki þá lang­flesta að góðu einu en þeir séu ekki frið­helgir og taki rangar ákvarð­anir eins og annað fólk.

„Vald­stjórn er vont orð og vægð­ar­laust! Þingmenn: komið því út úr okkar bókum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð