Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragnar segir það varla borga sig að greiða lífeyri: „Varðhundar kerfisins komnir á yfirsnúning“

Ragnar segir það varla borga sig að greiða lífeyri: „Varðhundar kerfisins komnir á yfirsnúning“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir á Facebook að fyrir fólk á lágum launum borgi sig varla að vera sam­visku­samur með að borga í líf­eyri. Hann sýnir hvernig það skilar sér í sára litlum umfram pen­ing en sá sem borg­aði aldrei. Hann segir huldu­fólk þó ávallt koma og verja þetta kerfi þegar það er gagn­rýnt.

„Sam­trygg­ing­ar­fólkið. Taka tvö. Nú eru varð­hundar líf­eyr­is­kerf­is­ins komnir á yfir­snún­ing við að verja sam­trygg­ing­ar­hluta líf­eyr­is­kerf­is­ins. Huldu­fólk úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni sem sjaldan kemur fram og fæst okkar þekkja með nafni, nema þegar hug­mynda­fræði þeirra og rang­hug­myndum um líf­eyr­is­sjóða­kerfið er ógnað. Þessi hópur berst hat­ramm­lega gegn því að fólk hafi raun­veru­legt val um hvort hækkun iðgjalds í líf­eyr­is­sjóði 3,5% fari í sam­trygg­ingu eða hvort fólk geti ráð­stafað því í frjálsa sér­eign,“ skrifar Ragnar.

Hann segir þetta fólk ekki vilja að almenn­ingur hafi frelsi til að velja um þetta. „Rökin sem þetta fólk heldur á lofti er mik­il­vægi sam­trygg­ingar vegna örorku­líf­eyris eða að hún sé svo mik­il­væg fyrir lægst laun­uðu hópana.  En hvernig virkar sam­trygg­ingin? Sam­trygg­ingin virkar þannig að með því að greiða í sam­trygg­ingu tryggir líf­eyr­is­kerfið rétt­indi sem ávinn­ast sem hlut­fall af með­al­tali ævi­tekna. Þannig að 15,5% iðgjald í sam­trygg­ing­ar­hluta líf­eyr­is­sjóð­anna tryggir 72% af með­al­tekjum yfir starfsæv­ina, miðað við 40 ára inn­greiðslu. Sem þýðir að lág­launa­fólkið sem aldrei náði endum saman af lágum launum sínum fær aðeins 72% af með­al­tekjum sem það gat aldrei lifað á,“ segir Ragnar.

Hann setur upp dæmi um þá stöðu sem lág­launa­maður stendur frami fyrir. „Með öðrum orðum tryggir líf­eyr­is­kerfið að fátæktin nái yfir gröf og dauða. (Ath.rétt­inda­á­vinnsla getur verið mis­mun­andi eftir sjóðum. Í dæm­inu hér neðar er stuðst við reikni­vél Líf­eyr­is­sjóðs Versl­un­ar­manna og reikni­vél TR) Tökum dæmi um hvernig „sam­trygg­ing­ar­kerfið“ virkar í raun og veru: Með­al­laun for­stjóra í kaup­höll­inni í fyrra voru um 4,8 millj­ónir á mán­uði.

Hann fær í líf­eyri eða rétt­indi sem nemur 3.798.269 kr. á mán­uði eða 2.196.375 kr. á mán­uði eftir skatt. Og í fram­reiknuð örorku­rétt­indi 3.686.594 kr. á mán­uði eða 2.187.249 kr. á mán­uði eftir skatt. Lág­marks­laun eru í dag 351.000 kr. Sá sem er á lág­marks­launum fær í líf­eyri eða rétt­indi 277.748 kr. á mán­uði og í fram­reiknuð örorku­rétt­indi 269.582 kr. á mán­uði.“

„Sá sem er á lág­marks­launum fær mót­fram­lag frá rík­inu í gegnum Trygg­inga­stofnun. Þannig að útborguð líf­eyr­is­rétt­indi, með heim­il­is­upp­bót, verða 363.371 kr á mán­uði. Eða rétt til örorku sem nemur útborgað 354.911 kr. á mán­uði, með heim­il­is­upp­bót. Sá sem aldrei greiddi í líf­eyr­is­sjóð fær í útborg­aðan elli­líf­eyri, með heim­il­is­upp­bót 279.240 kr. á mán­uði og í örorku­líf­eyri 299.133 kr. útborgað með heim­il­is­upp­bót. Sá sem greiddi sam­visku­sam­lega af lág­marks­launum sínum alla starfsæv­ina fær því 84.131 kr. meira á mán­uði en sá sem aldrei greiddi og 1.833.004 kr. minna á mán­uði en meðal for­stjór­inn fær,“ segir Ragnar.

Hann segir nán­ast borga sig að borga ekki. „Sá sem varð öryrki en hafði greitt sam­visku­sam­lega af launum sínum í líf­eyr­is­sjóð fær 55.778 kr. meira á mán­uði en sá sem aldrei greiddi og 1.832.338 kr. minna á mán­uði en meðal for­stjór­inn fær. Ef við miðum við sömu for­sendur og að ofan og hækkum með­a­laun um 70.000 kr. eða úr 351.000 kr. í 421.000 kr. á mán­uði þá er nið­ur­staðan athygl­is­verð og er svo­lítið lýsandi fyrir sam­spil kerf­anna.  Miðað við 70.000 kr. hærri laun skilar það ekki nema 14.602 kr. í hærri útborg­aðan líf­eyri og 16.012 kr. í hærri greiðslum vegna örorku. Það er fróð­legt að fylgj­ast með upp­hróp­unum frá sam­trygg­ing­ar­fólk­inu. Upp­hróp­unum sem sjaldn­ast eru studdar rökum eða tölu­legum stað­reyndum. Það er umhugs­un­ar­efni útaf fyrir sig að þeir sem hæst gala um ágæti sam­trygg­ing­ar­kerf­is­ins fara fyrir hags­munum þeirra sem kerfið mis­munar hvað verst.“

“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð