Dagur B. Eggertsson borgarstjóri greinir frá því á Facebook að hann hafi fengið boð um að koma í bólusetningu í dag. Hann var fyrst hissa en svo kom í ljós að honum var boðið sem lækni en ekki borgarstjóra. Hann afþakkaði boðið en býst við að fara fljótlega þar sem hann er á ónæmisbælandi lyfjum, en fólk með undirliggjandi sjúkdóma eru næstir í röðinni.
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason veltir því fyrir sér hvort bólusetning landsmanna sé ekki að ganga nógu vel fyrir sig. Og þá ekki í samhengi við klúður ríkisstjórnarinnar að útvega sjálft bóluefnið. Egill segir þetta merki um skipulagsleysi. „Þetta virkar eins og dálítið skipulagsleysi, að boða fólk sem lærði eitthvað sem tengist heilbrigðismálum (og það er fjöldamargt) og bólusetja það alveg burtséð frá því við hvað það starfar. Dagur gerir rétt í því að hafna,“ skrifar Egill á Facebook.
Hann bætir svo við í athugasemd: „Þetta er ekki bara spurning um lækna heldur mikinn fjölda fólks sem hefur tengsl við heilbrigðis- og velferðargeirann. Kannski erfitt að draga línu milli þeirra sem eru starfandi eða eru það ekki – en ætti nú samt að vera gerlegt.“ Það má því telja líklegt, út frá þessu, að ýmsir hafi fengið boð, líkt og Dagur, án þess að hafa raunverulega ástæðu fyrir því að vera framar í röðinni.
Anna nokkur skrifar svo athugasemd hjá Agli sem bendir á að sama sé ekki upp á teningnum hjá leikskólakennurum, í það minnsta fengu þeir sem hafa lokið háskólanámi í því fengið sjálfkrafa boð. „Ég er leikskólastjóri og þurfti að senda lista með nöfnum, kennitölum og símanúmeri þeirra starfsmanna sem voru starfandi hjá mér og svo kemur röðin að okkur vonandi fljótlega. Það hefði verið hægt að útfæra þetta með heilbrigðisstarfsfólkið mun betur og ég veit að mjög margir sem hafa ekki starfað í þeim geira jafnvel áratugum saman hafa þegið bólusetninguna.“































Athugasemdir