Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bergþóra fékk fjórtán ára fangelsi: „Ég er ekki morðkvendi“

Bergþóra fékk fjórtán ára fangelsi: „Ég er ekki morðkvendi“

Í mars árið 2001 var Bergþóra Guð­munds­dóttir dæmd í 14 ára fang­elsi fyrir að hafa orðið manni að bana í íbúð að Leifs­götu 10 í Reykja­vík. Hún var betur þekkt undir nafn­inu „Ísa­fjarðar-Begga.”

Óreglan var örlaga­vald­ur­inn í lífi Beggu sem síðan varð til þess hún missti börn sín í hendur ann­arra og lenti síðan í fang­elsi fyrir þetta ógæfu­verk.

Erfið æska

Begga átti erf­iða æsku. Hún ólst upp við drykkju­skap föður síns í fjöl­skyld­unni og fet­aði snemma í þau fót­spor. Begga var ein sjö systk­ina og fór ekki drykkjan fram hjá börn­unum og var oft mikið um slags­mál og læti á heim­il­inu. Begga sagði síðar að móðir þeirra hefði þó verið stólpi í til­veru þeirra.

Hún byrj­aði ung að drekka illa auk þess að fara í eit­ur­lyfja­neyslu. „Ég vann eins og karl­maður og ég drakk eins og karl­maður. Vín fór illa í mig og fljót­lega lenti ég í vand­ræðum vegna þess,” sagði Begga síðar í við­tali við DV. Hún fór á ver­tíðir og djamm­aði þess á milli. „Við vorum nokkrar Begg­urnar á djamm­inu,” útskýrði hún um við­ur­nefnið. Aðeins 16 ára fór Begga í sína fyrstu með­ferð í Hlað­gerð­ar­koti, þar sem bróðir hennar var einnig. Henni tókst að halda sér edrú í nokkra mán­uði áður en hún féll. Um tví­tugt hóf hún sam­búð með manni sem eins var ástatt um og eign­að­ist dóttur. Fljót­lega datt sam­bandið upp fyrir og hún var á þvæl­ingi með telpuna í tvö ár sem end­aði á því að hún var tekin af Beggu.

Grýtt vegferð og morð

Smám saman lá leiðin niður á við fyrir Ísa­fjarðar-Beggu en hún var þekkt undir því nafni jafnt hjá lög­regl­unni og dóm­stólum. Hún eign­að­ist son með óreglu­manni, sem tók sig á, og end­aði hann með að taka dreng­inn þegar slitn­aði upp úr sam­band­inu. Eftir það stig­magn­að­ist neyslan hjá Beggu og varð veg­ferð hennar erf­ið­ari. Hún fór í sífellt meiri neyslu og gat ekki fjár­magnað hana svo hún fór út í ávís­anafals og inn­brot. „Ég var aggresív með víni, braust um á hæl og hnakka þegar ég var hand­tekin og oft þurfti marga lög­reglu­menn til að hafa hemil á mér. Oft mundi ég ekk­ert fyrr en ég vakn­aði í stein­inum morg­un­inn eftir.“

Það var síðan þann 23. júlí árið 2000 að Bergþóra og Hall­grímur Elísson voru gest­kom­andi í íbúð­inni og sátu þar við drykkju og vímu­efna­notkun ásamt hús­ráð­anda og öðrum gesti. Á ein­hvern hátt tókst Hall­grími að reita Bergþóru til reiði og í kjöl­farið kom til átaka  á milli þeirra. Endaði það með því að Bergþóra réðst á Hallgrím þar sem hann lá á dýnu á gólfi íbúð­ar­innar. Í dómi segir að hún hafi þrengt að önd­ur­vegi þar til hann lést.

Handtakan og fangavistin

Begga var fljót­lega hand­tekin en hélt ávallt fram sak­leysi sínu. Í við­tali við DV frá þessum tíma, sagði Begga vist­ina dap­ur­lega á Litla-Hrauni en þar var henni haldið í ein­angrun í nokkurn tíma. Begga sagði þetta vera erf­iðan tíma, hún hefði verið tekin af lyfjum sem hún gæti ekki fún­kerað án og klef­inn ekki boð­legur. Taldi hún að vistin bryti gegn Mann­rétt­inda­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Hún var enn fremur ósátt við að vera titluð morð­kvendi. „Ég er ekki morð­kvendi þó að ég hafi verið dæmd fyrir mann­dráp, en verst af öllu er að börnin mín, móðir, og aðrir aðstand­endur líða vegna þess.“ Begga var ávallt mjög stolt af börnum sínum og dáði móður sína.

Henni fannst ósann­gjarnt að hún hefði verið dæmd á meðan aðrir í partý­i­inu „gangi lausir um bæinn og einn þeirra hreyki sér að því að hafa veitt honum bana­höggið.”

Hún átti alltaf erfitt með að sætta sig við nið­ur­stöð­una.

Skæli ekki örlög mín

Fram­burður Beggu og ann­arra vitna í mál­inu var þónokkuð breyti­legur en komst dóm­ur­inn að því að Begga hefði banað Hall­grími þetta kvöld. Hall­grímur hefði hins vegar sýnt nokkuð áreiti á hendur henni þetta kvöld. Begga var talin sak­hæf þótt hún væri undir miklum áhrifum áfengis, lyfja og eit­ur­lyfja. Atlagan þótti enn fremur hrotta­leg þar sem Hall­grímur hefði verið bjarg­ar­laus.

Yfirvöld vissu ekki hvernig taka bæri á Beggu. Hún dvaldi meðal ann­ars í Kvenna­fang­els­inu í Kópavogi þar sem hún sagð­ist hafa misst lífs­vilj­ann. Hún var send á milli afplán­un­ar­staða og með­ferð­ar­úr­ræða áður en hún fór aftur í Kópa­vog­inn. Þar afplán­aði hún síðan sinn dóm en lést skömmu síðar, langt fyrir aldur fram.

„Ég læt ekki vaða yfir mig og ef ég á nokkra mögu­leika á að verj­ast, geri ég það. Einn lið­ur­inn í því er að vera ekki að skæla vegna örlaga minna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð