Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

SÖFNUN – Alma ofsótt af eltihrelli í áratug: „Ekkert sem bætir svona hræðilegan verknað“

SÖFNUN – Alma ofsótt af eltihrelli í áratug: „Ekkert sem bætir svona hræðilegan verknað“

„Stelpan hefur mátt þola hreint út sagt hel­víti síð­ustu árin frá elti­hrelli. Hún hefur þurft að leita sér aðstoðar hjá geð­lækni og gerði það í þágu skaða­bót­ar­máls því þetta er búið að leggj­ast ansi þungt á hennar and­legu hlið. Henni var hafnað um skaða­bætur hjá rík­inu fyrir þá aðstoð því það er ekk­ert í lögum sem bætir upp svona hræði­legan verknað, því hann hefur aldrei lagt á hana hendur.

Hún situr því uppi með 250 þús­und króna reikn­ing sem hún þarf að greiða sjálf. Hún er ein­stæð móðir og hefur ekki getað unnið uppá síðkastið vegna þessa manns og hvað hann er búinn að gera henni and­lega.

Því leitum við til ykkar kæru systur og óskum eftir aðstoð fyrir þessa ungu, dug­legu, hjarta­hlýju stelpu sem er alltaf til­búin að gera allt fyrir aðra. Margt smátt gerir eitt stórt og mun svo sann­ar­lega létta aðeins á áhyggjum hennar.”

Svo segir í færslu sem vin­konur Ölmu Torfa­dóttur, ungrar móður frá Akranesi, settu inn á Facebook síð­una Góða systir. Alma segir slá­andi sögu sína í þátt­unum Ofsóknir sem sýndir eru á Stöð 2.

Hún var 18 ára þegar ofsókn­irnar hófust. Hún vann þá hjá olíu­fé­lag­inu Olís þar sem mað­ur­inn vandi komur sínar. Smám saman virð­ist sú hug­mynd hafa fest rætur hjá mann­ingum að hann stæði í sam­bandi við Ölmu og hófst þar með ára­tugs löng saga ofsókna sem allar ganga út á þessa þrá­hyggju manns­ins.

Lifir í stöðugum ótta

Maðurinn hefur sent henni þús­undir texta­skila­boða, setið fyrir utan íbúð hennar og elt á milli bæj­ar­fé­laga. Hann hefur einnig margoft áreitt fjöl­skyldu hennar og barns­faðir. Foreldar hennar segja hana ekk­ert eiga eftir lengur, hún lifi í stöð­ugum ótta. „Þetta er auð­vitað hræði­legt fyrir son hennar, hann elst upp í ótta, mamma er stöðugt hrædd. Þetta er búið að rústa öllu fjöl­skyldu­lífi,” segir móðir hennar í þætt­inum.

Alma hefur þrisvar sinnum fengið dæmt nálg­un­ar­bann á mann­inn sem virðir þau ekki en lítið virð­ist vera hægt að gera því lag­ara­mm­inn er óskýr þegar kemur að elti­hrellum og getur lög­regla lítið gert þegar ekki er um lík­am­legt ofbeldi er að ræða. „Afleið­ing­arnar eru engar fyrir hann,” segir Alma.

Það er svo lítið eftir

Alma stríðir við þung­lyndi, kvíða og áfall­streituröskun. „Mig langar í skóla og hef reynt það en ein­beit­ingin er ekki til staðar. Ég get ekki unnið og er hætt að borða og sofa. Ef þú ert búin að lama mann­eskju and­lega er svo lítið eftir. Ég er föst, alltaf í varn­ar­stöðu, alltaf að bíða eftir ein­hverju.”

Alma ótt­ast um líf sitt. „Ef eitt­hvað klikkar í honum á ég eng­ann séns, hann er miklu stærri og sterk­ari en ég. Ég trúi því að hann muni klikka einn dag­inn“, segir Alma Torfa­dóttir.

For­eldrar og systir manns­ins sem um er rætt ósk­uðu eftir að koma því á fram­færi við þátt­inn Ofsóknir að við­kom­andi hafi ítrekað leitað sér aðstoðar. Sam­fé­lagið hafi hins vegar brugð­ist honum og að úrvinnsla máls­ins hafi reynst honum þung­bær.

Ef þú vilt hjálpa Ölmu í neyð hennar þá getur þú gert það hér:

Reikningur: 0370-22-018938

Kennitala: 290481-2959

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð