Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Litli Landssímamaðurinn“ – Alþýðuhetjan sem kom af stað bylgju réttlætiskenndar

„Litli Landssímamaðurinn“ – Alþýðuhetjan sem kom af stað bylgju réttlætiskenndar

„Litli Lands­síma­mað­ur­inn“ varð alþýðu­hetja árið 2002 þegar hann hann kom á fram­færi upp­lýs­ingum til fjöl­miðla um vafa­sama notkun stjórn­enda Lands­síma Íslands á fjár­munum þáver­andi rík­is­fyr­ir­tækis.

Síðar kom í ljós að mað­ur­inn heitir Halldór Örn Egilson og missti hann starfið eftir ítar­lega leit fyr­ir­tæk­ins að upp­ljóstr­ar­anum.

Síminn eftirsóttur biti

Á þessum árum var Lands­sím­inn í eigu rík­is­ins, og þar með skatt­greið­enda, en lengi höfðu vafa­samir fjár­mál­gjörn­ingar og valda­bar­átta ein­kennt fyr­ir­tækið. For­stjóra­stóll Símans var eft­ir­sóttur biti vegna þeirra hags­muna sem fylgdu að stjórna einu stærsta rík­is­fyr­ir­tæki lands­ins. Þórarinn Viðar Þór­ar­ins­son var ráð­inn for­stjóri árið 1999 og það sama ár var Friðrik Pálsson, þáver­andi for­stjóri Sölu­mið­stöðvar hrað­frysti­hús­anna, ráð­inn stjórn­ar­for­maður. Auk hefð­bund­inna launa stjórn­ar­for­manns samdi Friðrik við Sturlu Böðv­ars­son, þáver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Þórarin, um að einka­fyr­ir­tæki hans, Góðráð ehf., myndi starfa sem verk­taki fyrir Símann. Átti Góðráð að þiggja hálfa milljón á mán­uði fyrir. Samn­ingur þessi fór ekki hátt og kom til að mynda aldrei fyrir augu stjórnar Símans. Stjórn­ar­tíð Þórarins ein­kennd­ist af hverju hneyk­l­is­mál­inu á fætur öðru þangað til honum var ekki lengur stætt á stóli og hætti hann störfum um ára­mótin 2001-2002. Starfs­loka­samn­ingur hans hljóð­aði upp á 37 millj­ónir króna.

Hér er um að ræða upp­hæðir á tveggja ára­tuga gömlu verð­lagi.

Boltinn byrjar að rúlla

Í upp­hafi febr­ú­ar­mán­aðar 2002 fer af stað frétta­flutn­ingur af því að Þórarinn Viðar hafi látið leggja ISDN línu að sum­ar­bú­stað sínum við Þing­valla­vatn á kostnað Símans. Það var ekki ódýrt. Næsta mál kom upp skömmu síðar og sneri beint að Friðriki þegar samn­ing­ur­inn um Góðráð kom í ljós. Hafði fyr­ir­tækið rukkað Símann um tæp­lega 8 millj­ónir fyrir ráð­gjafa­störf árið 2001. Auk þess voru heim­ildir fyrir því að Síminn hefði beint við­skiptum sínum ótæpi­lega til Hótels Rangár, þar sem Friðrik var stjórn­ar­for­maður og er í eigu hans.

Friðrik brást hinn versti við og hófst þegar í stað mikil leit að hverjum þeim sem lekið höfðu þessum upp­lýs­ingum. Farið var yfir hvern og einn sem höfðu flett upp Góðráðum í bók­halds­kerfi Símans. Leitin bar árangur og ját­uðu tveir starfs­menn að hafa komið upp­lýs­ingum áleiðis til fjöl­miðla. Annar fékk áminn­ingu en hinum, Halldóri, var sagt upp taf­ar­laust.

Síðar kom í ljós að var Halldór Örn Egilson, sem hafði gengið undir nafn­inu „litli Lands­síma­mað­ur­inn” í fjöl­miðlum. Honum hafði verið ofboðið og þegar að DV nálg­að­ist hann og bað hann um upp­lýs­ingar um greiðsl­urnar sam­þykkti hann þát­töku.

Eðlilegt að ræða við fjölmiðla

Bylgja rétt­læt­is­kenndar fór um þjóð­fé­lagið við upp­sögn Halldórs. Bæði Blaða­manna­fé­lagið og almenn­ingur brugð­ust hin reið­ustu við og kraf­ist var laga um vernd heim­ild­ar­manna.

Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands varði upp­ljóstrun Halldórs harð­lega. „Starf blaða­manna er að bera sig eftir fréttum og upp­lýsa mál. Í máli Lands­síma­manns­ins er það ljóst í mínum huga að hann rauf ekki trúnað við einn eða neinn. Hann sýndi trúnað. Það er kjarni máls­ins. Ég er ósam­mála full­yrð­ingum um að Lands­sím­inn geti ráðið og rekið hvern sem er.“

„Það er alveg fráleitt að þessi maður skyldi vera rekinn fyrir að sýna trúnað og sýna meira siðferðilegt hugrekki en aðrir“

Þór Jónsson, þáver­andi vara­f­rétta­stjóri Stöðvar 2 tók í sama streng. „Hvað átti „litli Lands­síma­mað­ur­inn“ að gera? Átti hann að kvarta við Friðrik Pálsson, eða átti hann að fara ofar og kvarta við Sturlu Böðv­ars­son, eða átti hann að fara til Rík­is­end­ur­skoð­unar? En eins og menn vita höfðu þessir ágætu herrar hringt í Rík­is­end­ur­skoðun til að fá stimpil á þennan gern­ing. „Litli Lands­síma­mað­ur­inn“ hafði allar ástæður til að van­treysta þessum yfir­mönnum sínum og því kemur hann máli sínu eðli­lega til fjöl­miðla.“

Halldór Örn fékk seinna vinnu hjá Línu.Net fyrir milli­göngu Alfreðs Þor­steins­sonar, for­manns stjórnar Orku­veit­innar. Hann er enn afar dug­legur að benda á það sem miður fer í sam­fé­lag­inu á sam­fé­lags­miðlum og hefur hvergi dregið af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð