Á tíu árum hafa 83 börn fengið meðferð vegna kynmisræmis hjá göngudeild Barna- og unglinga geðdeildar (BUGL), þar af 42 sem af er árs. Flestu hafa þau komið í meðferðina á kynþroskaskeiði og hafa tvö þriðju barnanna verið líffræðilega kvenkyns. Frá upphafi hafa 55 barnanna verið stúlkur og 28 drengir. Þetta er mikil aukning frá árinum 2011-2015 þegar 11 börn voru í meðferð.
Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, um meðferð barna sem sem upplifa kynmisræmi.
Langflest í og eftir kynþroska
Í tölunum kemur fram að af af þessum 83 börnum voru 73 skráð með geð- og taugaröskunargreiningar. Tvö af þeim börnum sem nú eru í meðferðinni hófu hana á þessu ári og árið 2019 voru þau 19.
Í svarinu kemur fram að flest börn, sem upplifi kynmisræmi, komi í meðferð í og eftir kynþroska. Þá eru þeim gefin svokölluð stopphormón sem stöðva samskipti á milli heiladinguls og kynkirtla. Aftur á móti eru börn sem leita til teymisins fyrir kynþroska fá en þá eru kyneinkenni líffræðilegs kyns, svo sem brjóst hjá trans-dreng, hindruð. Slík meðferð er einungis gefin eftir að BUGL hefur rannsakað börnin.
Mjög örugg meðferð
Meðal þess sem spurt er um í fyrirspurninni er hversu mörg þeirra barna, sem fá stopphormón, fái síðar krosshormón en þau er hormón sem gera börnin ýmist karl- eða kvenlegri. Í svarinu kemur fram að meirihluti þeirra sem fái stopphormón vilji einnig fá krosshormón og þessar tvær tegundir hormóna séu yfirleitt notaðar saman. Spurt er um aukaverkanir og kemur fram í svarinuað meðferðin sé mjög örugg.
„Öll börn, sem vísað er til transteymis BUGL, fara í gegnum frumgreiningu og skimun í nærumhverfi og áframhaldandi greiningarferli á BUGL vegna geð- og þroskaraskana. Hvert mál er einstakt og því þarf að gera einstaklingsmiðaða meðferðaráætlun. Meðferð sem er veitt getur verið margvísleg og er háð því hvort geð- og þroskaraskanir eru til staðar. Sum börn þarfnast aðkomu ýmissa meðferðarúrræða, svo sem fjölskyldu-, hóp- og einstaklingsmeðferða. Flest börn fá jafnframt stuðningsviðtöl á BUGL eða annars staðar,” segir í svari heilbrigðisráðherra.































Athugasemdir