Erling Ingvason, tannlæknir og samfélagsrýnir, segir einungis tvo hópa hafa sigrað þegar Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp úrskurð um að ríkið hefði ekki mátt skikka á sóttvarnahótelið. Það hafi verið vafasamir lögmenn og öfgahægrið.
„Hverjir unnu? Svar: Enginn. Nú mæta þeir gleiðbrosandi í viðtöl, þessir sem kalla mætti „ambulance-chasers“ upp á engilsaxnesku, í lögmannastétt og hrósa sigri yfir „Gúlaginu“ (sóttkvíarhótelinu) í Þórunnartúni. Gengisfelling hugtaka er ekki ný af nálinni en þarna settu þeir met í ósmekklegheitum; Aleksandr Solzhenitsyn snýr sér í gröfinni og fussar og sveiar,“ skrifar Erling á Facebook.
Hann segir að svo geti stuðningsmenn Sigríðar Andersen fagnað. „Eins gleðst ákveðinn kimi Sjálfstæðisflokksins sem kalla má stuðningsmenn Sigríðar Andersen (öfga-hægrið). Þeir telja þetta mikinn sigur fyrir mannréttindin, eins og það séu almenn mannréttindi að fá að flandra um eftirlitslaust á tímum plágu. Vandinn við þetta er sá að það situr ríkisstjórn sem þetta fólk styður sem getur ekki sett reglugerð og/eða lög sem halda, það er enginn sigur, það er bara til marks um vanhæfi þeirra eigin fólks, ofan í ofstækið,“ segir Erling.
Hann segir þetta fólk á lágu plani. „Það eru fleiri og nýleg dæmi um vanhæfi og klúður Sigríðar þessarar sbr. Landsréttarmálið ef einhver er búinn að gleyma því. Nýlega hélt hún því fram að það væri engin COVID-bylgja í gangi, hún var í rauninni að halda því fram að þetta væri bara „fake-news“ frá Þórólfi og co, svo lágt er planið sem þetta fólk finnur sig á,“ segir Erling.
Vanhæfni ríkisstjórnarinnar sé svo fyrst og fremst ástæðan fyrir því að svo fór. „Þingmeirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG hefur haft, ekki minna en 14 mánuði til þess að búa þannig um lagaumhverfið að embætti sóttvarnarlæknis og heilbrigðisráðherra lentu ekki í þessari stöðu. Vanhæfnin, hringlandinn og kæruleysið innan ríkisstjórnarinnar er á þeim skala að manni blöskrar. Hugur minn er hjá Þórólfi Guðnasyni og samstarfsfólki; þetta reglugerðar-fíaskó er það síðasta sem það átti skilið.“































Athugasemdir