Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Áralangur draumur Áslaugar rætist – Smurbrauðsdaman sem lærði að elda fyrir tvo fyrir þúsundkall

Áralangur draumur Áslaugar rætist – Smurbrauðsdaman sem lærði að elda fyrir tvo fyrir þúsundkall

Bókin Undir 1000 kr. fyrir tvo eftir Áslaugu Björgu Harð­ar­dóttir, sem nýverið kom út er algjör­lega dásam­leg. Hún kom úr prentun þann 24.mars síð­ast­lið­inn, til­viljun réði því að það var á  afmæl­is­degi höf­undar. Í henni er að finna fjöl­breyttar upp­skriftir af girni­legum og ódýrum mál­tíðum. Þar að auki eru gefin ráð hér og þar í bók­inni um það hvernig má spara í mat­ar­inn­kaupum. Rétt­irnir eru ein­faldir og fljót­legir og eng­inn þeirra inni­heldur unnar mat­vörur. Bókin er nett svo lítið mál er að hafa hana til­tæka í eld­hús­inu. Mannlíf spjall­aði við Áslaugu af þessu til­efni.

Áslaug Björg með bók­ina

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að gefa bókina út?

„Við höfum ferð­ast dálítið mikið og þá leigt okkur íbúðir og verið að elda sjálf en þegar maður kom heim til Íslands fannst mér allt svo ofboðs­lega dýrt. Ég eld­aði stundum franska lauk­súpu sem er mjög ódýr en öllum fannst alltaf mjög góð. Ég var búin að vera með þetta í hausnum í nokkur ár og alltaf að hugsa hvort það væri ekki snið­ugt að gera bók sem væri ein­föld með góðum mat, ekki bara pylsum eða unnum mat, heldur alvöru mat. Það er nefni­lega alveg hægt ef maður vandar sig bara og hugsar þetta aðeins.

Þegar Covid skall á og ég var búin að púsla 10.000 púsl sagði ég nei, þetta gengur ekki, þetta Covid er ekk­ert að fara og ég bara get ekki púslað meira. Nú er góður tími til þess að láta draum­inn verða að veru­leika og gefa út bók­ina sem mig hefur dreymt um í nokkur ár.“

Hefur þú gefið út bók áður eða er þetta frumraun þín?

„Þetta er frumraun hjá mér, en við erum með útgáfu­fyr­ir­tæki, ég og Sverrir Björns­son mað­ur­inn minn. Hann hefur gefið út ljós­mynda­bók sem heitir Two in one, ferða­manna­bók, hann  tók myndir af öllum helstu ferða­manna­stöð­unum. Mynd­irnar sýna  sömu stað­ina í sumar- og vetr­ar­bún­ingi. Hann hefur líka gefið út barna­bók, Nýr heimur, ævin­týri Esju í borg­inni.“

Önnuðust þið útgáfu bókarinnar sjálf?

„Já við gerðum það. Þetta er sann­kallað fjöl­skyldu­verk­efni. Ég er rosa­lega ánægð með hönn­un­ina, finnst hún fal­leg en mað­ur­inn minn Sverrir Björns­son og dóttir okkar Sunneva Sverr­irs­dóttir sem býr í Kaup­manna­höfn og vinnur á danskri aug­lýs­inga­stofu, sáu um hönn­un­ina. Maðurinn minn sá líka um allar ljós­mynda­tökur og umbrotið. Mig lang­aði alltaf að hafa bók­ina í nákvæm­lega þessu broti og netta.“

Bókin er sann­ar­lega fyrir alla. Fallega stúlkan á mynd­inni heitir Ronja og er barna­barn Áslaugar og Sverrirs

Hvað hefur þú verið að fást við áður ?

