Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sirrý hefur séð inn í heim fátækasta fólks heimsins: „Vantar nokkra sentimetra að komast í splitt“

Sirrý hefur séð inn í heim fátækasta fólks heimsins: „Vantar nokkra sentimetra að komast í splitt“

Fyrrum sjón­varps­konan Sirrý Arn­ar­dóttir var undir stækk­un­ar­gleri Mannlífs í vik­unni.
Sirrý þarf vart að kynna fyrir lands­mönnum en hún starf­aði í fjöl­miðlum í 30 ár og var á þeim tíma meðal ann­ars með sjón­varps­þátt­inn Fólk með Sirrý, sem eflaust margir muna eftir.

Sirrý hefur nú sagt skilið við fjöl­miðla, en hún starfar í dag sem stjórn­enda­þjálf­ari, skrifar bækur og kennir við Háskól­ann á Bifröst.

Mannlíf komst að því að Sirrý er dug­leg að minna sig á kosti sína og segir það nauð­syn­legt í sam­fé­lagi sem okkar, hana dreymir um að fá að verða amma einn dag­inn og svo finnst Sirrý íslenska þjóðin vera of fljót að gleyma og sætta sig við órétt­læti og ójöfnuð.

Sirrý Arn­ar­dóttir

Fjöl­skyldu­hagir? Gift og á tvo upp­komna syni og tengda­dætur.

Menntun/atvinna? Menntuð í félags- og fjöl­miðla­fræði og starf­aði í fjöl­miðlum í 30 ár en er stjórn­enda­þjálf­ari í dag, skrifa bækur og kenni við Háskól­ann á Bifröst.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni?  Nýtt efni frá Norð­ur­löndum er það besta sem ég veit í sjón­varpi. Dönsku Mattador þætt­irnir eru svo algjör klassík. Afteshowet á DR1 er besti dæg­ur­mála­þátt­ur­inn í Sjón­varpi. Krist­jana Arn­ar­dóttir á RÚV er upp­á­halds sjón­varps­konan mín.

Leikari? Kristján Franklín og líka danska leik­ara­stéttin í heild sinni.

Rit­höf­undur? Halldór Kiljan Laxness.

Bók eða bíó? Bæði. Bókin fyrst svo vil ég sjá bíó­mynd­ina á eftir.

Besti matur? Hollur matur, lit­ríkur, ein­faldur, ferskt hrá­efni.

Kók eða Pepsí? Hvorugt. Nema í bíó vel ég Kók með popp­inu.

Fal­leg­asti stað­ur­inn?  Þing­vellir.

Hvað er skemmti­legt?  Að eiga sálu­fé­laga og fá að vera með honum flesta daga og nætur. Geta þagað og spjallað með sálu­fé­lag­anum um allt og ekk­ert. Að ræða við vin­konur er skemmti­legt. Að rækta gúrku­tré og klippa gúrkur af plönt­unni og beint í sal­atið er skemmti­legt. Líka að rækta garð­inn sinn, elda góðan mat, dansa tangó, spjalla í heitu pott­unum, teygja sig og toga í yoga, að ganga í skógi er skemmti­legt, að liggja í hengi­rúmi og lesa er skemmti­legt, að fara í langan göngutúr með BBC í eyr­unum er skemmti­legt. Golf er skemmti­legt. Vinnan mín er skemmti­leg. Að gera svona lista er skemmti­legt.

Hvað er leið­in­legt? Að þurfa að vakna snemma en geta ekki sofið af ótta við að geta ekki sofið nóg og vera vak­andi af stressi yfir því að vera ekki sof­andi.

Hvaða flokkur? Ég er með val­kvíða.

Hvaða skemmti­staður? Sund­laugar.

Kostir? Ég hef marga kosti og legg áherslu á að minna mig á þá – því sam­fé­lagið er drifið áfram af því að minna okkur á að við erum ekki nóg, ala á óánægju okkar með okkur sjálf svo við kaupum meira og verðum betri neyt­endur. Því gef ég mér reglu­lega H(rós) og minni mig á kosti mína. Til dæmis að ég er skap­andi, ég er lausn­a­miðuð, ég tala skýrt, ég er barn­góð, ég er liðug, ég sé fyrst það góða við fólk, ég á auð­velt með að hrósa öðrum. Ég er sjálf­stæð.

Lestir?  Ég er lengi að fara á fætur, fæ kikk út úr því að dorma. Ég er vand­ræða­lega léleg í stærð­fræði.

Hver er fynd­inn? Mér finnst börn rosa­lega fyndin. Ég les til dæmis oft við­töl við börn á barna­síðum fjöl­miðla því mér finnst þau oft svo fyndin og skemmti­leg. Helga Braga og Edda Björg­vins eru líka mjög fyndnar.

Hver er leið­in­legur? App­el­sínu­gulur trumpur.

Trúir þú á drauga? Já for­tíð­ar­drauga. En þá er hægt að kveða niður með sjálfs­skoðun og vinnu.

Stærsta augna­blikið? Þegar synir mínir, Haraldur Franklín og Kjartan Franklín, fædd­ust.

Mestu von­brigðin?  Það sem hefur valdið mér von­brigðum hefur í raun oft orðið til góðs. Til dæmis ef ég hef ekki fengið eitt­hvert starf eða tæki­færi sem ég óskaði eftir, og hef orðið spæld, hefur það gjarnan orðið til þess að eitt­hvað miklu betra býðst stuttu síðar.

Í stærra sam­hengi má nefna að það olli mér von­brigðum að ekki breytt­ist meira en raunin varð eftir banka­hrunið. Panama­skjöl og rann­sókn­ar­skýrslur hefðu átt að hafa meiri áhrif. Við erum of fljót að gleyma og sætta okkur við órétt­læti og ójöfnuð, því miður.

Hver er draum­ur­inn? Að fá ein­hvern tím­ann að verða rosa­lega skemmti­leg amma.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári?
Við öll höfum unnið það afrek að halda jafn­að­ar­geð­inu og bjart­sýn­inni þrátt fyrir heims­far­aldur og önnur leið­indi sem hafa dunið á okkur. Og ég per­sónu­lega náði að verða opn­ari gagn­vart tækn­inni og þróa leiðir til að kenna ,,Fram­sækni – örugga tján­ingu” og ,,Fjöl­miðla­færni” mikið til í fjar­kennslu. Og að halda fyr­ir­lestra, umræður og nám­skeið í gegnum Teams. Ég hefði ekki séð þetta fyrir og hefði ekki haft frum­kvæði að þessu nema af því að það var ekk­ert annað í boði.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Það vantar enn nokkra senti­metra í að kom­ast í splitt. En ann­ars þá er ég ekk­ert mikið fyrir mark­miða­setn­ingu. Mér finnst við stundum gera mark­miða­setn­ingu of hátt undir höfði. Það getur verið betra að vera í flæð­inu. Lifa í núinu en vera opinn og í góðu orkuflæði og treysta.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Já mörgum. En það er þetta með tján­ing­una, sumt er betra að sýna og leika en skrifa.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Æ vand­ræða­leg augna­blik eru bara leið til að stækka þæg­ind­ara­mmann og engin ástæða til að velta sér upp úr vand­ræða­gangi. Að fá blackout í beinni útsend­ingu, ganga of snemma fram á svið sem kynnir á tón­leikum, bux­urnar rifna þegar ókunnur maður lyftir undir rass­inn á manni í kletta­klifri,…þetta er bara partur af því að fara út fyrir þæg­inda­hring­inn og vera mann­eskja. 😊

Sorg­leg­asta stundin? Að sjá afleið­ingar heim­il­is­of­beldis, ofdrykkju, and­legra veik­inda og fjár­hags­á­hyggja. Þetta hef ég séð bæði nærri mér og líka í störfum mínum og fram­halds­námi í Banda­ríkj­unum. Ég hef séð inn í heim fátæk­asta fólks í heim­inum, hef séð eymd heim­il­is­lausra í Banda­ríkj­unum þar sem ég vann á sjón­varps­stöð í Missouri, ég fór fyrir Unicef til Kenýa að gera söfn­un­ar­þátt fyrir fátæk börn og það var margt sorg­legt. Að sjá erf­ið­leika nærri mér hefur líka verið mjög sorg­legt. En sem betur fer eru mörg úrræði og sorg hefur oft breyst í sigra.

Mesta gleðin? Að sjá börnin sín njóta sín og vera góðar mann­eskjur.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að iðka þakk­læti, sjá feg­urð­ina í hvunndeg­inum og elska fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð