Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðjón Þórðarson tjáir sig síðar – Allt logar í kringum íslenska landsliðið í fótbolta

Guðjón Þórðarson tjáir sig síðar – Allt logar í kringum íslenska landsliðið í fótbolta

„Ég kann­ast ekki við ósætti milli mín og Eiðs Smára, nema þá að Guðjón Þórð­ar­son viti eitt­hvað meira en ég,“ sagði Gylfi við 433.is í dag.

Vitnar Gylfi þar í ummæli Guðjóns í hlað­varps­þætt­inum The Mike Show, en þar ýjaði Guðjón að því að ástæða þess að Gylfi hefði ekki gefið kost á sér í leik­ina í und­ankeppni HM vera ósætti á milli hans og Eiðs Smára, aðstoð­ar­þjálf­ara íslenska lands­liðs­ins.

Gylfi segir aftur á móti einu ástæð­una fyrir því að hann hafi ekki gefið kost á sér í leik­ina vera að hann eigi von á barni og vilji ekki missa af fæð­ingu þess: „Það er því miður eina ástæðan þrátt fyrir að ein­hverjum hafi kannski þótt hitt vera skemmti­leg saga.“

Því seg­ist Gylfi lítið botna í ummælum Guðjóns Þórð­ar­sonar um meint ósætti sitt og Eiðs Smára: „Þetta er bara kjána­legt að fyrrum lands­liðs­þjálf­ari og fyrrum þjálf­ari minn sé að segja þetta í ein­hverju við­tali, ég veit ekki alveg hvaðan þetta kemur,“ en Gylfi lék undir stjórn Guðjóns hjá Crewe Alex­andra 2009.

„Það voru ein­hverjir sem spurðu mig út í þetta í gær­kvöldi en venju­lega myndi ég ekki svara svona. Mér líkar mjög vel við Eið Smára og vildi því hrein­lega klára þetta mál strax,“ sagði Gylfi.

Segist Gylfi ekki vera búinn að ræða þetta við Eið Smára og seg­ist ekki þörf vera á því vegna þess hve fjarri sann­leik­anum þetta sé: „ …maður varla nennir að svara fyrir þetta núna.“

Arnar Þór Við­ars­son, lands­liðs­þjálf­ari og Guðni Bergsson, for­maður KSÍ hafa báðir tjáð sig um málið og segja ósætti á milli Eiðs og Gylfa ekki vera ástæðu þess að Gylfi gaf ekki kost á sér í lands­leik­ina.

Í sam­tali við Mannlíf sagð­ist Guðjón Þórð­ar­son ekki vilja tjá sig frekar um málið að svo búnu. Hann ætlar að svara þessu á öðrum vett­vangi síðar þegar hann væri búinn að ráð­færa sig við þá sem nauð­syn krefur.

Óhætt er að segja að allt logi í kringum lands­liðið í fót­bolta þessa dag­ana, en miklar deilur hafa verið í kringum full­yrð­ingar Arnars Þórs Við­ars­sonar, um að ekki hafi verið hægt að velja Viðar Örn Kjart­ans­son í lands­liðið fyrir fyrstu leik­ina í und­ankeppni HM.

Segir Arnar að lið Viðars, Våler­enga í Noregi, hafi ekki hleypt honum í verk­efnið.
Samkvæmt reglum FIFA hefði liðið haft rétt á að meina Viðari að taka þátt í lands­leikj­unum, en svo virð­ist sem aldrei hafi reynt á það.

Viðar sjálfur segir þetta vera rangt hjá Arnari og bendir á að félagið hafi leyft liðs­fé­laga sínum hinum kanadíska Sam Adekugbe að taka þátt í sínum lands­leikjum.

Segir Viðar Örn í sam­tali við Vísi þetta vera komið gott og seg­ist ekki hafa mik­inn áhuga á því að snúa aftur í íslenska lands­liðið í fót­bolta sem stendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð