„Guð hjálpi mér hvað skreytingarnar á Hafnargötunni í ár eru HRIKALEGA ófríðar, fyrir utan að það er bara NÚLL páskalegt við þetta!“ Skrifar Sunna nokkur, íbúi Reykjanesbæjar í Facebook hóp bæjarins.
Virðast margir vera á sama máli, en ein skrifar: „Svo sammála , keyrði Hafnargötuna áðan og var að velta fyrir mér hvað þetta væri eiginlega.“
„Með því ljótara sem ég hef séð,“ skrifar önnur.
Árni nokkur skrifar: „Hehe þetta er eins rusl sem flækst hefur á hríslu í roki.“
„Guð minn góður þetta er hræðilegt, væri gaman að vita hver kom með þessa hugmynd,“ skrifar Hólmfríður.
Helga nokkur vill meina að þetta líkist bolluvendi sem hafi fokið út í veður og vind á meðan önnur veltir því fyrir sér hvort einstaklingurinn sem sett hafi upp skreytinguna hafi verið á einhverju.
En eins og stundum áður eru skoðanir fólks skiptar og aðrir lýsa yfir ánægju sinni með páskaskreytinguna:
„Ég var einmitt að dást af þessu. Finnst þetta bara MJÖG SMART,“ skrifar Rannveig nokkur.
Kona ein skrifar: „Þetta er bara svo sætt, líflegt og fallegt. Ekki svo mikið hægt að planta þarna á þessum árstíma nema einhver eigi frostrósir á lager.“
Annar íbúi bæjarins skrifar: „Mér fannst þetta nú bara krúttlegt og minnti mig á páskana. Og einmitt hugsaði til barnanna minna sem hefðu elskað þetta.“
Og enn annar skrifar: „Ég keyrði einmitt þarna fram hjá í dag með sjö ára barnabarnið og þetta gladdi hjarta hennar og mitt reyndar líka. Gott að fá smá liti inn í lífið þessa dagana.“































Athugasemdir