„Ég byrj­aði starfs­fer­il­inn minn í Brauðbæ og vann þar við öll verk sem féllu til, vann þar í fjöl­mörg ár. Þar lærði ég svo vel að útbúa smur­brauð, en einn kafl­inn í bók­inni er til­eink­aður smur­brauðum. Eftir það fór ég að flytja inn hár­snyrti­vörur og flutti meðal ann­ars inn  Kengúrusjampóið Aussie í 16 ár ásamt alls konar snyrti­vörum. Ég rak eftir það verslun sem hét ER tísku­vöru­verslun á Skóla­vörðu­stígnum. Rak hana í átta ár en hætti því í  hrun­inu 2009. Þá flutt­umst við til Argent­ínu og bjuggum þar í eitt ár, eftir að allt hrundi hér heima.  Ég hef líka starfað við að elda mat í lax­veiði­húsum, hef mat­reitt fyrir veiði­menn­ina. Ég var ein­hverjar vikur yfir sumar þar og leysti vin­konu mína af sem rak þetta á þeim tíma. Eftir að við komum heim frá Argent­ínu byrj­uðum við með útgáf­una okkar.“

Hvernig var að búa í Argentínu ?

„Það var bara æðis­legt að búa þar. Alveg rosa­lega fínt en mjög óstöðugt ástand er þar, hlut­irnir geta breyst mjög skjótt. Annars stóð aldrei neitt annað til en að koma heim svo sem. Okkur lang­aði bara að prófa að búa ein­hvers staðar erlendis, það er bara gott og þrosk­andi að prófa það.“

Réttirnir í bókinni eru þeir fyrir alla?

„Já það ættu allir að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi. Bókin skipt­ist í sex kafla, kjúklinga­rétti, pasta, súpur, græn­met­is­rétti, ýmsa rétti og síð­ast en ekki síst smur­brauð.“

Er lögð áhersla á að minnka matarsóun í bókinni?

„Já, svo sann­ar­lega. Ég legg áherslu á að kaupa nákvæm­lega það sem vantar í hvern og einn rétt svo ekki þurfi að henda neinu. Hvað varðar „best fyrir“  merk­ingar þá eru mat­væli ekki ónýt þó að það sé komið fram yfir þann dag. „Best fyrir“  er bara sá tími sem fram­leið­andi tryggir gæði vör­unnar sem þýðir síður en svo að hún sé ónýt. Fólk í vest­rænum ríkjum hendir allt of miklu af mat­vælum.“

Risa­rækjupa­stað er mjög ljúfengt

„Það er gott að spara í mat­ar­inn­kaupum og jákvætt og mik­il­vægt að vita af því að þegar mælt er hár­rétt við eldun og engu er hent þá er um leið komið í veg fyrir mat­ar­sóun.“

Eyðum við of miklu í mat?

„Það fer mjög hátt hlut­fall af tekjum okkar í mat­ar­inn­kaup svo það er nauð­syn­legt að huga að því að minnka mat­ar­sóun og því að spara. Það er nú málið að það er mun ódýr­ara að elda heima hjá sér en að borða úti eða taka með sér heim til­búin mat, það er líka mikið holl­ara. Þú ert 40 til 60 pró­sent lengur að brenna skyndi­bita eins og til dæmis ham­borg­urum og þess háttar mat heldur en mat sem þú eldar heima hjá þér, venju­legum heim­il­is­mat. Auðvitað er í góðu lagi að neyta skyndi­bita ein­staka sinnum en það er bara orðið mjög algengt hér á landi að fólk sé að gera það oft í viku.“

Á hvaða verðbili eru réttirnir í bókinni?

„Rétt­irnir eru frá   428 krónum til 997 króna og dreifast nokkuð jafnt yfir það verð­bil. Ég á til alla strimla og alla verð­út­reikn­inga fyrir rétt­ina í bók­inni. Þar sem verð­lagið sveifl­ast frá degi til dags þótti ekki ástæða til þess að hafa nákvæm verð upp á krónu í bók­inni, hefði verið of flókið, en ég get alltaf sýnt fram á það ef ein­hver efast um að verðin sé rétt.“

Sérðu fyrir þér að gefa út fleiri bækur?

„Já, já ég er alveg með hug­myndir að næstu bók, ef þessi gengur vel.“

Bókin er ekki bara fal­leg heldur mjög not­enda­væn

Bókin er til sölu í versl­unum og vef­ver­sun Pennans Eymund­sonar og hjá For­lag­inu. Hún er einnig vænt­an­leg í stór­mark­aði á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð