Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skotið að starfsmönnum ÁTVR úr afsagaðri haglabyssu – Fyrsta vopnaða rán Íslands var þaulskipulagt

Skotið að starfsmönnum ÁTVR úr afsagaðri haglabyssu – Fyrsta vopnaða rán Íslands var þaulskipulagt

Að kvöldi föstu­dags­ins 17. febr­úar árið 1984 voru tveir starfs­menn ÁTVR rændir þegar þeir voru að skila af sér afrakstri dag­söl­unnar í næt­ur­hólf Lands­bank­ans við Laugaveg 77.

Starfs­menn­irnir höfðu lagt bíl sínum á gang­stétt­ina framan við bank­ann og steig annar þeirra út með féð þegar skotið var á dekk bíls þeirra. Byssu­mað­ur­inn ógn­aði síðan starfs­mann­inum og krafð­ist þess að hann afhenti sér pen­ing­ana. Starfs­mað­ur­inn var ekki á því og hélt sem fast­ast. Hann var þá sleg­inn með byss­unni, sem reynd­ist vera afsöguð hagla­byssa, og reið þá annað skot af. Til allrar guðslukku hæfði skotið ekki starfs­mann­inn sem lét féð af hendi.

Ræn­ing­inn komst undan með tæpar tvær millj­ónir króna á stolnum leigu­bíl.

Málið vakti það gríð­ar­lega athygli og talað var um fyrsta vopn­aða ránið þar sem slíkt rán hafði þá ekki hafa verið framið frá því á nítj­ándu öld.

Falskt skegg og gleraugu

Allt lið lög­reglu var kallað út auk þess sem vík­inga­sveitin var sett í við­bragðs­stöðu. Klukku­stund síðar fannst bif­reiðin yfir­gefin í porti við Braut­ar­holt og voru bæði pen­ingar og vopn á bak og burt. Spor­hundar voru kall­aðir til án árang­urs. Lýsingar vitna voru óljósar þar sem mað­ur­inn hafði málað á sig yfir­skegg, höku­topp og barta auk þess að vera með falskar auga­brúnir og gam­al­dags gler­augu.

Í ljós kom að maður, vopn­aður afsag­aðri hagla­byssu, hafði látið leigu­bíl­stjóra aka sér frá Hótel Sögu að afskekktum stað í Naut­hóls­vík­inni. Þar ógn­aði hann bíl­stjór­anum, neyddi hann út úr bílnum og hélt á brott. Byssan var til­kynnt stolin úr inn­broti í versl­un­ina Vest­ur­port nótt­ina fyrir ránið.

Bankamaður stígur fram

Mikið var fjallað um ránið í blöð­unum og ekki leið á löngu þar til starfs­maður Lands­bank­ans steig fram með upp­lýs­ingar sem reynd­ust vendi­punktur í mál­inu. Lög­reglan var í kjöl­farið komin með nafn á mann­inum sem síðar átti eftir að vera kall­aður fyrsti banka­ræn­ingi Íslands­sög­unnar.

Hann reynd­ist vera hinn 22 ára gamli William James Scobie, íslenskur rík­is­borg­ari, sem hafði flutti til Íslands frá Banda­ríkj­unum ásamt fjöl­skyldu sinni sem barn að aldri.

Í lok febr­úar 1984 greindi DV frá því að Lands­banka­starfs­mað­ur­inn hefði verið mál­kunn­ugur William. Hann sýndi pen­inga­flut­ingum ÁTVR mik­inn áhuga og spurði ítar­lega út í þá. Maðurinn taldi ekk­ert til­tak­an­lega grun­sam­legt við sam­tölin og spjall­aði frjáls­lega um ferli pen­inga­flutn­ing­ana við William. Honum brá svo mjög í brún þegar að fréttin um ránið birt­ist í blöð­unum og sá að ef til vill hefði hann verið full laus­máll í tali sínu við William.

Hann hafði umsvifa­laust sam­band við lög­reglu.

Var það álit manna að ránið hefði aldrei kom­ist upp ef ekki hefði verið fyrir aðkomu umrædds banka­starfs­manns.

Handtekinn á leið í flug

Lög­reglan hóf þegar eft­ir­lit með William sem var hand­tekin, ásamt föður sínum á Kefla­vík­ur­flug­velli þann 24. febr­úar. William var þá komin með annan fót­inn upp í vél á leið til Banda­ríkj­anna.

Nítján ára gam­all félagi Williams, Ingvar Heiðar Þórð­ar­son, hand­tek­inn fyrir aðild sína að rán­inu tveimur dögum síðar. Ingvar hafði komið fyrir flótta­bíl í Braut­ar­holt­inu auk þess að hafa fylgst með rán­inu og kippt upp pen­inga­poka sem William hafði misst á flótt­anum. Þeir höfðu síðan í sam­ein­ingu hent vopn­inu og fatn­aði sem notað var í rán­inu í sjó­inn við Kárs­nesið í Kópa­vog­inu áður en leiðir skildu. Ingvar fékk 360 þús­und krónur af ráns­fénu í sinn hlut fyrir ómakið.

Við yfir­heyrslur kom í ljós að ránið var vel und­ir­búið. William hafði viljað létta undir með fjöl­skyldu sinni sem átti í fjár­hags­erf­ið­leikum og meðal ann­ars boðið for­eldrum sínum meg­in­hluta ráns­fengs­ins. Fjöl­skyldan vildi ekki segja til hans og ætl­aði faðir hans að koma honum úr landi og til Banda­ríkj­anna.

Dómur fellur

William og Ingvar ját­uðu og hlutu í kjöl­farið fimm og tveggja og hálfs árs fang­els­is­dóma. Faðir Williams neit­aði allri sök en hlaut sex mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir yfir­hylm­ingu.

William var einnig grun­aður um rán í Iðn­að­ar­bank­anum í Breið­holti nokkrum dögum áður en það telst vera fyrsta banka­rán Íslands­sög­unnar. Aldrei tókst að sanna þann glæp á hann.

William hefur starfað sem mat­reiðslu­maður í fjölda ára.

Ingvar skap­aði sér síðar nafn sem athafna­maður í íslensku skemmt­ana­lífi með rekstri bara og veit­inga­húsa auk þess að setja upp leik­sýn­ingar og flytja inn tón­list­ar­fólk. Hann skrif­aði bók­ina „Hinn full­komni glæpur” þar sem hann sagði frá til­drögum og fram­kvæmd ráns­ins.

Í bók­inni sagði Ingvar meðal ann­ars að um hafi verið að ræða tvo unga með tíma­bundið skamm­hlaup í heil­anum og væri það von hans að bókin yrði ungu fólki til umhugs­unar að hugsa áður en það fram­kvæmdi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð