Kona nokkur, íbúi í Grafarvogi, stóð ekki á sama þegar hún sá dularfullan mann í forstofu blokkar sinnar.
„Ég var að fara út en sá hann svo fara út úr okkar blokk og inn í blokk fyrir neðan okkur, sá hann svo fara aftur inn hjá okkur svo ég sneri við þá var hann að taka myndir af póstkössunum og ég þegar ég spurði hvað hann væri eiginlega að gera sagði hann að þetta að þetta væri prívat mál, og svo fór hann,“ skrifar konan inn í Facebook hóp Grafarvogsbúa.
Segir hún manninn vera á miðjum aldri, hann hafi verið klæddur í dökka mittisúlpu og með plastpoka í hönd.
Konan hringdi í lögregluna og biður aðra að láta lögregluna vita ef það sjái til hans.































Athugasemdir