Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Bergdís sinnir börnunum í Kvennaathvarfinu: „Börn beitt ofbeldi eða þurft að hjúkra áverkum mömmu”

Bergdís sinnir börnunum í Kvennaathvarfinu: „Börn beitt ofbeldi eða þurft að hjúkra áverkum mömmu”

„Börnin eru komin í neyð­ar­at­hvarf. Það var ekki þeirra val, þau komu með mömmu. En það þýðir ekki að þau þurfi ekki þjón­ustu” segir Bergdís Ýr Guð­munds­dóttir, félags­ráð­gjafi hjá Kvenna­at­hvarf­inu en hennar starf snýst nær alfarið að því að sinna þeim börnum sem þangað koma.

„Þetta er auð­vitað nýtt starf og að ein­hverju leiti ómótað en eitt er ljóst og það er að mikil þörf var fyrir þetta starf inn í athvarfið. Starfs­kon­urnar hér eru auð­vitað sér­fræð­ingar í að taka á móti konum sem eru að koma úr ofbeld­is­sam­böndum eða óör­uggum aðstæðum en börnin voru svo­lítið auka­af­urð. Kvenna­at­hvarfið er í grunn­inn stofnað fyrir konur með áherslu á mál­efni þeirra”

Þegar Covid skall á kom upp mikil umræða um heim­il­is­of­beldi og voru margir reiðu­búnir að leggja starf­inu lið. Í kjöl­farið kom Bergdís inn en það hefur lengi verið draumur Kvenna­at­hvarfs­ins að fá starfs­mann sem sinnti alfarið börnum.

Börn eru snillingar

Bergdís bendir á að þrátt fyrir að allt hefði verið gert til að láta þeim líða vel hefði vantað skipu­legt utan­um­hald.  „Ég tek við­töl við þau, upp­lýsi þau um hvernig staður þetta er og við ræðum um ástæður þess að þau eru komin. Ég aðstoða þau að átta sig á stöð­unni sem þau er komin í og fæ upp­lýs­ingar um hve mikið þau vita um ofbeldið sem beitt hefur verið á heim­il­inu. Þau vita yfir­leitt ansi mikið.” Bergdís segir börn vera snill­inga og vita oft mikið um ofbeld­is­að­stæð­urnar. „Þau finna alla jafna fljótt hvort þau geti treyst okkur fyrir sinni sögu og þegar það er starfs­maður sem ein­vörð­ungu sinnir börn­unum, fylgir því mikið öryggi. Þau vita að þau eru komin í öruggar hendur, finna fyrir trausti, og vilja ræða málin.”

Bergdís segir mark­miðið að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu fyrir börn sem eru í dvöl í athvarf­inu. „Sum þeirra eru í mik­ill þörf fyrir við­töl. Þau þurfa að átta sig á til­finn­ingum sínum og þurfa hjálp við að vinna úr kvíða og van­líðan.  Við erum að sjá alla flór­una. Sum börn hafa sjálf verið beitt ofbeldi eða horft á mömmu sína vera beitta grófu ofbeldi. Sum hafa þurft að vera í umönn­un­ar­hlut­verki og þurft að hjúkra áverkum mæðra sinna. Önnur börn hafa sjaldan tekið eftir neinu. Þá er oft um að ræða and­legt ofbeldi sem skilar sér í sam­skipta­mynstri sem börnin átta sig kannski ekki á fyrr en þau koma til okkar.“

Sum mál afar þung

„Við höfum lagt elju í að vinna þessi mál í sam­vinnu með lög­bundnum aðilum eins og Barna­vernd, félags­þjón­ustu og skól­unum, öllum sem bera lög­bundna ábyrgð gagn­vart þeim innan stjórn­kerf­is­ins. Hjá okkur koma fram miklar upp­lýs­ingar í málum barn­anna sem við teljum að skipti miklu máli að koma áleiðis til sam­starfs­að­ila í mál­inu svo unnt sé að vinna að sem mestum stuðn­ingi og far­sælli lausn fyrir umrædd börn”.

Að sögn Berg­dísar eru mörg börn sem ekki hafa rödd og ekki gripin nægi­lega vel af „kerf­inu”. „Sum mál eru þyngri en önnur, þar sem alvar­leiki ofbeld­is­ins er meiri og félags­leg staða er þyngri. Þessi börn er oft mjög þjökuð og þurfa meiri og sér­hæfð­ari þjón­ustu en önnur. Við metum það hjá hverju barni fyrir sig. Í slíkum til­fellum er leitað til utan­að­kom­andi aðila ef þau þurfa meiri aðstoð en okkur er unnt að veita þeim. Við leggjum áherslu á að börnin sem eru hjá okkur bíði ekki eftir aðstoð á biðlistum. Við reynum þess í stað að finna aðrar lausnir, fá aðra fag­að­ila að málum og koma börnum fyrr að en ella.  Það er mjög mik­ill metn­aður fyrir því hjá athvarf­inu að vinna þessi mál vel og útfrá þörf barn­anna.”

Þau sem ílengjast

Bergdís bendir að á að ekki megi gleyma félags­lega þætt­inum. „Ég er ekki viss um að fólk átti sig á að það er mjög sér­stakt að búa í Kvenna­at­hvarf­inu. Börnin eru á öðru heim­ili og það getur bara verið svo­lítið vesen fyrir þessa krakka. Við verðum að huga að því sem skiptir þau máli. Hvar eru vin­irnir? Kemst ég með strætó í skól­ann eð á æfingu? Komast fötluð börn til sjúkra­þjálf­ar­ans eða eru þau utan af landi? Þarf kannski að finna nýjan sjúkra­þjálf­ara til að vinna með barn­inu á meðan það er fjarri heima­bænum? Er alltaf til hafra­kex því mér finnst það svo gott? Fæ ég ekki örugg­lega grjóna­graut?”

Að því við­bættu koma aðrir þættir. „Það er til dæmis að fara út að leika, fara á sparkvöll­inn í fót­bolta, kenna þeim á klukku eða hjálpa til við heima­námið. Sum hafa gott stoð­net ætt­ingja og vina en alls ekki öll og önnur eru fjarri heima­högum þar sem stoð­netið er. Mörg okkar barna eru ekki af vel­meg­un­ar­heim­ilum, þótt það sé alls ekki algilt, og ílengj­ast í athvarf­inu. Sum hafa aldrei farið á sum­ar­nám­skeið eða verið í tón­list­ar­skóla eða skipu­lögðu tóm­stund­ar­starfi, sem eru hlutir sem flest okkar líta á sem mik­il­vægt fyrir börn að taka þátt í. Fyrir því hefur ekki verið til fjár­magn eða það ekki sett í for­gang. Við höfum lagt ríka áherslu á að aðstoða þau við slíkt og hjálpa þeim að koma sér af stað. Það er metn­aður okkar að láta hlut­ina ger­ast og það fé sem fer í barna­starfið nýt­ist börn­unum í svona starfi ef ekki fást fyrir því styrkir t.d. frá félags­þjón­ustu eða íþrótta­fé­lög­unum. Við reynum að finna það sem getur glætt líf þeirra ein­hverju ljósi, vera sá staður sem veitti þeim eft­ir­tekt og gaf þeim tæki­færi.”

Mamma beitt ofbeldi

Bergdís leggur áherslu á að móðir og barn eigin upp­lifun­ina saman. „Krakk­arnir vita langoft­ast að mamma er beitt ofbeldi og partur af starf­inu með börn­unum er að leiða móður og barn/börn saman með upp­lif­anir og skiln­ing á reynslu þeirra. Ung­lingur sem var í athvarf­inu sagði t.d. frá því að móðir sagði honum alltaf að setja heyrn­ar­tólin í eyrun og ekki hlusta þegar ofbeld­is­mað­ur­inn byrj­aði öskr­unum. Móðirin taldi öskrin og ljótu orðin ekki hafa áhrif á ung­ling­inn sem var vit­an­lega með­vit­aður um allt þetta ljóta ofbeldi. Þau ræddu hvor­ugt um upp­lifun sína úr þessu sam­eig­in­legu aðstæðum og voru í raun að reyna að vernda hvort annað, móð­irin og ung­ling­ur­inn. Fyrir til­stuðlan starfs­ins í athvarf­inu var hægt að vinna málið sam­eig­in­lega með þeim, fá leyfi ung­lings­ins um hvað mætti ræða við móður. Aðstoða þau við að nálg­ast hvort annað og deila á opinn hátt reynsl­unni sem var sam­eig­in­leg en á sama tíma taka alla ábyrgð­ina af ung­lingnum. Barnið taldi sig vera að vernda móður sína með því að segja ekki frá hvað hann vissi um ofbeldið “

Læra sem fyrir þeim er haft

Hefur Bergdís áhyggjur af að ofbeld­is­hegðun fær­ist á milli kyn­slóða og að börn geri það sem fyrir þeim er haft og sýni ofbeld­is­hegðun þegar þau eld­ast? Hún segir að alltaf þurfi að hafa það á bak við eyrun. „Við sjáum krakka sem hafa sog­ast inn í það mynstur að ofbeldi sé eðli­legt. Þetta eru börn sem eru vön því að ofbeldi sé notað sem hót­unar- og stjórn­tæki á heim­il­inu og eru jafn­vel farin að normalisera það, bæði gagn­vart fjöl­skyldu og vinum. Við tökum á hverju máli fyrir sig og vinnum í hlut­unum út frá því.

Það segir svo mikið að starfs­konur athvarfs­ins finni fyrir mun­inum eftir að það kom sér aðili í að sinna mál­efnum barn­anna. Það hefur skipt sköpum að hafa fengið fag­að­ila í starf barna­starfs­manns, aðila sem þekkir aðeins kerfið og hefur unnið að mál­efnum barna úr nokkrum áttum, en ég hef unnið í barna­vernd, á barna- og ung­linga­geð­deild og á barna­spít­ala Hrings­ins. Ég fagna því að Kvenna­at­hvarfið hafi sett þetta í for­gang enda hefur sú neyð­ar­staða að þurfa að dvelja í Kvenna­at­hvarf­inu ekki síður áhrif á þeirra líf en líf mæð­urnar. Ég er afar stolt af þessu metn­að­ar­fulla starfi Kvenna­at­hvarfs­ins,” segir Bergdís og snýr sé aftur til barn­anna sem eru að skoppa í kringum hana.

Þau eru á leið­inni út í fót­bolta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