Mikill mildi þykir að ekki fór verr þegar hjól duttu undan bifreið á ferð. Höfðu felguboltar bílsins verið losaðir, með fyrrgreindum afleiðingum.
Ökumaður bifreiðarinnar var að aka út af bílastæði við heimili sitt í Grafarvoginum þegar hjólin duttu undan.
Óprúttnir aðilar hafa verið á ferli í Grafarvogi undan farið og unnið skemmdarverk á bílum. Stungið hefur verið á dekk, felguboltar losaðir, eins og áður sagði og fleira.
Það er óhætt að segja að það hafi verið lán í óláni að dekkin skyldu strax detta undan bílnum, því atvikið hefði geta endað afar illa ef bifreiðin hefði verið komin út í umferðina.
Að sögn íbúa hverfisins leikur enginn grunur á því hverjir hér hafa verið á ferð, en skemmdarverkin hafa verið gerð í skjóli nætur og enginn orðið var við grunsamlegar mannaferðir.
Samkvæmt íbúanum er hverfið afar rólegt og íbúum þess er því skiljanlega brugðið.
Íbúinn vill ekki koma fram undir nafni vegna hræðslu við þá sem framið hafa skemmdarverkin og segir fleiri miður skemmtilega atburði hafa átt sér stað í hverfinu upp á síðkastið en vill ekki fara nánar út í það: „Hér er mikil ólga undir og ég veit ekkert hvað er að gerast.“































Athugasemdir